Þegar Hafró ver hvalinn en gleymir fiskinum Svanur Guðmundsson skrifar 20. maí 2026 10:03 Nýverið leiðrétti Hafrannsóknastofnun fyrri hrefnuráðgjöf sem opinberar ákveðið vandamál í íslenskri fiskveiðiráðgjöf. Stofnunin beitir nefnilega varúðarreglu af mikilli hörku þegar kemur að veiðum á hrefnu án nokkurs tillits til áhrifa hrefnunnar á fiskistofna og vistkerfi sjávar. Enn minna tekið tillit til vistkerfis, sjómanna og atvinnulífs. Hafró ráðlagði fyrst veiðar á 168 hrefnum en leiðrétti síðar ráðgjöfina niður í 134 dýr vegna þess að það gleymst að beita 20% varúðarreglunni sem felur í sér varnir vegna óvissu í útreikningum. Einhliða varúð Það alvarlegasta er þó hugarfarið sem birtist í ráðgjöfinni. Þegar óvissa ríkir um hrefnustofninn er sú óvissa túlkuð hrefnunni í hag. Þegar spurt er um áhrif hrefnunnar á loðnu, sandsíli, síld, þorskfiska og fæðuvefinn í kringum Ísland verður svarið mun óskýrara. Þar liggur kjarni vandans: Hafró virðist ekki verja fiskistofna fyrir ágangi hrefnu með sama ákafa og stofnunin ver hrefnuna fyrir veiðum manna. Það er ekki heildstæð vistkerfisstjórnun. Þetta lítur út sem einhliða varúð gagnvart einum stofni en ógnar í raun öðrum stofnum. Hrefnan er hluti af stærra mynstri Hrefna er ekki einangrað fyrirbæri í lífríki sjávar. Hún er ein fjölda hvalategunda sem sækja inn á íslensk fiskimið og nýta sama lífmassa og þeir fiskistofnar sem íslenskur sjávarútvegur byggir á. Hnúfubakur, langreyður, hrefna og aðrar tegundir eru ekki utan við nýtingu auðlindarinnar. Þær eru virkir neytendur auðlindarinnar. Það er því hættulegt að ræða hrefnu eins og hún sé stök siðferðileg spurning, aðskilin frá fiskistofnum, fæðukeðju og þjóðarhagsmunum. Hún er hluti af alvarlegri þróun þar sem vaxandi fjöldi stórra sjávarspendýra hefur áhrif á fiskimið, fæðuframboð og samkeppni um lífmassa. Allir sem skilja líffræði ættu að sjá þetta samhengi og þessa þróun. Ef stjórnsýslan metur aðeins áhrif veiða á hvali, en ekki áhrif hvala á fiskistofna, er hún ekki að stýra vistkerfi auðlindar okkar. Hún er þá aðeins að stýra litlum hluta vistkerfisins og horfa fram hjá áhrifum á nytjastofna hafsins. Afrán sem ekki má líta fram hjá Hrefna er stór afræningi. Hún étur fisk, ljósátu og annað sjávarlíf. Miðað við varlega áætlað stofnmat eru um 13.500 hrefnur á íslenska landgrunnssvæðinu og getur heildarfæðunám þeirra hlaupið á hundruðum þúsunda tonna á ári. Þar af getur hluti fisks í fæðu hrefnunnar verið verulegur, allt eftir svæðum, árstíðum og fæðuframboði. Þetta skiptir miklu máli. Ef hrefna étur ljósátu hefur hún óbein áhrif á fæðukeðjuna. Ef hún étur loðnu og sandsíli snertir hún undirstöðu margra nytjastofna. Ef hún étur síld eða þorskfiska er hún komin beint inn í auðlindir íslensks sjávarútvegs. Það er ekki hægt að meðhöndla það sem aukaatriði. Röng spurning leiðir til rangrar stjórnar Stjórnsýslan spyr fyrst og fremst: hversu margar hrefnur má veiða án þess að skaða hrefnustofninn? Sú spurning er of þröng. Rétta spurningin er: hversu marga stóra afræningja á íslenska vistkerfið að bera þegar þeir éta úr sama lífmassa og nytjastofnar, sjófuglar og íslenskt atvinnulíf byggja á? Því hefur Hafró ekki svarað nægjanlega. Núverandi kerfi metur áhættu af veiðum en vanmetur áhættu af aðgerðaleysi. Það metur hættuna á því að maðurinn taki of mikið en horfir framhjá hættunni á því að hvalastofnar taki of mikið úr vistkerfinu. Aðgerðarleysi er líka ákvörðun Í vistkerfi sem er undir áhrifum loftslagsbreytinga, sveiflna í loðnu, breytinga á sandsíli og makríl og aukinnar samkeppni milli tegunda er ekki ónæmt fyrir aðgerðaleysi. Að veiða ekki hrefnu, eða aðrar hvalategundir, er líka stjórnunarákvörðun. Hún hefur líffræðilegar og efnahagslegar afleiðingar. Það að veiða ekki hvali er ekki sú náttúrvernd sem margir gætu haldið. Þar með eru stjórnvöld að velja eitt vistkerfisástand fram yfir annað. Þau veita stórum vistfræðilegum afræningja aukna vernd án þess að horfast í augu við hvað það kostar fiskistofna, sjávarútveg og íslenska hagsmuni. Íslenskir hagsmunir sitja eftir Það sem við höfum núna er stjórnsýsla sem virðist hræddari við gagnrýni á hvalveiðar en ójafnvægi í vistkerfinu. Hún tekur of mikið tillit til alþjóðlegrar ímyndar og of lítið tillit til íslenskra hagsmuna. Varúðarreglan er notuð sem bremsa á nýtingu en ekki sem tæki til að skilja heildaráhættu. Þetta skaðar íslenska hagsmuni og vísindalega umræðu því hún verður þröng og varnarsinnuð. Það skaðar sjávarútveg, því stórir neytendur í fæðukeðjunni eru ekki teknir nægilega inn í auðlindabókhaldið. Það skaðar traust á Hafró, því villur og óskýr ráðgjöf grafa undan trúverðugleika. Hlutverk Hafrannsóknarstofnunar er að leggja fram heildstæða, gagnsæja og skynsama vísindaráðgjöf um vistkerfið allt. Það þýðir að það verður að taka hvali með í reikninginn og horfa á þá eins og þeir eru. Nefnilega stórir afræningjar, stórir neytendur og hluti af samkeppni um lífmassa hafsins. Það er ekki nóg að telja hvalinn. Það þarf líka að reikna með því sem hann étur. Varúð sem hefur misst áttavitann Ef Ísland ætlar að byggja sjávarútveg framtíðarinnar á vistkerfisnálgun verður að hætta að reikna aðeins til hálfs. Við getum ekki haft kerfi þar sem fiskurinn er mældur, vigtaður, kvótasettur og takmarkaður niður í smæstu einingu á meðan hvalir fá að éta úr sama kerfi án þess að afrán þeirra hafi raunverulega þýðingu. Það er ekki sjálfbærni. Það er ekki vísindaleg stjórnun. Það er ekki íslensk hagsmunagæsla. Það er varúð sem hefur misst áttavitann. Höfundur er forstjóri Bláa hagkerfisins ehf. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Svanur Guðmundsson Mest lesið 75 milljóna rangfærsla í samþykktum ársreikningi Krabbameinsfélags Íslands Einar Páll Svavarsson Skoðun Smekkvísi er ekki samningsbundin Ásgeir Guðmundsson Skoðun Misfarir í Mosfellsbæ Sólveig Anna Jónsdóttir Skoðun Af morðingjum og mannkostum Svala Magnea Ásdísardóttir Skoðun Gnexit Viðreisnar Bergþór Ólason Skoðun Myndin sem þú mátt ekki sjá Anna Laufey Stefánsdóttir,Kristín Ólöf Grétarsdóttir Skoðun Peningaglýjuórar meiða íslenskan almenning -Opið bréf til Kristrúnar Frostadóttur forsætisráðherra Örn Karlsson Skoðun Þegar forstjórinn smíðar hugbúnaðinn sjálfur Ása Rún Björnsdóttir,Óttar Guðmundsson Skoðun Pólitískt fleipur landlæknis Bjarni Freyr Guðmundsson Skoðun Innleiðing nýs einkunnakerfis – Sjaldan verður flýtiverk til fagnaðar Erna Ingibjörg Pálsdóttir Skoðun Skoðun Skoðun Þegar íslenskt auglýsingafé leitar til erlendra tæknirisa Hólmgeir Baldursson skrifar Skoðun Námsmat í 10. bekk skólaárið 2026-2027 Gauti Eiríksson skrifar Skoðun Þjáist þú af staðreyndagreddu? Þórdís Hólm Filipsdóttir skrifar Skoðun Landakortið minnkar ekki þótt lögreglustjórum fækki Lárus Bjarnason skrifar Skoðun Komdu með nestispeningana Sigvaldi Einarsson skrifar Skoðun Ósýnilegt fólk og sýnileg ábyrgð Þorvaldur Óttar Guðlaugsson skrifar Skoðun Bókun 35 - þarf virkilega að breyta stjórnarskránni? Gunnar Ármannsson skrifar Skoðun „Ný“ markmið í grunnskólum duga ekki Þórgunnur Reykjalín Vigfúsdóttir skrifar Skoðun Pólitískt fleipur landlæknis Bjarni Freyr Guðmundsson skrifar Skoðun Ákall um samstarf – Ekki bara samtal Anton Kári Halldórsson skrifar Skoðun Hvort á ég að kenna eftir fyrirmælum aðalnámskrár eða eftir getustigi nemandans? Eyjólfur Pétur Hafstein skrifar Skoðun Myndin sem þú mátt ekki sjá Anna Laufey Stefánsdóttir,Kristín Ólöf Grétarsdóttir skrifar Skoðun Áttu áttu? Lilja Rannveig Sigurgeirsdóttir skrifar Skoðun Þegar sannleikurinn þjónar ekki óttanum Helena Jónsdóttir skrifar Skoðun Peningaglýjuórar meiða íslenskan almenning -Opið bréf til Kristrúnar Frostadóttur forsætisráðherra Örn Karlsson skrifar Skoðun Íslenskt táknmál í stefnu – en hvar eru aðgerðirnar? Sigurlín Margrét Sigurðardóttir skrifar Skoðun Ísland sé frjálst, meðan sól gyllir haf Indriði Þröstur Gunnlaugsson skrifar Skoðun Misfarir í Mosfellsbæ Sólveig Anna Jónsdóttir skrifar Skoðun Gilda lögin bara þegar okkur hentar? Sandra Hlín Guðmundsdóttir skrifar Skoðun Handbók MAGA hreyfingarnar: Flood the zone with shit Guðni Freyr Öfjörð skrifar Skoðun Smekkvísi er ekki samningsbundin Ásgeir Guðmundsson skrifar Skoðun „Nýjasta tíska, nýjasta tíska –allt innan fjárheimilda!“ Agla Þyri Kristjánsdóttir skrifar Skoðun Reykjavík á ekki að gera allt ein Björg Magnúsdóttir skrifar Skoðun Gnexit Viðreisnar Bergþór Ólason skrifar Skoðun Ósýnilega fólkið Kristbjörg Þórisdóttir skrifar Skoðun Rammaáætlun: Tvær tillögur – tvenns konar vinnubrögð Katrín Helga Hallgrímsdóttir skrifar Skoðun Sama krónutöluhækkun í fjárlagafrumvarpinu – gjörólíkt högg fyrir heimili Þorvaldur Daníelsson skrifar Skoðun Þegar tíminn skiptir öllu Halla Þorvaldsdóttir skrifar Skoðun Tuttugu ár í þjónustu samfélagsins Árni Hrannar Haraldsson skrifar Skoðun Þegar forstjórinn smíðar hugbúnaðinn sjálfur Ása Rún Björnsdóttir,Óttar Guðmundsson skrifar Sjá meira
75 milljóna rangfærsla í samþykktum ársreikningi Krabbameinsfélags Íslands Einar Páll Svavarsson Skoðun
Peningaglýjuórar meiða íslenskan almenning -Opið bréf til Kristrúnar Frostadóttur forsætisráðherra Örn Karlsson Skoðun
Innleiðing nýs einkunnakerfis – Sjaldan verður flýtiverk til fagnaðar Erna Ingibjörg Pálsdóttir Skoðun
Skoðun Hvort á ég að kenna eftir fyrirmælum aðalnámskrár eða eftir getustigi nemandans? Eyjólfur Pétur Hafstein skrifar
Skoðun Peningaglýjuórar meiða íslenskan almenning -Opið bréf til Kristrúnar Frostadóttur forsætisráðherra Örn Karlsson skrifar
Skoðun Íslenskt táknmál í stefnu – en hvar eru aðgerðirnar? Sigurlín Margrét Sigurðardóttir skrifar
Skoðun Sama krónutöluhækkun í fjárlagafrumvarpinu – gjörólíkt högg fyrir heimili Þorvaldur Daníelsson skrifar
75 milljóna rangfærsla í samþykktum ársreikningi Krabbameinsfélags Íslands Einar Páll Svavarsson Skoðun
Peningaglýjuórar meiða íslenskan almenning -Opið bréf til Kristrúnar Frostadóttur forsætisráðherra Örn Karlsson Skoðun
Innleiðing nýs einkunnakerfis – Sjaldan verður flýtiverk til fagnaðar Erna Ingibjörg Pálsdóttir Skoðun