Hefnist fyrir klúðrið á Old Trafford Sindri Sverrisson skrifar 20. maí 2026 12:32 Leikmenn Nottingham Forest botnuðu að sjálfsögðu ekkert í ákvörðun Salisbury. Getty Dómarinn sem gerði mistökin afdrifaríku í 3-2 sigri Manchester United gegn Nottingham Forest á Old Trafford á sunnudaginn fær ekki að dæma í lokaumferð ensku úrvalsdeildarinnar á sunnudaginn.
Dómarinn Michael Salisbury leyfði öðru marki United í leiknum að standa, þegar Matheus Cunha kom liðinu í 2-1 á 55. mínútu, rétt eftir að Forest hafði jafnað metin. Flestir sáu þó að í aðdragandanum fékk Bryan Mbeumo boltann í höndina, og hvorki Cunha né aðrir í liði United höfðu fyrir því að fagna, en þó að VAR-dómari leiksins fengi Salisbury til að skoða atvikið á myndbandi ákvað hann á endanum að láta markið standa. Cunha virtist varla trúa þessu en fagnaði svo vel og innilega. VAR-dómarar leiksins töldu að með því að fá boltann í höndina hefði Mbeumo tekist að stjórna boltanum áður en að skot hans að marki var varið og frákastið endaði hjá Cunha sem svo skoraði. Þar með hefði átt að dæma hendi á Mbeumo. Salisbury taldi hins vegar að um óviljaverk hafi verið að ræða og fór gegn ráðleggingum VAR-dómaranna. Ensku dómarasamtökin, PGMOL, hafa síðan viðurkennt að það hafi verið mistök að dæma ekki víti og nú þarf Salisbury að súpa seyðið af því. Þetta var aðeins í sautjánda sinn á sjö leiktíðum, og í fjórða sinn á þessari leiktíð, sem dómari fer gegn ráðleggingum VAR eftir skoðun á skjá. Sigur United tryggði liðinu endanlega 3. sæti deildarinnar, fyrir lokaleik liðsins á tímabilinu sem er við Brighton á sunnudaginn, en Forest er í 16. sæti og getur núna í besta falli náð 15. sætinu af Crystal Palace með sigri gegn Bournemouth.
Enski boltinn Mest lesið Reyndu að brjótast inn í hús Yamals Fótbolti De la Fuente: „Við teljum okkur ósigrandi“ Fótbolti Leikmenn Argentínu með borða eftir leik: „Falklandseyjar eru argentínskar“ Fótbolti Brjóta lög fótboltans með sýningunni í hálfleik Fótbolti Messi allt í öllu þegar Argentína fór í úrslitaleikinn Fótbolti Íslensku strákarnir í átta liða úrslitin Körfubolti FIFA rukkar tíu þúsund krónur fyrir að mæta á blaðamannafund Fótbolti „Miður mín fyrir hönd allra“ Fótbolti „Mig dreymdi þetta“ Fótbolti „Stjörnuhrap“ í frönsku miðlunum Fótbolti Fleiri fréttir Scaloni: Argentína ekki að spila eins illa og fólk segir Carragher vill að enska liðið nýti sér Messi Youri Tielemans genginn til liðs við Manchester United City tilbúið að greiða 85 milljónir punda fyrir samherja Hákonar Brighton aldrei borgað jafn mikið fyrir leikmann „Það er hluti af töfrunum við að vera stjóri Liverpool“ Xabi Alonso vill halda Fernandez hjá Chelsea Nýr stjóri Liverpool segist þurfa fleiri leikmenn United kaupir Andrey Santos frá Chelsea Villa að stela Manzambi af Newcastle Éderson ekki á leiðinni en Tielemans í viðræðum við United Ken Bates látinn Fyrrverandi stjarna í enska boltanum handtekin Önnur risastór breyting á þeim sem stýra Liverpool Manchester City kaupir efnilegan markvörð Stjarna úr ensku úrvalsdeildinni keyrði niður konu Newcastle yngir upp á sumri breytinga Arsenal fær Meslier frá Leeds Amorim viðurkenndi mistök og bað stuðningsmenn United afsökunar Fyrsti leikurinn er auðvitað á móti Xabi Alonso Haaland orðinn stærri en Manchester City Ein stærstu félagaskiptin í sögu kvennaknattspyrnunnar Bruno Guimaraes tilkynnir Newcastle að hann vilji fara til Arsenal Manchester United kaupir annan Brassa á miðjuna Arbeloa nýr stjóri Fulham og vill taka leikmenn með sér frá Real Madrid Hildur til Newcastle Sleit krossband í sigrinum gegn Bandaríkjunum Newcastle ætlar að nota Tonali-peningana til að kaupa eina af ungu stjörnum HM Kaupa George frá Chelsea Til Tottenham fyrir sautján milljarða Sjá meira