Mætt til Grænlands með pyngju fulla af peningum Agnar Már Másson skrifar 6. september 2026 14:05 Mette Frederiksen, forsætisráðherra Danmerkur, (t.v.) ásamt Jens-Frederik Nielsen, formanni grænlansku landstjórnarinnar (fyrir miðju), og Ursulu von der Leyen, forseta framkvæmdastjórnar Evrópusambandsins (t.h.). AP Bandaríkjaforseti er ekki einn um það að líta hýru auga til Grænlands. Ursula von der Leyen, forseti framkvæmdastjórnar ESB, er sögð munu í heimsókn sinni í dag boða aukinn fjárstuðning við Grænland. Þetta gerist í skugga hótana Bandaríkjaforseta um að leggja undir sig eyjuna. Erlendir miðlar setja þetta einnig í samhengi við nýafstaðna atkvæðagreiðslu þar sem Íslendingar höfnuðu aðildarviðræðum við Evrópusambandið.
Ursula von der Leyen, forseti framkvæmdastjórnar ESB, heimsækir landið í dag ásamt Mette Frederiksen, forsætisráðherra Danmerkur. Þær lentu í höfuðborginni Nuuk upp úr klukkan 13 að íslenskum tíma en heimsóknin stendur yfir í tvo daga. Þær munu þar funda með Jens-Frederik Nielsen, formanni grænlensku landstjórnarinnar. Þau þrjú munu þar undirrita viljayfirlýsingu sem felst í því að styrkja samband ríkjanna, að því er fram kemur í tilkynningu frá danska forsætisráðuneytinu. Þar er haft eftir forsætisráðherranum að heimsóknin sé til marks um þétt samstarf ESB og Grænlands. Beinir Johannesen, lögmaður Færeyja, mun einnig taka þátt í heimsókninni. Trump: Grænland orðið bandarískt árið 2029 Tímasetningin er engin tilviljun að mati Rasmus Leander Nielsen, lektors við Grænlandsháskóla, en í samtali við DR setur hann heimsóknina í samhengi við hótanir Donalds Trump Bandaríkjaforseta um að leggja undir sig Grænland. Í byrjun mánaðar sagði Trump að Grænland myndi í janúar árið 2029 vera undir stjórn Bandaríkjanna, en Grænlendingar hafa ítrekað sagt að framtíð Grænlands eigi að vera í höndum Grænlendinga. Von der Leyen mun þar kynna fjárfestingarpakka fyrir Grænlendinga, segir Mûte B. Egede, utanríkisráðherra Grænlands, í samtali við TV2. Hann segir að samræður Grænlendinga við Bandaríkjamenn um framtíð Grænlands séu þó enn í gangi. 200 milljóna evra pakki Financial Times hefur eftir heimildum að Von der Leyen muni þar tilkynna um 200 milljóna evra (28 ma. kr.) stuðning til Grænlands sem eigi að nýtast í hráefni, endurnýtanlega orku, neðansjávarkappla, gervihnattainnviði og gagnaver. Auk þess fari hluti til grænlensku landstjórnarinnar til að efla stjórnsýslu landsins. FT setur heimsóknina einnig í samhengi við nýafstaðna atkvæðagreiðslu hér á landi, þar sem Íslendingar höfnuðu því að hefja á ný aðildarviðræður við Evrópusambandið með tæplega 53 prósenta meirihluta. Haft er eftir talsmanni Evrópusambandsins að sambandið líti á staðsetningu Grænlendinga sem afar mikilvæga „einkum með tilliti til breytinga á alþjóðasviðinu og í umhverfismálum á norðurslóðum“. ESB hefur þegar úthlutað 225 milljónum evra til Grænlands úr núverandi sameiginlegri fjárhagsáætlun Evrópusambandsins fyrir árin 2021 til 2027. Framkvæmdastjórnin hefur þegar lagt til að tvöfalda þá fjárhæð í næstu úthlutun á árunum 2028 til 2034 og þannig myndi sú úthlutun nema 530 milljónum evra, en það hangir allt á samþykkt fjárhagsáætlunar ESB. Grænlendingar gengu úr Evrópusambandinu, sem þá hét Evrópubandalagið, árið 1982 en það gerðist níu árum eftir að þeir gengu inn í sambandið í samfloti við Dani.
Grænland Hótanir Bandaríkjanna vegna Grænlands Donald Trump Evrópusambandið Þjóðaratkvæðagreiðsla um ESB-viðræður Danmörk Færeyjar Mest lesið Viðreisn heldur starfsfólkinu en Jón fær 1,3 milljónir til þingstarfa Innlent Hafi íhugað að gefast upp síðustu vikur Innlent Maður hnoðaður til lífs í Sundhöllinni Innlent Ísland.is-svindlið bjóði hættunni heim Innlent Saka Ingu um skæting og helberan dónaskap Innlent Lækkar eigin laun Innlent Jarðskjálftinn 5,2 að stærð Innlent Vill funda með Trump og Xi um örlög Úkraínu Erlent Þúsundir hvetja til úttektar og ríkissaksóknari íhugar áfrýjun Innlent Íbúarnir höfðu betur Innlent Fleiri fréttir Fara fram á útgöngubann í nokkrum frönskum borgum Sakaðir um að svelta 190 börn til dauða Hótar að auka viðbúnað á landamærunum Miðflokkurinn fær umboðið Borgir geti sett á útivistarbann: „Nemandi hefur misst höndina“ Prestur lést þegar róðukross féll á hann Senda far til að kanna uppruna Fóbosar Ók viljandi á ástralska þingkonu Vill funda með Trump og Xi um örlög Úkraínu Neyðarlending eftir sprengjuhótun Neitaði að samþykkja afsögn vegna mótmælanna Hvetur til stillingar og boðar aðgerðir Selenskí vilji ekki binda enda á stríðið Fjórir hermenn létust í eldsvoða Ræstingakona læstist óvart í fangaklefa í þrjá daga Hörð átök lögreglu og mótmælenda í París Barn og fullorðinn létu lífið þegar bíl var ekið inn á knattspyrnuvöll Landtökumenn réðust á evrópska erindreka Lögreglan skarst í leikinn á mótmælum í Kaupmannahöfn Setti málningu í matinn og eitraði fyrir hundruðum barna Mótmælendur réðust inn í ráðhúsið í Marseille Alvarlega slösuð eftir skotárás í íþróttahúsi Frestar gildistöku refsiaðgerða gegn Rússlandi Faðir tveggja nemenda í skólanum sá sem skaut árásarmanninn Varaði við nýju Rússlandi Pútíns Ástvinir þeirra sem létust í flugslysinu bíða enn Talsmaður Trumps rekinn eftir brösuglega byrjun Deilt um sönnunargögn og mögulegan vitorðsmann Norðmaður í tuttugu ára fangelsi í Bretlandi vegna leigumorðs Landtökumenn börðu og rændu ljósmyndara Washington Post Sjá meira