Lítil bjalla, stórt hjarta: Hvernig við getum verndað bæði kisur og fugla Kolbrún Áslaugar Baldursdóttir skrifar 20. maí 2026 08:02 Fáar dýrategundir ylja manni jafn mikið um hjartarætur og kettir og fuglar. Kettirnir okkar eru dásamlegir fjölskyldumeðlimir, með sterka persónuleika, sjálfstæði og hlýju. Þegar vora tekur iðar allt af lífi og flestar inni- og útikisur fagna því að geta vappað um nágrennið, frjálsar og óháðar á sínum eigin forsendum. En þessu frelsi fylgir ákveðin ábyrgð sem dýrelskandi eigendur þurfum að axla. Lífga upp á umhverfið okkar Á sama tíma og kisurnar okkar teygja úr sér í grasinu, fyllast garðarnir af nýju lífi. Allt um kring eru spörfulgar flögrandi milli greina jafnvel með nýklakta unga í hreiðri og þegar þeir skríða úr hreiðri kunna þeir eðlilega varla fótum sínum forráð. Fuglasöngur tengir okkur við náttúruna og veitir mörgum ómælda gleði. Fyrir garðeigendur eru þessir litlu nágrannar líka ómetanlegir bandamenn, þar sem þeir halda lús og öðrum meindýrum á trjánum í skefjum með náttúrulegum hætti. Leyndarmálið liggur í fjöldanum Kettir eru í eðli sínu rándýr. Þegar þeir verða varir við hreyfingu vaknar meðfætt veiðieðli. Það gerir ketti ekki vonda. Þeir eru einfaldlega að hlýða eðli sínu. En afleiðingarnar geta hins vegar verið sárgrætilegar fyrir fuglalífið, sérstaklega þegar ungarnir eru varnarlausir. Sem betur fer getum við brugðist við þessu á einfaldan og mildan hátt. Með því að setja bjöllur á hálsól katta gefum við fuglunum tækifæri til að forða sér. Til að ná árangri ætti að nota tvær til þrjár bjöllur frekar en eina. Kettir eru nefnilega ótrúlega snjallir og læra fljótt að læðast þannig að ein stök bjalla haldist hljóðlaus. En þegar bjöllurnar eru fleiri, klingja þær saman við minnsta samslátt. Þessi lága, vinalega hringing gerir það að verkum að kötturinn á nánast ómögulegt með að koma bráð sinni í opna skjöldu. Ef við bætum svo litsterku hálsskrauti eða sérstökum kraga við ólina, eykst fælingin enn frekar, því fuglar hafa framúrskarandi sjón og sjá skæra liti úr mikilli fjarlægð. Samkennd og umhyggja í verki Þetta á ekki að snúast um boð eða bönn, heldur um samkennd og umhyggju fyrir öllu lífi í kringum okkur. Með því að huga að áðurnefndum atriðum sýnum við ábyrgð í verki sem dýravinir. Við getum haldið áfram að leyfa köttunum okkar að njóta útiverunnar og frelsisins, á sama tíma og við leggjum okkar að mörkum til að fleiri fuglsungar vaxi og dafna og komist á legg. Hjálpumst að við að gera hverfið okkar að öruggum griðastað fyrir þau öll. Höfundur er þingkona Flokks fólksins. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Kolbrún Áslaugar Baldursdóttir Mest lesið Eftir Kveiksþátt Anna Björg Jónsdóttir,Hjördís Halldóra Sigurðardóttir Skoðun Ríkið vill minnst tvö og hálft ár milli barnanna þinna Karítas Ólafsdóttir Skoðun Flokkur fólksins tekur í handbremsuna Eyjólfur Ármannsson Skoðun Cornell og klefamenning Olga Björt Þórðardóttir Skoðun Menning er ekki bisnessplan Birgir Þórarinsson Skoðun Þorum við að banna Airbnb eða erum við líka siðferðislegir hugleysingjar? Helen Ólafsdóttir Skoðun Þorum við að tala um sorgina? Stefán Már Gunnlaugsson Skoðun Bakslag fyrir barnafjölskyldur í Hafnarfirði Valdimar Víðisson Skoðun Réttindi eiga að vera raunveruleg Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir Skoðun Getur Gufunesið talist skapandi hverfi ef Listhúsið lokar? Narfi Þorsteinsson Skoðun Skoðun Skoðun Kostnaðurinn við nei Sigvaldi Einarsson skrifar Skoðun Hver stal kökunni úr krúsinni? Gunnar Valur Sveinsson skrifar Skoðun Stríð Rússlands gegn utanríkisviðskiptum Úkraínu er stríð gegn fæðuöryggi heimsins Clara Ganslandt skrifar Skoðun Sjónvarpið 60 ára: Þögnin segir líka sögu Gunnar Salvarsson skrifar Skoðun Takk Hörður Jóhann Páll Jóhannsson skrifar Skoðun Firrur um aflareglu fyrir þorsk Ásgeir Daníelsson skrifar Skoðun EES málið, ESA og fullveldi Íslands og tími komin til varna Eggert Guðmundsson skrifar Skoðun Sýnum viljann í verki Aðalbjörg Stefanía Helgadóttir skrifar Skoðun Bókun 35 – þegar molnar undan stjórnkerfinu Aðalsteinn Júlíus Magnússon skrifar Skoðun Pínu sársauki á unga fólkið? Helgi Bárðarson skrifar Skoðun Austurland margborgar sig Ragnar Sigurðsson skrifar Skoðun Þorum við að tala um sorgina? Stefán Már Gunnlaugsson skrifar Skoðun Verklokafælni stjórnvalda Kjartan Björgvinsson skrifar Skoðun Við getum gert betur Hulda Brá Magnadóttir skrifar Skoðun Hverjum er frelsið ætlað? Guðný S. Bjarnadóttir skrifar Skoðun Bakslag fyrir barnafjölskyldur í Hafnarfirði Valdimar Víðisson skrifar Skoðun Þorum við að banna Airbnb eða erum við líka siðferðislegir hugleysingjar? Helen Ólafsdóttir skrifar Skoðun Skattfé er einnota Erna Bjarnadóttir skrifar Skoðun Forvarnadagurinn er í dag María Heimisdóttir skrifar Skoðun Af hverju má ég ekki eiga Chihuahua af því að ég bý í húsnæði fyrir fatlað fólk? Ingibjörg Dóra Scheving Bjarnadóttir skrifar Skoðun Réttindi eiga að vera raunveruleg Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir skrifar Skoðun Flokkur fólksins tekur í handbremsuna Eyjólfur Ármannsson skrifar Skoðun Áramótaheit ríkisstjórnarinnar Helgi Brynjarsson skrifar Skoðun Menning er ekki bisnessplan Birgir Þórarinsson skrifar Skoðun Þegar allt verður þjónusta Valerio Gargiulo skrifar Skoðun Ríkið vill minnst tvö og hálft ár milli barnanna þinna Karítas Ólafsdóttir skrifar Skoðun Hvenær eru kjósendur blekktir? Gunnar Ármannsson skrifar Skoðun Cornell og klefamenning Olga Björt Þórðardóttir skrifar Skoðun Eftir Kveiksþátt Anna Björg Jónsdóttir,Hjördís Halldóra Sigurðardóttir skrifar Skoðun Almannatryggingar í 90 ár Alma D. Möller skrifar Sjá meira
Skoðun Stríð Rússlands gegn utanríkisviðskiptum Úkraínu er stríð gegn fæðuöryggi heimsins Clara Ganslandt skrifar
Skoðun Þorum við að banna Airbnb eða erum við líka siðferðislegir hugleysingjar? Helen Ólafsdóttir skrifar
Skoðun Af hverju má ég ekki eiga Chihuahua af því að ég bý í húsnæði fyrir fatlað fólk? Ingibjörg Dóra Scheving Bjarnadóttir skrifar