Hafró setur kíkinn fyrir blinda augað Kjartan Sveinsson skrifar 26. maí 2026 16:33 Það var merkilegt svar sem barst Sigurjóni Þórðarsyni, formanni fjárlaganefndar, við fyrirspurn sem hann hafði sent Hafrannsóknastofnun í seinustu viku. Þingmaðurinn bað um upplýsingar varðandi ýmis mál, þar á meðal hvort Hafró telji „að það geti verið mismunur á hlutfalli fisks sem skaddast af völdum veiðarfæra sem veiðist ekki og jafnvel svo mikill að það sé rétt að beita sérstakri ívilnun fyrir vistvænni veiðar?“ Svar Hafró var, í stuttu máli, nei. Engin ástæða til þess beita sérstakri ívilnun fyrir vistvænar veiðar. Lengri útgáfan er lyginni líkust. Rannsóknir á botntrolli Rannsóknir hafa sýnt með óyggjandi hætti að stór hluti fisks sleppur undir botntrollið. Rannsóknir frá 1989, 2006 og 2023 sýna allar að 33-56% þorsks sleppur undan botnvörpu með því að fara undir eða á milli grjóthoppara og skilar sér ekki sem afli. Hlutfallið er hæst hjá smærri fiski og er 97% hjá 1-2 ára þorski – sem lagt er mikið kapp við að vernda í þeim tilgangi að byggja upp stofninn. Auk þess benda gögn til þess að helmingur þorsks sem fer undir grjóthoppara beri sjáanlega áverka. Ekki er vitað hversu stórt hlutfall fisks sem lendir undir grjóthoppara drepst í kjölfarið og því þarf að nota hyggjuvitið til að komast að líklegustu niðurstöðu. Hverjar eru líkurnar að tveggja ára, 20-34 cm langur fiskur lifi það af að lenda undir níðþungum grjóthoppara sem er sérhannaður til þess að skrapa hafsbotninn til að ná sem mestu upp úr honum? Þegar litið er til þess sem við vitum um áhrif streitu og áverka á lífslíkur í kjölfar slíkrar reynslu, segir mitt hyggjuvit að fátt bendi til þess að líkurnar séu góðar. Hafró, aftur á móti, telur að líkurnar séu yfirgnæfandi. Botntrollið fær að njóta vafans á kostnað smáþorsks. Milljarða spurningin Næsta mál er öllu alvarlegra. Sigurjón spurði nefnilega einnig hvort sterkur hrygningarstofn hafi „skilað aukinni nýliðun (3 ára fisk)?” og hvort til séu staðfestar rannsóknir sem “sýna fram á að jákvætt samband sé á milli nýliðunar og hrygningarstofns þorsks?” Hér stendur Hafró á gati. Nei, segja þeir, rannsóknir „hafa ekki sýnt fram á sterkt samband á milli hrygningarstofns og nýliðunar þorsks” þó svo að „Líkön sem meta sambandið á milli hrygningarstofns og nýliðunar (t.a.m. Ricker-, Beverton-Holt- og “Hockeystick-” líkön) hafa flest öll sýnt framá marktæk jákvæð áhrif stærðar hrygningarstofns á nýliðun.” Ég er ekki viss hvort svarið sé þá já eða nei. Nú skulum við líta framhjá því að Ricker líkanið segir hið gagnstæða og einblína á þá staðreynd að fjöldi tveggja og þriggja ára þorska hefur staðið í stað eða minnkað, þrátt fyrir að hrygningarstofn þorsks hafi vaxið mikið frá 2016 og náð hámarki árin 2018–2019. Hafró týnir til hinar og þessar mögulegar ástæður fyrir þessu: göngur frá Grænlandi, minna framboð næringarefna, hitastig sjávar. Allt nema möguleikann á því að grjóthopparar hafa straujað ungviðið svo áratugum skiptir. Stofnunin tengir lélega nýliðun hvergi við umræðuna um veiðarfæri þó svo að allar hinar tilgáturnar séu alveg jafn mikið gisk. Ef dauðsfall ungs þorsks á aldrinum eins til tveggja ára er að aukast, og við vitum jafnframt að grjóthopparar valta yfir ungviðið í stórum stíl eða það treðst í gegnum möskva, þá er þetta nákvæmlega sú spurning sem þarf að svara af alvöru frekar en að bjóða þingheim og almenningi upp á útúrsnúninga. Skyldi það vera tilviljun að frá því skipt var úr bobbingunum yfir í grjóthoppara hefur nýliðun verið óviðunandi? Og svo allt hitt Að lokum má benda á það að skaðsemi ólíkra veiðarfæra einskorðast ekki við óskráðan fiskidauða heldur spila fjölmargir aðrir þættir inn í. Þar má nefna plastmengun, meðafla, kolefnislosun (bæði olíunotkun og losun frá seti), botnröskun og áhrif á lífríkið. Í öllum þessum þáttum koma smábátar mun betur út en togarar. Þessi staðreynd er óumdeild. Ekki eru það handfærin sem hafa komið íslenskum kaldsjávarkórölum á válista. Sérfræðingar Hafró eru einu sjávarlíffræðingar sem ég hef nokkru sinni hitt sem geta ekki með ótvíræðum hætti sagt hreint út að umhverfisskaði trollveiða sé umtalsvert meira en handfæra. En hvers vegna eru þeir svona þversum? Dæmi hver fyrir sig. Sjálfur hef ég ekki hugmynd. En eitt er ljóst: þegar Hafró setur kíkinn fyrir blinda augað hvað skaðsemi ólíkra veiðarfæra varðar, þá tapa allir nema mestu umhverfissóðarnir. Höfundur er formaður Landssambands smábátaeigenda. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Kjartan Páll Sveinsson Mest lesið Af hverju fer sérsveitin í fleiri útköll? Davíð Bergmann Skoðun Þrír forstjórar sem margfalla á staðreyndaprófinu Jón Kaldal Skoðun Hin hagsýna húsmóðir ársins 2026 Alma Dóra Ríkarðsdóttir Skoðun Stefnum á svikalaust sumarfrí - það er skemmtilegra Heiðrún Jónsdóttir Skoðun Baldur til Eyja og við borgum Sigríður Jóhannesdóttir,Sæþór Þorbergsson Skoðun Nei eða já? Vilborg Gunnarsdóttir Skoðun Byssur bæta ekki heiminn Ebba Margrét Magnúsdóttir Skoðun „Sprúttsalar“, lög sem gilda… þegar hentar Þráinn Farestveit Skoðun Saga úr heilbrigðiskerfi okkar Íslendinga Magnea Gunnarsdóttir Skoðun Er Ísland með landslið í fótbolta? Jón Páll Haraldsson Skoðun Skoðun Skoðun Ævisaga krónunnar Gestur Valgarðsson skrifar Skoðun Er Ísland með landslið í fótbolta? Jón Páll Haraldsson skrifar Skoðun Hví ekki að velja eitthvað ódýrara en evru? Jóhann Óli Eiðsson skrifar Skoðun Ef Ísland væri gosdrykkur Geir Gígja skrifar Skoðun Af hverju fer sérsveitin í fleiri útköll? Davíð Bergmann skrifar Skoðun Frá leikgleði til afreka Willum Þór Þórsson skrifar Skoðun Ekki éta útsæðið Jóhannes Þór Skúlason skrifar Skoðun Stefnum á svikalaust sumarfrí - það er skemmtilegra Heiðrún Jónsdóttir skrifar Skoðun Hin hagsýna húsmóðir ársins 2026 Alma Dóra Ríkarðsdóttir skrifar Skoðun Réttarríki fyrir lengra komna Arnar Sigurðsson skrifar Skoðun Hvað er að því að vera heimsborgari? Gunnar Salvarsson skrifar Skoðun Nei eða já? Vilborg Gunnarsdóttir skrifar Skoðun Þegar sauðfé verður á vegi okkar Eyjólfur Ingvi Bjarnason skrifar Skoðun Það skiptir máli að velja rétta séreign Harpa Jónsdóttir skrifar Skoðun Svartir svanir á Reykjanesi Böðvar Tómasson skrifar Skoðun „Sprúttsalar“, lög sem gilda… þegar hentar Þráinn Farestveit skrifar Skoðun Byssur bæta ekki heiminn Ebba Margrét Magnúsdóttir skrifar Skoðun Með vinnuna í vasanum? Hrafnkell Tumi Kolbeinsson skrifar Skoðun Saga úr heilbrigðiskerfi okkar Íslendinga Magnea Gunnarsdóttir skrifar Skoðun Baldur til Eyja og við borgum Sigríður Jóhannesdóttir,Sæþór Þorbergsson skrifar Skoðun Þrír forstjórar sem margfalla á staðreyndaprófinu Jón Kaldal skrifar Skoðun Góðar fréttir af almenningssamgöngum Davíð Þorláksson skrifar Skoðun Uppgjör við víkinga öld elítunnar - Hvernig siðmenntuð þjóð rís upp úr sjálfskaparvíti spillingar Sigurður Sigurðsson skrifar Skoðun Getur Evrópusinni af hugsjón sannfært hrædda þjóð? Sigurjón Ólafsson skrifar Skoðun Frekjukallar fyrr og nú Arnar Sigurðsson skrifar Skoðun Forréttindafólk sem segir nei Margrét Guðmundsdóttir skrifar Skoðun Saga frá Svíþjóð - Lífskjör mælast ekki í vaxtaprósentum Berglind Ragnarsdóttir skrifar Skoðun Ekki nóg að telja milljarðana: Árangur verður að mælast Eyþór Eðvarðsson skrifar Skoðun Ljósmyndarinn á öld gervigreindar Kristján Logason skrifar Skoðun Þegar skattfé velur búsetu Hjálmar Bogi Hafliðason skrifar Sjá meira
Skoðun Uppgjör við víkinga öld elítunnar - Hvernig siðmenntuð þjóð rís upp úr sjálfskaparvíti spillingar Sigurður Sigurðsson skrifar