Mikill skellur fyrir Skagamenn sem leita á náðir KSÍ Sindri Sverrisson skrifar 19. maí 2026 13:09 Árni Marinó Einarsson verður ekki með ÍA næstu 6-8 vikurnar eftir að hafa ristarbrotnað. vísir/Guðmundur ÍA verður án aðalmarkvarðar síns, Árna Marinós Einarssonar, næstu 6-8 vikurnar vegna meiðsla og freistar þess nú að fá undanþágu til að taka inn markvörð í hans stað.
Þetta staðfestir Lárus Orri Sigurðsson, þjálfari ÍA, við Fótbolta.net í dag og segir Árna hafa ristarbrotnað í tæklingu í síðasta leik, í 2-1 sigrinum gegn Þór á Akureyri. Árni náði engu að síður að klára leikinn en þarf nú að halda sig frá fótbolta að minnsta kosti út júnímánuð. Skagamenn eiga næst leik við ÍBV á fimmtudagskvöld í Bestu deildinni og spila alls fimm deildarleiki á næstu sex vikum, gegn ÍBV, FH, Val, KR og Fram, auk leiksins við Víking í 8-liða úrslitum Mjólkurbikarsins. Félagaskiptaglugginn er lokaður fram til 16. júlí og því hafa Skagamenn sett sig í samband við KSÍ í von um að geta sótt sér nýjan markvörð í ljósi stöðunnar. Hinn 17 ára gamli Isak Theodor Eidem hefur verið varamarkvörður ÍA í síðustu leikjum, eða eftir að Logi Mar Hjaltested var lánaður í 2. deildarlið Kára, og mun því væntanlega að óbreyttu standa á milli stanganna gegn Eyjamönnum á fimmtudaginn. Lárus vonast þó til þess að ÍA verði leyft að sækja sér nýjan markvörð. „Ég vil ekkert segja neitt núna, við erum í fyrstu skrefum í þessu ferli, og þau eru að athuga hvort við fáum leyfi til þess að fá inn markmann, sem við hljótum að fá því við erum markmannslausir,“ segir Lárus í grein Fótbolta.net. Það er í höndum Eysteins Péturs Lárussonar, framkvæmdastjóra KSÍ, að ákveða hvort ÍA verði veitt undanþága til að fá nýjan markvörð en sá má ekki hafa spilað í Bestu deildinni í sumar. Í reglugerð KSÍ um félagaskipti segir í grein 10.2: Framkvæmdastjóri KSÍ getur veitt undanþágu frá ákvæðum greinar 10.1. fyrir félagaskipti markvarðar utan við félagaskiptatímabil ef ríkar ástæður eru til að hans mati. Skal félagið leggja fram rökstudda greinargerð ásamt fylgigögnum. Undantekning þessi nær ekki yfir markvörð sem hefur leikið með félagi í sömu deild eða ofar á keppnistímabilinu en það félag er óskar undanþágunnar. Ákvörðun framkvæmdastjóra KSÍ er heimilt að áfrýja til samninga- og félagskiptanefndar sem úrskurðar í málinu.
Besta deild karla ÍA Mest lesið Rotaðist eftir höfuðhögg og var fluttur á sjúkrahús Fótbolti Skoraði fimmtán mörk fyrir Guðjón Val Handbolti Falko farinn frá ÍR Körfubolti Ágúst Orri fagnaði stórsigri í öðrum leik sínum með Excelsior Fótbolti Framarar skoruðu 38 mörk og unnu Handbolti Rúst hjá Rosenborg Fótbolti Arnar Freyr og félagar í Flensburg áfram með fullt hús Handbolti Ótrúleg björgun Völsungs og Grindavík fallin Íslenski boltinn Arbeloa í brasi Enski boltinn Stefán og Alfons gátu ekki klárað leikinn vegna óeirða Fótbolti Fleiri fréttir ,,Eftir þessar síðustu 20 mínútur held ég að ég þurfi bara að leggjast niður.” Fred framlengir við Fram til 2028 Ótrúleg björgun Völsungs og Grindavík fallin Uppgjörið og viðtal: Keflavík - Valur 1-2 | Valsmenn héldu út Uppgjörið: ÍBV-Fram 2-3 | Fram sneri taflinu við í Eyjum Enn kynt upp í rígnum: Ekroth keyrði utan í Aron Myndband ekki fyrir viðkvæma: „Horfi niður og sé höndina mína í einhverri steik“ Erfitt verkefni FH og Breiðablik til Póllands Hver var í flottustu treyjunni? Tufegdzic bræður til Malmö Stjarnan spilar aftur í Miðgarði Frá Keflavík til Noregs KSÍ kaupir pulsuna og búið er að koma henni fyrir á Laugardalsvelli Andrea Rán Snæfeld Hauksdóttir: ,,Hleyptum óþarfa stressi í leikinn” Guðni Eiríksson: ,,Við spilum fyrir þetta fólk og munum alltaf gera það” „Eins og þeir hafi bara engan áhuga á að vera þarna“ Draumurinn að rætast Brot Sveins Gísla það ljótt að ekki var hægt að endursýna Lögreglan hafði afskipti af Víkingum Myndaveisla: Á fimmta þúsund manns á stórleik KR og Víkings „Það er hrikalegt að sjá þetta“ „Í gær var ég að æfa nákvæmlega sama skot“ Ummæli Arons ekki svaraverð: „Ekki mikið vit í því sem hann er búinn að vera segja“ „Gæti óskað þeim til hamingju með titilinn núna“ Mörkin úr stórslag KR og Víkings í lýsingu Gumma Ben Sveinn Gísli braut bein í toppslagnum KR - Víkingur 1-1| Hjartahnoð Arnórs Ingva á síðustu stundu Söngur og gleði hjá KR-ingum fyrir leik Slær Aron markametið í kvöld? „Þetta er síðasti séns fyrir KR-inga“ Sjá meira