„Hvað hafa þau að fela?“ Rafn Ágúst Ragnarsson skrifar 24. maí 2026 12:36 Kristrún Frostadóttir forsætisráðherra segist vera svokölluð „já, kannski“-manneskja. Vísir/Vilhelm Kristrún Frostadóttir forsætisráðherra segist vera „já, kannski“-manneskja hvað aðild Íslands að Evrópusambandinu varðar. Hún myndi aldrei tala fyrir samþykkt óásættanlegs samnings.
Forsætisráðherra ræddi við Pál Magnússon á Sprengisandi á Bylgjunni í morgun þar sem Evrópumálin komu eðlilega til tals. Þjóðaratkvæðagreiðsla um framhald aðildarviðræðna er fyrirhuguð 29. ágúst næstkomandi. Páll bar það undir Kristrúnu að málaflokkarnir sem ljóst er að mest verður deilt um í mögulegum aðildarviðræðum: sjávarútvegs-, landbúnaðar- og orkumálin yrðu tekin fyrst fyrir. Næðist ekki ásættanlegt samkomulag um þau mál yrði tilgangslaust að halda viðræðum áfram. Myndi aldrei tala fyrir óásættanlegum samningi Forsætisráðherra segir þjóðina sammála um að afsala sér ekki auðlindum láðs og lagar. Það sé ekki bitbeinið. „Ég hef sagt að við eigum að ráðast á garðinn þar sem hann er hæstur. Við eigum að fá úr þessu skorið. Ég er „já, kannski“-manneskja. Ég hef sagt það hátt og snjallt. Ég verð kannski þar til ég fæ að vita hvað felst í þessu. Ég tel mig hins vegar ekki vita hvað það er sem við getum fengið.“ „Ég hefði engan áhuga á því að berjast fyrir samþykkt á samning sem myndi ekki uppfylla eðlilegar kröfur þegar kemur að auðlindamálum. ég hef verið mjög afgerandi hvað það varðar. Þó að verði lagður fram samningur, ef hann er óásættanlegur myndi ég aldrei tala fyrir honum. Ég myndi hvorki hafa sannfæringu fyrir því né væri það skynsamlegt,“ segir hún. Verið sé að láta eins og átakasvæðið sé allt annars staðar en það er. „Ég held að þessi umræða núna og þessi barátta, myndu sumir segja, snúist ekki um skiptar skoðanir okkar á hvað við getum fengið í sjávarútvegsmálum. Ég held að það sé yfirgnæfandi stuðningur við það að við förum í ákveðna vegferð hvað það varðar. Fólk er almennt sammála um hvað það vill sjá í sjávarútvegs- og landbúnaðarmálum í þessu. Við erum sammála um það. Það sem held ég að baráttan sé um er samkeppnismálin, það eru fákeppnismálin,“ segir hún. „Ég held að þessi barátta snúist ekki um hvort við fáum undanþágur, hver staða orkumála hérna verður eða hver staða sjávarútvegsfyrirtækjanna verður. Þetta snýst um hverjir ráða mestu hérna á Íslandi. Hverjir hafa ítök hérna á Íslandi. Það sem er að birtast í umræðunni er að fólk vill ekki einu sinni leyfa þjóðinni að sjá hvað er í boði. Ég bara spyr: hverra hagsmuna er verið að gæta, hvað hafa þau að fela, af hverju má þjóðin ekki bara fá að sjá hvað þeim býðst?“ spyr Kristrún Frostadóttir forsætisráðherra.
Þjóðaratkvæðagreiðsla um ESB-viðræður Ríkisstjórn Kristrúnar Frostadóttur Mest lesið Lögregluaðgerð á Laugavegi Innlent Sérsveitin bregst við „alvarlegu atviki“ á Kársnesi Innlent Meintur byssumaður 21 árs góðkunningi leyniþjónustunnar Innlent „Aulalegasti bófinn í bænum“ Innlent Ofurhljóðfrárri eldflaug skotið að Úkraínu Erlent „Hvað hafa þau að fela?“ Innlent Bandarískir sendimenn mælist til þess að Trump sé hunsaður Erlent Enn öðru flugi aflýst Innlent „Hamast í því að koma í veg fyrir að Miðflokkurinn komist að“ Innlent Skjálftahrina úti af Reykjanesi Innlent Fleiri fréttir Sérsveitin bregst við „alvarlegu atviki“ á Kársnesi „Hamast í því að koma í veg fyrir að Miðflokkurinn komist að“ „Hvað hafa þau að fela?“ Enn öðru flugi aflýst Lögregluaðgerð á Laugavegi Sprengisandur: Páll stýrir þéttpökkuðum þætti Meintur byssumaður 21 árs góðkunningi leyniþjónustunnar Skjálftahrina úti af Reykjanesi Maðurinn er fundinn „Aulalegasti bófinn í bænum“ Hefja formlegar viðræður og senda væna pillu í leiðinni D og B endurnýja heitin í Fjarðabyggð Tómas tjáir sig um dóminn Á sýklalyfjum í 120 daga: „Þetta er enginn brandari“ Gæti dregið til tíðinda á næstu dögum eða stundum Sérsveitarmenn flugu til Ísafjarðar vegna vopnaðs manns „Einhvers konar toppur á ísjakanum“ Tvö mál ráði úrslitum Icelandair aflýsir fimm brottförum í dag Almennur borgari veitti bílnum eftirför Óttast um framtíð dóttur sinnar þegar þau geta ekki lengur hjálpað Flúðu eftir að hafa ekið á gangandi vegfaranda Tulsi Gabbard lætur af embætti Allt veltur á því hvort handaband teljist handsal Námsbækur barnanna búnar til „löngu áður en mamma og pabbi fæddust“ „Þetta hjól er næstum alltaf tómt“ Íslendingur vann 336 milljónir króna Sektaður fyrir að vera á nagladekkjum Hildur vilji Einar í meirihluta hvernig sem fer Var í geðrofi þegar Vinafélag Íslands-Norður-Kóreu var stofnað Sjá meira