Þjóðar­at­kvæða­greiðsla um ESB-viðræður

Þjóðar­at­kvæða­greiðsla um ESB-viðræður

Laugardaginn 29. ágúst 2026 fer fram þjóðaratkvæðagreiðsla þar sem kosið verður um hvort hefja skuli á ný viðræður um aðild Íslands að Evrópusambandinu (ESB).

Fréttir í tímaröð

Fréttamynd

Hitnar í kolunum: Já og nei í Pallborði

Fréttastofa Vísis verður reglulega með Pallborð fram að þjóðaratkvæðagreiðslunni um hvort Ísland eigi að hefja á ný aðildarviðræður við Evrópusambandið. Fyrsta Pallborðið fer fram klukkan 14 í dag þar sem fulltrúar tveggja já-hreyfinga og tveggja nei-hreyfinga takast á um helstu álitaefni Evrópuumræðunnar.

Innlent
Fréttamynd

Allt gert til að stöðva birtinguna

Vorið 2009 tók við ríkisstjórn Vinstri grænna og Samfylkingarinnar, í kjölfar bankahrunsins. Eitt umdeildasta verkefni hennar varð umsókn Íslands um aðild að Evrópusambandinu. Jón Bjarnason sat í stjórninni sem sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra, þótt hann væri sjálfur eindreginn andstæðingur aðildar.

Innlent
Fréttamynd

Það er jóker í spilinu

Skoðanakannanir síðustu vikna virðast benda til þess að sífellt fleiri kjósendur séu búnir að gera upp hug sinn fyrir komandi þjóðaratkvæðagreiðslu eftir því sem hlutfall óákveðinna fer lækkandi. Þá virðist einnig sem hægt og rólega saxist á það forskot sem já-hliðin naut þegar mælingar hófust fyrst eftir að tilkynnt var um þjóðaratkvæðið.

Innlent
Fréttamynd

Sér­staða Ís­lands úti­lokar að líkindum aðild að ESB

Um samningsmarkmið í hugsanlegum aðildarviðræðum við ESB verður að tala opið og skýrt um sjávarútvegsmálin. Dæmi um skort á þessu er að finna í meirihlutaáliti utanríkismálanefndar - það er fulltrúa ríkisstjórnarflokkanna - á tillögu utanríkisráðherra um að haldið verði þjóðaratkvæði um aðildarviðræður við ESB.

Umræðan
Fréttamynd

Velti allt á því hverjir mæti á kjör­stað

Miðað við nýjustu kannanir bendir allt til þess að þátttakan sjálf muni skipta mestu máli í komandi þjóðaratkvæðagreiðslum að mati prófessors í stjórnmálafræði. Yngra fólk hallist meira að já-inu en sé sömuleiðis talið ólíklegra til að mæta á kjörstað.

Innlent
Fréttamynd

Bændur í bar­áttu­hug á leið í her­ferð um landið

Bændur búa sig undir baráttu gegn aðild Íslands að Evrópusambandinu. Búnaðarþing hefur hafnað því að aðildarviðræður verði teknar upp að nýju og á næstu dögum hefja Bændasamtökin fundarherferð um landið til að kynna sinn málstað.

Innlent
Fréttamynd

Enginn mark­tækur munur á jáurum og neiurum

Ekki er marktæktur munur á jáurum og neiurum samkvæmt nýjum þjóðarpúlsi Gallup sem gefinn var út nú í dag. Ögn fleiri eru hlynnt áframhaldandi viðræðum en munurinn er tölfræðilega minniháttar.

Innlent
Fréttamynd

Sögu­sagnir farið af stað þegar hann sást á fundinum

„Ég heyri utan að mér, að þar sem ég hafi verið staðinn að verki við að hlýða á erindi Dr Carls Baudanbacher á fundi í gamla Sjallanum, hljóti ég að vera genginn í björg andstæðinga Evrópusambandsaðildar. Þá er illa fyrir okkur komið, ef menn mega ekki hlusta á meinta andstæðinga, án þess að kalla yfir sig fordæmingu af einhverju tagi.“

Innlent
Fréttamynd

Bændur segja nei

95 prósent fulltrúa á Bændaþingi hafa samþykkt ályktun þess efnis að Búnaðarþing leggist gegn aðild Íslands að Evrópusambandinu og þar með að hefja á ný viðræður um aðild.

Innlent
Fréttamynd

„Þjóðin á rétt á að vita“

Guðrún Hafsteinsdóttir, formaður Sjálfstæðisflokksins, segir það skýrt eftir viðtal við utanríkisráðherra í Íslandi í dag að ríkisstjórnin vilji fyrst fá umboð þjóðarinnar og síðan ákveða endanleg samningsmarkmið. Guðrún segist treysta þjóðinni.

Innlent
Fréttamynd

„Ég læt ekki stilla mér svona upp við vegg“

Utanríkisráðherra segist ekki ætla að láta stilla sér upp við vegg þegar hún var spurð að því hvort hún myndi ráðleggja þjóðinni að hafna aðildarsamningi, ef ekki fáist undanþágur í sjávarútvegi, þrátt fyrir þann mikla öryggislega ávinning sem hún telur að felist í aðild að Evrópusambandinu. 

Innlent
Fréttamynd

Stein­grímur segir nei vegna reynslu af fyrri aðildar­viðræðum

Steingrímur J. Sigfússon, fyrrverandi formaður Vinstri grænna, ætlar að greiða atkvæði gegn áframhaldandi aðildarviðræðum við Evrópusambandið þann 29. ágúst næstkomandi. Ástæðan sé meðal annars reynsla hans af viðræðunum árið 2009 en að þá hafi hvorki gengið né rekið að ræða undanþágur frá sameiginlegri sjávarútvegsstefnu. 

Innlent
Fréttamynd

For­skot Já-hliðarinnar mælist minna

Forskot Já-hliðarinnar í þjóðaratkvæðagreiðslunni um aðildarviðræður við Evrópusambandið mælist 4,4 prósentustig í nýrri könnun Maskínu. Það mældist 6,2 prósentustig í júní. Breytingin er þó innan skekkjumarka.

Innlent
Fréttamynd

„Ég get ekki orða bundist“

Ingibjörgu Davíðsdóttur, þingmanni Miðflokksins og fyrrverandi sendiherra, þykir utanríkisráðuneytið fara yfir strikið með því að deila grein sem utanríkisráðherra ritar í Bændablaðið í dag. Ráðuneytið bendir henni á að löng hefð sé fyrir því að skrifum utanríkisráðherra sé deilt á miðlum ráðuneytisins.

Innlent
Fréttamynd

Sjá-liðar þekkjast boðið sem Þor­gerður af­þakkaði

Jónas Hagan og Hjálmar Vilhjálmsson, stjórnarmenn í samtökunum Sjá, munu mæta þeim Guðlaugi Þór Þórðarsyni og Diljá Mist Einarsdóttur, þingmönnum Sjálfstæðisflokksins, í kappræðum um komandi þjóðaratkvæðagreiðslu á sunnudag. Utanríkisráðherra var boðið að taka þátt í kappræðunum en þekktist ekki boðið.

Innlent
Fréttamynd

„Þú færð mig ekki til að segja já við þessu“

Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir, utanríkisráðherra, verður til viðtals í Ísland í dag strax að loknum kvöldfréttum Sýnar þar sem þjóðaratkvæðagreiðslan verður til umræðu. Viðtalið verður aðgengilegt öllum landsmönnum.

Innlent
Fréttamynd

Krist­rún þurfi að stíga upp – Ólafur beri á­byrgð á Nei-inu

Össur Skarphéðinsson, fyrrverandi utanríkisráðherra og formaður Samfylkingarinnar, segir Já-hreyfinguna hafa farið hægt af stað og skorta skýra leiðtoga. Traustur sigur náist ekki nema Kristrún Frostadóttir forsætisráðherra beiti sér af fullum þunga. Á sama tíma hafi Ólafur Ragnar Grímsson orðið nánast óskoraður leiðtogi Nei-hreyfingarinnar og bundið pólitíska arfleifð sína við úrslitin.

Innlent
Fréttamynd

Norskir nei-sinnar bæta við sig

Norðmenn fylgjast grannt með þjóðaratkvæðagreiðslunni á Íslandi um hvort Ísland eigi að hefja á ný aðildarviðræður við Evrópusambandið. Ný skoðanakönnun sýnir að meirihluti Norðmanna er enn andvígur því að sækja aftur um aðild að sambandinu.

Erlent