Viðskipti innlent

Samnings­staða kaup­enda hefur styrkst jafnt og þétt

Hólmfríður Gísladóttir skrifar
HMS telur möguleika til þess að vinna á „íbúðaskuldinni“ á þessu ári.
HMS telur möguleika til þess að vinna á „íbúðaskuldinni“ á þessu ári. Vísir/Anton Brink

Kaupsamningum fjölgaði milli mánaða í mars en voru færri en á sama tíma í fyrra. Fasteignasalar segja markaðinn ennþá kaupendamarkað og þá er spáð framhaldandi raunverðslækkunum á næsta ári.

Þetta er meðal þess sem kemur fram í nýrri mánaðarskýrslu Húsnæðis- og mannvirkjastofnunar

Alls voru 997 kaupsamningar gefnir út í mars á landinu öllu, samanborið við 807 í febrúar. Um er að ræða hefðbundna árstíðarsveiflu þegar vorar. Kaupsamningar í mars í fyrra voru 1.113.

Íbúðaverð hefur hækkað um 2,15 prósent á síðastliðnum tólf mánuðum, á sama tíma og verðbólga mældist 5,2 prósent. Íbúðaverð hefur þannig lækkað um 2,94 prósent að raunvirði undanfarið ár. Greiningadeildir bankanna spá áframhaldandi lækkunum á næsta ári en gera ráð fyrir að íbúðaverð fari að hækka að raunvirði á árinu 2028.

Samkvæmt könnun meðal fasteignasala telja þeir samningstöðu kaupenda hafa styrkst jafnt og þétt, þar sem framboð íbúða hefur aukist og fleiri íbúðir seljast undir auglýstu verði. Á fyrstu fjórum mánuðum ársins var auglýst verð lækkað á 150 nýjum íbúðum, eða á 38 íbúðum á mánuði að meðaltali. Heildarfjöldinn var 320 íbúðir árið 2025, eða 27 íbúðir að meðaltali. Þróunin hefur verið svipuð hvað varðar eldri íbúðir.

Alls voru 3.048 nýjar íbúðir auglýstar til sölu á fyrsta ársfjórðungi en 446 seldust. Það jafngildir 15 prósentum auglýstra íbúða eða einni af hverjum sjö. Enn er meiri eftirspurn eftir eldri íbúðum.

Fleiri seljendur lækka ásett verð en þeir gerðu áður.Vísir/Vilhelm

Samkvæmt mánaðarskýrslu HMS hefur dýrum fjölbýlisíbúðum fjölgað mikið en í lok mars voru 220 slíkar íbúðir skráðar til sölu á 150 milljónir króna eða meira. Þá segir að meiri eftirspurn sé eftir minni íbúðum.

„Á byggingarsvæðum eins og Heklureitnum, Orkureitnum og í Stefnisvogi í Reykjavík eru margar af minnstu íbúðum seldar á meðan stærri íbúðir hafa selst verr,“ segir í skýrslunni.

Tækifæri til að vinna á íbúðaskuldinni

Hvað varðar leigumarkaðinn hækkaði vísitala leiguverðs um 0,7 prósent í apríl og þá voru rúmlega 600 færri leigusamningar gerðir á fyrstu fjórum mánuðum ársins samanborið við 2025. Nýskráðum samningum fækkaði á milli ára, þrátt fyrir að almenn skráningarskylda leigusamninga hafi tekið gildi um áramótin.

Tímabundnir leigusamningar eru algengari en ótímabundnir en leiguverð er lægra í ótímabundnum samningum. 

„Hlutfallslegur munur á verði er mestur í samningum um íbúðir á vegum einstaklinga (12%) en minnstur í samningum um íbúðir á vegum óhagnaðardrifinna leigufélaga (-4%). Í greiningunni er miðað við 2 til 5 herbergja íbúðir sem eru á bilinu 40 til 180 fermetrar að stærð.“

Húsnæðis- og mannvirkjastofnun segir að sökum hóflegrar fólksfjölgunar á síðasta ári, samhliða kröftugri íbúðauppbyggingu, hafi tekist að vinna lítillega á uppsafnaðri íbúðaskuld.

„HMS hefur áður fjallað um áætlaða íbúðaskuld á Íslandi, en hún safnaðist aðallega upp á árunum 2017-2019 þegar fullorðnum íbúum fjölgaði talsvert hraðar en íbúðum. HMS áætlar gróflega að íbúðaskuldin geti numið á bilinu 6 til 14 þúsund íbúðum,“ segir í skýrslunni.

Þá segir að tækifæri gætu skapast á þessu ári til að vinna enn frekar á íbúðaskuldinni, haldist fólksfjölgun áfram hófleg og íbúðauppbygging kröftug.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×