Þjóðar­at­kvæða­greiðsla um ESB-viðræður

Fréttamynd

„Af og frá“ að Ís­land fram­selji lög­gjafar­valdið með inn­göngu

Prófessor við lagadeild Háskólans á Akureyri telur að ef verði af inngöngu Íslands í Evrópusambandið sé þjóðin ekki sömuleiðis að framselja löggjafarvaldið. Hins vegar felist í því að framselja dómsvaldið að hluta. Lagalega séð séu undanþágur frá samningnum mögulegar en á sama tíma séu þær háðar pólitískum vilja.

Innlent
Fréttamynd

Upp­taka evru myndi ekki einungis hafa á­hrif á vexti

Prófessor í hagfræði og fyrrverandi viðskiptaráðherra segir kostnaðinn við kortanotkun og aðra greiðslumiðlun vera háan á Íslandi og talsvert hærri en í nágrannalöndum. Telur hann að þessi kostnaður myndi lækka við upptöku evru þar sem Íslendingar myndu njóta hagkvæmni stórrekstrar í ríkari mæli.

Viðskipti innlent
Fréttamynd

„Mikið hitaefni en þessi texti á að vera hlut­laus“

Nýr vefur sem á að auðvelda kjósendum lífið í aðdraganda kosninga um aðildarviðræður við Evrópusambandið hefur litið dagsins ljós. Formaður landskjörstjórnar segir hlutlausar upplýsingar mikilvægar þegar um jafn mikið hitamál sé að ræða. 

Innlent
Fréttamynd

ESB-deilan harðnar eftir um­mæli er­lendra ráða­manna

Hart var tekist á um Evrópusambandið, sjávarútveg og mögulegar sérlausnir Íslands í aðildarviðræðum þegar Guðlaugur Þór Þórðarson, þingmaður Sjálfstæðisflokksins og fyrrverandi utanríkisráðherra, og Dagbjört Hákonardóttir, þingmaður Samfylkingarinnar sem á sæti í utanríkismálanefnd, ræddu málið í Reykjavík síðdegis í dag.

Innlent
Fréttamynd

„Þá sé þetta sem næst úti­lokað“

Innganga Íslands í Evrópusambandið er svo gott sem úr myndinni áður en gengið er til hugsanlegra aðildarviðræðna. Þetta segir framkvæmdastjóri SFS í ljósi þess að forsætisráðherra Hollands tjáði sig um kröfu Íslands um undanþágu frá sjávarútvegsstefnu sambandsins. 

Innlent
Fréttamynd

Segir skoðanir Ólafs Ragnars ekkert of­boðs­lega fréttnæmar

Þorbjörg Sigríður Gunnlaugsdóttir, dómsmálaráðherra, telur nokkuð ófréttnæmt að Ólafur Ragnar Grímsson, fyrrverandi forseti lýðveldisins, tali fyrir því að fólk svari neitandi í þjóðaratkvæðagreiðslu um hvort taka eigi upp aðildarviðræður við Evrópusambandið á ný. Það sé vegna þess að hann hafi á sínum stjórnmálaferli verið hrifnari af því að segja „nei“ en „já“.

Innlent
Fréttamynd

Brugðið yfir því hvernig talað sé um Ólaf Ragnar

Hafrúnu Kristjánsdóttur, prófessor í sálfræði, brá í brún þegar hún skrollaði um Facebook í gær og sá að verið væri að líkja Ólafi Ragnari Grímssyni, fyrrverandi forseta lýðveldisins, við engan annan Adolf Hitler. Hún hvetur fólk til að vera kurteisara í umræðunni nú þegar minna en tveir mánuðir eru til þjóðaratkvæðagreiðslu um hvort taka eigi upp aðildarviðræður við Evrópusambandið á ný.

Innlent
Fréttamynd

Ís­land skari fram úr ESB á flestum mæli­kvörðum

Ísland stendur heilt yfir mjög vel í samanburði við ríki Evrópusambandsins þegar horft er til lífskjara, kaupmáttar, atvinnuþátttöku, framleiðni og opinberra fjármála. Þetta er meðal þess sem fram kemur í nýrri greiningu Konráðs Guðjónssonar hagfræðings hjá Kontext.

Innlent
Fréttamynd

Evru-Ísland óskalandið hve­nær kemur þú?

Ræða Ólafs Ragnars Grímssonar, fyrrverandi forseta á stofnfundi Áfram Ísland, samtök sem berjast fyrir Nei-i í komandi þjóðaratkvæðagreiðslu um hvort taka eigi upp aðildarviðræður við Evrópusambandið á ný, þykir á sumum bæjum einhver mesta þrumuræða sem haldin hefur verið á Íslandi.

Innlent
Fréttamynd

„Þetta er eins og á tón­listar­há­tíð“

Haraldur Ólafsson, formaður Heimssýnar, sótti stofnfund samtakanna Áfram Ísland í gær. Bæði félög munu tala fyrir málstað nei-sinna í aðdraganda þjóðaratkvæðagreiðslu um aðildarviðræður við ESB. Haraldur fagnar stofnun samtakanna: „Þetta er algjörlega dásamlegt, bestu tíðindi vikunnar.“

Innlent
Fréttamynd

„Enginn búið til fleiri þjóðar­at­kvæða­greiðslur en ég“

Fjölsóttur stofnfundur samtakanna Áfram Ísland fór fram síðdegis. Um átta hundruð manns sóttu fundinn og var húsfyllir var í Sjálfstæðissalnum við Austurvöll. Samkvæmt fyrsta ræðumanni og fundarstjóra, Halldóri Benjamín Þorbergssyni, hafa á þriðja þúsund skráð sig í samtökin.

Innlent
Fréttamynd

„Hver vill ganga í gjald­þrota ríkja­sam­band?“

„Hver vill ganga í gjaldþrota ríkjasamband?“ spyr Kristján Loftsson, eigandi Hvals ehf., í viðtali við breska blaðið The Telegraph. Blaðið slær því upp að ríkisstjórn Íslands sé tilbúin til að banna hvalveiðar til að auðvelda inngöngu í ESB. Ísland sé eitt þriggja landa, auk Noregs og Japans, sem enn geri slíkt eftir að Alþjóðahvalveiðiráðið lagði bann við hvalveiðum árið 1986.

Innlent
Fréttamynd

Enda­laust þvaður gæti fælt kjós­endur frá

Almannatengill segir að ef upplýsingar um þjóðaratkvæðagreiðslu um aðild Íslands að Evrópusambandinu séu óskýrar eða ef á reiki sé um hvað kosið er geti það leitt til aðgerðarleysis að hálfu kjósenda. 

Innlent
Fréttamynd

Guð­laugur segir Þor­gerði á hröðum flótta

Guðlaugur Þór Þórðarson alþingismaður telur einsýnt að Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir utanríkisráðherra veigri sér við að mæta sér í kappræðum um þjóðaratkvæðagreiðsluna um aðildarviðræður við ESB sem fram eiga að fara í lok ágústmánaðar.

Innlent
Fréttamynd

Þor­gerður Katrín mun ekki mæta Gulla Þór

Gunnlaugur Jónsson, sem er aðalsprautan í Paradigm, hafði boðið Þorgerði Katrínu Gunnarsdóttur utanríkisráðherra og Guðlaugi Þór Þórðarsyni fyrrverandi utanríkisráðherra til kappræðna um þjóðaratkvæðagreiðsluna 29. ágúst næstkomandi. Nú liggur fyrir að Þorgerður kemur því ekki við að mæta.

Innlent
Fréttamynd

„Skráningum rignir inn“

Áfram Ísland er ný hreyfing sem vill berjast gegn fullri aðild að Evrópusambandinu. Stofnfundur fer fram á mánudag. Halldór Benjamín Þorbergsson, einn stofnfélaga, segir að þó svo að baráttan fari fram um hásumar skynji hann mikinn áhuga. Skráningum rigni inn. Það sé ábyrgð þjóðar að kynna sér málið fyrir kosningar í ágúst.

Innlent
Fréttamynd

Stefnt á kapp­ræður milli utan­ríkis­ráðherra

Gunnlaugur Jónsson, sem er aðalsprautan í Paradigm, hefur boðið utanríkisráðherra, Þorgerði Katrínu Gunnarsdóttur og fyrrverandi utanríkisráðherra, Guðlaugi Þór Þórðarsyni, til kappræðna um þjóðaratkvæðagreiðsluna 29. ágúst næstkomandi. Miðað er við að kappræðurnar fari fram 14. ágúst.

Innlent
Fréttamynd

„Við verðum bara að horfast í augu við smæð okkar“

Sigurjón Þórðarson, þingmaður Flokks fólksins og formaður fjárlaganefndar, segist ætla að greiða atkvæði gegn framhaldi aðildarviðræðna við Evrópusambandið í ágúst. Ýmsum málum í sjávarútvegi þurfi að ganga frá innanlands áður en sótt er um aðild að ESB og ekki megi ofmeta samningsstöðu Íslands. 

Innlent
Fréttamynd

„Hlægi­legt þvaður gegn lýð­ræði!“

Guðlaugur Þór Þórðarson þingmaður Sjálfstæðisflokksins hafnar því alfarið að þeir sem aðhyllast „Já“ í komandi þjóðaratkvæðagreiðslu um aðildarviðræður að Evrópusambandinu séu málefnalegir en þeir sem tali fyrir „Nei-i“ séu óalandi og óferjandi rugludallar.

Innlent
Fréttamynd

„Farðu nú að hætta þessu þvaðri viðrinið þitt“

Umræðan um Evrópumálin og kosningarnar sem til stendur að halda 29. ágúst næstkomandi um hvort halda beri viðræðum áfram eða ekki eru að nálgast einhvers konar hástig. Sveinn Waage, ráðgjafi og fyrirlesari, segist ýmsu vanur en athugasemdir sem nú falla hafa gengið fram af honum.

Innlent
Fréttamynd

Rétt rúmur helmingur myndi segja já í ágúst

Rétt rúmlega helmingur landsmanna, 52 prósent, telur líklegast að ef atkvæðagreiðslan færi fram núna myndi hann greiða atkvæði með því að Ísland hefji aðildarviðræður við Evrópusambandið á ný en rétt tæplega helmingur, 48 prósent, telur líklegast að hann greiddi atkvæði gegn því.

Innlent