Stendur með Bríeti í deilunni við Pálma Magnús Jochum Pálsson skrifar 19. maí 2026 15:45 Sara Pétursdóttir hefur lýst yfir stuðningi við Bríeti Isis Elfar sem stendur í deilum við Pálma Ragnar Ásgeirsson fyrir dómara. Aðsent/Vísir/Vilhelm Sara Pétursdóttir, sem áður gekk undir nafninu Glowie, segist standa með tónlistarkonunni Bríeti í deilum hennar við Pálma Ragnar Ásgeirsson, pródúsent og lagahöfundi. Glowie og Pálmi unnu saman áður en hún gerði útgáfusamning við Columbia Records árið 2017. Við tók áralangt samstarf Pálma með Bríeti en hún hefur nú krafið þrotabú félags, sem var í eigu Pálma, um greiðslu átta milljóna króna.
Sara birti stuðningsyfirlýsingu við Bríeti Isis Elfar á Instagram-hringrás sinni í gær. Þar birti hún sjálfu af sér með hlekk á Vísisgreinina „Bríet krefur Pálma Ragnar um átta milljónir króna“ sem birtist í síðustu viku og skrifaði „Ég veit hvernig er að vinna með þessum manni“ við myndina og sagðist standa með Bríeti í málinu. Blaðamaður hafði samband við Söru til að spyrja hana út í yfirlýsinguna og hvort hún vildi tjá sig frekar um málið. Sara sagðist ekki vilja tjá sig frekar um málið „eins og er“ en hún myndi kannski gera það seinna. Blaðamaður hafði einnig samband við Pálma Ragnar sem vildi ekki tjá sig um yfirlýsingu Söru. Hins vegar sagðist hann munu tjá sig um deilurnar við Bríeti þegar niðurstaða kemst í mál þeirra fyrir dómstólum. Sara sló fyrst í gegn árið 2015 undir nafninu Glowie með laginu „No More“ sem var framleitt af Pálma Ragnari og samstarfsmönnum hans í StopWaitGo. Hún gerði síðan stóran útgáfusamning við Columbia Records árið 2017, flutti til Lundúna og gaf út stuttskífuna Where I Belong árið 2019. Sara tók sér pásu frá tónlist árið 2022 og tilkynnti svo í síðasta mánuði að tónlistarferli hennar væri lokið. Frávísunarkröfur teknar fyrir í héraði Greint var frá því í byrjun árs að Bríet og Pálmi hefðu stefnt hvoru öðru fyrir dómstólum vegna deilu um höfundar- og útgáfurétt og rétthafagreiðslur. Á miðvikudaginn í síðustu viku voru frávísunarkröfur Pálma í tveimur málum teknar fyrir í Héraðsdómi Reykjavíkur. Þar kom fram að Bríet kræfi þrotabú félagsins Líms og varahluta ehf., sem hét áður Rok records og var í eigu Pálma, um tæplega átta milljónir króna vegna höfundaréttar-, útgáfuréttar og rétthafagreiðslna, sem hún taldi sig hafa verið hlunnfarna um. Málin tvö sem voru tekin fyrir í héraðsdómi vörðuðu annars vegar fjárkröfur sem Bríet gerði í þrotabú félags Pálma Ragnars, sem tekið var til gjaldþrotaskipta árið 2024, og hins vegar kröfur Bríetar um að fá eignarrétt sinn yfir tilteknum upptökum viðurkenndan. Lögmaður Pálma krafðist þess að báðum málum væri vísað frá dómi á grundvelli þess að verulegir ágallar væru á kröfugerð Bríetar í málinu. Reikna má með úrskurði dómara um frávísunarkröfurnar um miðjan júní. Nánar má lesa um kröfur aðila í umfjöllun um þinghaldið sem birtist í síðustu viku og er hér fyrir neðan. Bríet og Pálmi hófu samstarf sitt árið 2018 þegar Bríet gaf út sína fyrstu stuttskífu 22.03.99. Þau gáfu allt í allt út átján lög sem þau sömdu í sameiningu á þeim fjórum árum sem þau unnu saman, þar á meðal eru flestöll lögin á plötunni Kveðja, Bríet og vinsælasta lag hennar, „Esjan“. Síðasta lagið sem Bríet og Pálmi eru bæði skráð fyrir er lagið „Flugdreki“. Lögin sem þau sömdu saman eru öll skráð af tónlistarútgáfunni Alda Music á Spotify en nýrri lög Bríetar af henni sjálfri.
Tónlist Höfundar- og hugverkaréttur Dómsmál Tengdar fréttir Deilur Bríetar og Pálma smitast yfir á síðu Zöru Larsson Deilur milli tónlistarkonunnar Bríetar Isis Elfars og framleiðandans Pálma Ragnars Ásgeirssonar, sem fara bráðum fyrir dómara, hafa smitast yfir á netið og eru óvænt hluti af kommentakerfi Instagram-færslu sænsku poppstjörnunnar Zöru Larsson. 9. mars 2026 14:03 Mest lesið „Ég passaði mig sérstaklega á því að tala ekki um Evrópusambandið“ Lífið Enginn venjulegur sjötugur maður Gagnrýni Adam Páls fann ástina í örmum Moniku Lífið Stjörnulífið: Rapparar ástfangnir upp fyrir haus Lífið Blendnar tilfinningar að fara á vinnumarkað á ný Lífið Lofuðu svörtu fólki lækningu en blekktu það til dauða Lífið Vigdís Häsler og Sveinn Andri gengu í hnapphelduna Lífið Lára Clausen lýsir eftir stolnum Mustang Lífið Talay Riley stunginn til bana í Lundúnum Tónlist Huggulegustu hommar landsins „loksins“ giftir Lífið Fleiri fréttir Talay Riley stunginn til bana í Lundúnum „Pólitíkusar sem tala á þennan veg: Fokk jú“ „Þú getur ekki ráðist að mér þegar ég er að borða með ömmu minni“ Peabo Bryson er látinn Datt af sviðinu og beint í skurð „Stundum verður maður að segja fokk it“ „Við skoðuðum þennan markað og hann var allur í lausu lofti“ Íslenskur tónlistararfur loksins aðgengilegur öllum Mugison þakkar innilega fyrir sig Segir gagnrýnina til marks um normalíseringu barnagirndar Snúa aftur á byrjunarreit: „Það þekkir enginn rassinn á mér eins vel og Addi“ Týndi sjálfri sér til að þóknast öðrum Svona er Þjóðhátíðarlagið 2026 Blóð, sviti og tár skemmtilegra en að prumpa út lögum Bó átti að syngja á nýju lagi Stefáns: „Örlögin gripu í taumana“ Stendur með Bríeti í deilunni við Pálma Þá var kátt í höllinni Shakira sýknuð Þrjú hundruð kórbörn frumflytja lag Herra Hnetusmjör fagnar fyrir fullri Laugardalshöll „Þetta var erfiðasta ár lífs míns“ Nennti ekki að meika það Stjörnufans hjá Birni á Edition Fjarsamband alltaf erfitt Eurovision fer fram í vikunni en hlustunartölur hríðfalla Tónleikum Yasiin Bey frestað með dags fyrirvara fram á haust Ástarsorgin átakanleg en gjöful Joey Christ, Dóri DNA, og 7Berg í upphitun fyrir Yasiin Bey Kynþokkafullir með fortíðarþrá Stuðpinnar skáluðu í innsetningunni Sjá meira
Deilur Bríetar og Pálma smitast yfir á síðu Zöru Larsson Deilur milli tónlistarkonunnar Bríetar Isis Elfars og framleiðandans Pálma Ragnars Ásgeirssonar, sem fara bráðum fyrir dómara, hafa smitast yfir á netið og eru óvænt hluti af kommentakerfi Instagram-færslu sænsku poppstjörnunnar Zöru Larsson. 9. mars 2026 14:03