Sorrý ég hélt að þetta væri skólablýantur Davíð Már Sigurðsson skrifar 26. maí 2026 16:59 Nýverðið kom upp atvik í kennslustofu einni þar sem nemandi greip skrúfblýant af borði samnemanda síns og braut hann fyrirvaralaust í tvennt. Téðum nemanda brá við, fór að hágráta og veinaði hástöfum ,,þetta var blýanturinn’’ minn. Þá brá skýi fyrir sólu í andliti þess að blýantinn hafði brotið og missti þá niðurlútur út úr sér ,,Ég hélt að þetta væri skólablýantur”. Því í huga nemandans er í lagi að eyðileggja skólablýant en ekki blýant í eigu félaga síns. Og þar liggur hundurinn grafinn. Því þetta atvik er langt því frá að vera einsdæmi innan grunnskólanna. Ef allt er ókeypis, hvert er þá virði þess. Nú eru grunnskólarnir skuldbundnir að skaffa nemendum öll námsgögn í nafni jöfnuðar. Allt frá stökum blýanti (lægsta 125 kr) og upp í cromebook (lægsta verð 49.000 kr) eða jafnvel Ipad (lægsta verð 69.000 kr). Þetta eru fjárútlát sem allir nemendur fá, óháð því hvort foreldrar þeirra standa höllum fæti eða keyra um á Range Rower og búa í 400 fermetrum. Það er jöfnuður, en er það sanngirni? Hvar lærir nemandinn ábyrgð á eigin lífi hann er ekki ábyrgur fyrir hlutunum sem hann þarf að nota? Sama á við um gjaldfrjálsar skólamáltíðir. Því þetta eru auðvitað ekki gjaldfrjálsar máltíðir, námsgögnin ekki heldur. Þær eru greiddar með útsvarinu okkar. Íslendingar reka eitt dýrasta grunnskólakerfi í heimi, sem er rekið af sveitarfélögunum. Sveitarfélög sem hafa ekki mikið af úrræðum til þess drýgja tekjustofninn, en það erum alltaf við, íbúar sveitafélaganna, sem borgum. Viljum við þá ekki að fjármagni sé varið á ábyrgari máta innan grunnskólanna en að niðurgreiða máltíðir og blýanta fyrir alla sem vettlingi geta valdið? Höfundur er kennari. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Davíð Már Sigurðsson Mest lesið Það sem Ísland mun berjast fyrir í samningaviðræðum við ESB Þórður Snær Júlíusson Skoðun Auðvaldinu best borgið í Brussel - ekki þjóðinni Ögmundur Jónasson Skoðun Er hið gamla alltaf gott? Ebba Margrèt Magnúsdóttir Skoðun Kristrún Frostadóttir sammála nei-sinnum Guðmundur Edgarsson Skoðun Halldór 01.08.2026 Halldór Þegar líðan stúlkna verður aukaatriði Lilja Benatov Hjartar Skoðun Fullyrðingar og raunveruleikinn Jón Frímann Jónsson Skoðun Ísland í nýrri heimsmynd Sigurgeir Þorkelsson Skoðun RKV- eða ESB-ranglætið? Benedikt V Warén Skoðun Af hverju er svona erfitt að vera heiðarlegur við sjálfan sig? Sigurður Árni Reynisson Skoðun Skoðun Skoðun Heilbrigt starfsumhverfi Hólmfríður Jennýjar Árnadóttir skrifar Skoðun Ísland í nýrri heimsmynd Sigurgeir Þorkelsson skrifar Skoðun Fullyrðingar og raunveruleikinn Jón Frímann Jónsson skrifar Skoðun Kristrún Frostadóttir sammála nei-sinnum Guðmundur Edgarsson skrifar Skoðun Brestur í manngæsku - ESB og flóttafólk Ari Orrason skrifar Skoðun Þegar líðan stúlkna verður aukaatriði Lilja Benatov Hjartar skrifar Skoðun Evra eða króna? Grímur Grímsson skrifar Skoðun Auðvaldinu best borgið í Brussel - ekki þjóðinni Ögmundur Jónasson skrifar Skoðun Er hið gamla alltaf gott? Ebba Margrèt Magnúsdóttir skrifar Skoðun RKV- eða ESB-ranglætið? Benedikt V Warén skrifar Skoðun „Nei“ er ekki lok málsins, - það er frestun þess Hjálmar Vilhjálmsson skrifar Skoðun Hvernig varð gervigreindin til og hvernig virkar hún? Karl Thoroddsen skrifar Skoðun Af hverju er svona erfitt að vera heiðarlegur við sjálfan sig? Sigurður Árni Reynisson skrifar Skoðun Það sem Ísland mun berjast fyrir í samningaviðræðum við ESB Þórður Snær Júlíusson skrifar Skoðun Hvar eru góðu mennirnir? Olga Björt Þórðardóttir skrifar Skoðun Slagorð í stað gagna: Grein Snorra Mássonar um ESB-aðild Halldór Jörgen Olesen skrifar Skoðun Stór orð, lítil rök og ekkert dæmi um ranga tölu – Svar til Konráðs S. Guðjónssonar Gauti B. Eggertsson skrifar Skoðun Hættulegasti tími ársins í umferðinni Ágúst Mogensen skrifar Skoðun Að neita að leita Kristrún Ágústsdóttir skrifar Skoðun ESB umræðan og gervigreindin Ólafur Hannesson skrifar Skoðun Vinnslustöðin rýrir afkomu sjómanna og landverkafólks – en til hvers? Gunnar Sigurðsson skrifar Skoðun Hver ber raunverulega ábyrgð á minkaslysinu? Anahita Sahar Babaei skrifar Skoðun Spænska knattspyrnuliðið sem héraðsmetafór fyrir Spán Jordi Oriola Folch skrifar Skoðun Gæði bygginga ráðast ekki ef reglugerðum einum saman Bergþóra Góa Kvaran skrifar Skoðun Ég hélt að þetta væri bara lítið hrúður Valerio Gargiulo skrifar Skoðun Af hverju já? Reynir Böðvarsson skrifar Skoðun Ef lausnirnar eru til, af hverju eru þær ekki notaðar? Birgir Hrafn Birgisson skrifar Skoðun Óreiða á samviskunni Páll Rafnar Þorsteinsson skrifar Skoðun Fullveldi fyrir hvern? Hjálmar Vilhjálmsson skrifar Skoðun Viðræðurnar snúast um aðlögun Hjörtur J. Guðmundsson skrifar Sjá meira
Nýverðið kom upp atvik í kennslustofu einni þar sem nemandi greip skrúfblýant af borði samnemanda síns og braut hann fyrirvaralaust í tvennt. Téðum nemanda brá við, fór að hágráta og veinaði hástöfum ,,þetta var blýanturinn’’ minn. Þá brá skýi fyrir sólu í andliti þess að blýantinn hafði brotið og missti þá niðurlútur út úr sér ,,Ég hélt að þetta væri skólablýantur”. Því í huga nemandans er í lagi að eyðileggja skólablýant en ekki blýant í eigu félaga síns. Og þar liggur hundurinn grafinn. Því þetta atvik er langt því frá að vera einsdæmi innan grunnskólanna. Ef allt er ókeypis, hvert er þá virði þess. Nú eru grunnskólarnir skuldbundnir að skaffa nemendum öll námsgögn í nafni jöfnuðar. Allt frá stökum blýanti (lægsta 125 kr) og upp í cromebook (lægsta verð 49.000 kr) eða jafnvel Ipad (lægsta verð 69.000 kr). Þetta eru fjárútlát sem allir nemendur fá, óháð því hvort foreldrar þeirra standa höllum fæti eða keyra um á Range Rower og búa í 400 fermetrum. Það er jöfnuður, en er það sanngirni? Hvar lærir nemandinn ábyrgð á eigin lífi hann er ekki ábyrgur fyrir hlutunum sem hann þarf að nota? Sama á við um gjaldfrjálsar skólamáltíðir. Því þetta eru auðvitað ekki gjaldfrjálsar máltíðir, námsgögnin ekki heldur. Þær eru greiddar með útsvarinu okkar. Íslendingar reka eitt dýrasta grunnskólakerfi í heimi, sem er rekið af sveitarfélögunum. Sveitarfélög sem hafa ekki mikið af úrræðum til þess drýgja tekjustofninn, en það erum alltaf við, íbúar sveitafélaganna, sem borgum. Viljum við þá ekki að fjármagni sé varið á ábyrgari máta innan grunnskólanna en að niðurgreiða máltíðir og blýanta fyrir alla sem vettlingi geta valdið? Höfundur er kennari.
Skoðun Af hverju er svona erfitt að vera heiðarlegur við sjálfan sig? Sigurður Árni Reynisson skrifar
Skoðun Stór orð, lítil rök og ekkert dæmi um ranga tölu – Svar til Konráðs S. Guðjónssonar Gauti B. Eggertsson skrifar
Skoðun Vinnslustöðin rýrir afkomu sjómanna og landverkafólks – en til hvers? Gunnar Sigurðsson skrifar