Hverra hagsmuna er verið að gæta? Kolbrún Áslaugar Baldursdóttir skrifar 27. maí 2026 08:30 Þegar stjórnarandstaðan fer af stað í háværa baráttuna gegn þjóðaratkvæðagreiðslu um framhald aðildarviðræðna við ESB, er vert að spyrja: Hvað knýr þessi mótmæli í raun og veru? Í stjórnarsáttmála ríkisstjórnarinnar er gert ráð fyrir tvennum þjóðaratkvæðagreiðslum áður en til aðildar Íslands að Evrópusambandinu gæti komið. Sú fyrri um hvort hefja eigi viðræður um aðild að sambandinu, eigi síðar en árið 2027, og hin síðari um inngöngu þegar og ef samningsniðurstöður liggja fyrir. Þessa dagana fjöllum við um hina fyrri, þar sem einungis er kallað eftir afstöðu þjóðarinnar til þess að hefja aðildarviðræður á ný. Hér er um hreina upplýsingaöflun að ræða. Þjóðaratkvæðagreiðslan hinn 29. ágúst snýst þannig ekki um aðild, heldur hvort þjóðin vilji leiða fram hvernig samning Íslendingar gætu fengið við Evrópusambandið. Þetta gleymist í hávaðanum. Hverjir hrópa hæst gegn þjóðaratkvæðagreiðslunni 29. ágúst? Hvaðan koma flest andmæli, hverjir eiga úrtöluraddirnar? Hvaðan kemur öll þessi andstaða, rangtúlkunin og útúrsnúningarnir? Maður spyr sig eðlilega hvort lætin komi helst frá þeim sem hafa mestan fjárhagslegan ávinning af núverandi kerfi og óttast að með mögulegri ESB-aðild missi þeir spón úr aski sínum. Þetta eru þeir sem maka krókinn í fákeppnisaðstæðunum sem ríkja á fjölmörgum sviðum á íslenskum markaði. Þetta eru þeir sem ráða mestu yfir auðlindum þjóðarinnar og hagnast mest á þeim. Sama fólkið sem hrópaði hæst gegn veiðigjaldsfrumvarpinu, fólkið með „ítökin" sem ESB-samkeppnisreglur gætu hugsanlega ógnað. Þessi sömu öfl kynna sig síðan sem eins konar varðmenn þjóðhagslegra hagsmuna og því miður láta fjölmargir glepjast. Vaxandi ójöfnuður í íslensku samfélagi Aldrei hefur bilið milli efnamesta og efnaminnsta fólksins í landinu verið eins mikið. Hópur forríkra hefur stækkað og tekjur þeirra að sama skapi aukist. Tekjulægsta fólkið er með 4–600 þúsund krónur í ráðstöfunartekjur á mánuði en sá efnamesti kannski með 8–10 milljónir. Færa má líkur að því að með aukinni samkeppnin á markaði muni hagur hins almenna neytanda og launafólks mögulega vænkast til muna. Það liggur einnig fyrir að allir stjórnmálaflokkar hafa lýst því yfir að full aðild að ESB verði aldrei samþykkt nema Íslendingar haldi fullum yfirráðum yfir auðlindum sínum, ekki aðeins í sjávarútvegi heldur öllum öðrum auðlindum einnig. Heiðarleg ríkisstjórn Ríkisstjórnin er ekki að reyna að selja þjóðinni aðild að ESB. Það liggur fyrir að ef mögulegur samningur uppfyllir ekki kröfur þjóðarinnar um full yfirráð yfir auðlindum er ferlinu lokið. Í lýðræðislegu samfélagi hlýtur það að vera grundvallarspurning hvort þjóðin eigi rétt á upplýsingum. Þess vegna er eðlilegt að spyrja hverra hagsmuna er verið að gæta þegar koma á í veg fyrir það? Höfundur er þingkona Flokks fólksins. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Skoðun: Þjóðaratkvæðagreiðsla um ESB-viðræður Kolbrún Áslaugar Baldursdóttir Mest lesið Eftir Kveiksþátt Anna Björg Jónsdóttir,Hjördís Halldóra Sigurðardóttir Skoðun Ríkið vill minnst tvö og hálft ár milli barnanna þinna Karítas Ólafsdóttir Skoðun Flokkur fólksins tekur í handbremsuna Eyjólfur Ármannsson Skoðun Cornell og klefamenning Olga Björt Þórðardóttir Skoðun Menning er ekki bisnessplan Birgir Þórarinsson Skoðun Þorum við að banna Airbnb eða erum við líka siðferðislegir hugleysingjar? Helen Ólafsdóttir Skoðun Þorum við að tala um sorgina? Stefán Már Gunnlaugsson Skoðun Bakslag fyrir barnafjölskyldur í Hafnarfirði Valdimar Víðisson Skoðun Réttindi eiga að vera raunveruleg Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir Skoðun Getur Gufunesið talist skapandi hverfi ef Listhúsið lokar? Narfi Þorsteinsson Skoðun Skoðun Skoðun Kostnaðurinn við nei Sigvaldi Einarsson skrifar Skoðun Hver stal kökunni úr krúsinni? Gunnar Valur Sveinsson skrifar Skoðun Stríð Rússlands gegn utanríkisviðskiptum Úkraínu er stríð gegn fæðuöryggi heimsins Clara Ganslandt skrifar Skoðun Sjónvarpið 60 ára: Þögnin segir líka sögu Gunnar Salvarsson skrifar Skoðun Takk Hörður Jóhann Páll Jóhannsson skrifar Skoðun Firrur um aflareglu fyrir þorsk Ásgeir Daníelsson skrifar Skoðun EES málið, ESA og fullveldi Íslands og tími komin til varna Eggert Guðmundsson skrifar Skoðun Sýnum viljann í verki Aðalbjörg Stefanía Helgadóttir skrifar Skoðun Bókun 35 – þegar molnar undan stjórnkerfinu Aðalsteinn Júlíus Magnússon skrifar Skoðun Pínu sársauki á unga fólkið? Helgi Bárðarson skrifar Skoðun Austurland margborgar sig Ragnar Sigurðsson skrifar Skoðun Þorum við að tala um sorgina? Stefán Már Gunnlaugsson skrifar Skoðun Verklokafælni stjórnvalda Kjartan Björgvinsson skrifar Skoðun Við getum gert betur Hulda Brá Magnadóttir skrifar Skoðun Hverjum er frelsið ætlað? Guðný S. Bjarnadóttir skrifar Skoðun Bakslag fyrir barnafjölskyldur í Hafnarfirði Valdimar Víðisson skrifar Skoðun Þorum við að banna Airbnb eða erum við líka siðferðislegir hugleysingjar? Helen Ólafsdóttir skrifar Skoðun Skattfé er einnota Erna Bjarnadóttir skrifar Skoðun Forvarnadagurinn er í dag María Heimisdóttir skrifar Skoðun Af hverju má ég ekki eiga Chihuahua af því að ég bý í húsnæði fyrir fatlað fólk? Ingibjörg Dóra Scheving Bjarnadóttir skrifar Skoðun Réttindi eiga að vera raunveruleg Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir skrifar Skoðun Flokkur fólksins tekur í handbremsuna Eyjólfur Ármannsson skrifar Skoðun Áramótaheit ríkisstjórnarinnar Helgi Brynjarsson skrifar Skoðun Menning er ekki bisnessplan Birgir Þórarinsson skrifar Skoðun Þegar allt verður þjónusta Valerio Gargiulo skrifar Skoðun Ríkið vill minnst tvö og hálft ár milli barnanna þinna Karítas Ólafsdóttir skrifar Skoðun Hvenær eru kjósendur blekktir? Gunnar Ármannsson skrifar Skoðun Cornell og klefamenning Olga Björt Þórðardóttir skrifar Skoðun Eftir Kveiksþátt Anna Björg Jónsdóttir,Hjördís Halldóra Sigurðardóttir skrifar Skoðun Almannatryggingar í 90 ár Alma D. Möller skrifar Sjá meira
Skoðun Stríð Rússlands gegn utanríkisviðskiptum Úkraínu er stríð gegn fæðuöryggi heimsins Clara Ganslandt skrifar
Skoðun Þorum við að banna Airbnb eða erum við líka siðferðislegir hugleysingjar? Helen Ólafsdóttir skrifar
Skoðun Af hverju má ég ekki eiga Chihuahua af því að ég bý í húsnæði fyrir fatlað fólk? Ingibjörg Dóra Scheving Bjarnadóttir skrifar