Meistararnir einum sigri frá úrslitaeinvíginu Ágúst Orri Arnarson skrifar 27. maí 2026 07:57 Oklahoma City Thunder eru ríkjandi meistarar og geta endurtekið leikinn. Christian Petersen/Getty Images Victor Wembanyama var ekki upp á sitt besta þegar San Antonio Spurs töpuðu 127-114 gegn Oklahoma City Thunder í nótt. Meistararnir eru komnir 3-2 yfir í einvíginu og eru aðeins einum sigri frá úrslitunum.
Wembanyama hafði skilað 41 og 33 stigum í síðustu leikjum en átti sinn versta leik í seríunni og skoraði aðeins 20 stig í nótt. Skotnýting hans var slök, 4 af 15 skotum utan af velli fóru ofan í. Vítanýtingin bætti upp fyrir það en Wembanyama skoraði þar úr 12 af 12 skotum. „Hann verður að taka fleiri en 15 skot, meira að segja með öllum vítunum. Hann verður að skora meira en 20 stig, sannarlega,“ sagði Mitch Johnson, þjálfari Spurs. Wembanyama veitti blaðamönnum ekki viðtal eftir leik. Wembanyama var ekki að setja skotin niður í nótt. Christian Petersen/Getty Images Ekkert verður þó tekið af ríkjandi meisturum Oklahoma City Thunder, sem áttu öflugan leik og fengu mikið framlag frá bekknum. Shai Gilgeous-Alexander var að venju stigahæstur, með 32 stig, en varamaðurinn Alex Caruso kom á eftir honum með 22 stig. Jared McCain, sem er alla jafnan varamaður en fékk að byrja leikinn í fjarveru Jalen Williams og Ajay Mitchell, skoraði 20 stig. CARUSO HAS 18 3PM IN THE SERIES 🎯Most threes made off the bench in a single NBA Conference Finals series 🤯Thunder win Game 5 to take a 3-2 series lead in the West Finals! pic.twitter.com/l73UcbIGTb— NBA (@NBA) May 27, 2026 Allt annað var að sjá til Thunder liðsins í nótt en í síðasta leik. Síðast skoraði liðið aðeins 82 stig í öllum leiknum en sú tala var komin á töfluna þegar þriðji leikhluti var nýhafinn í nótt. New York Knicks unnu austurdeildina og bíða eftir sigurvegara vesturdeildarinnar í úrslitaeinvíginu. Næsti leikur Thunder og Spurs er aðfaranótt föstudags. Ef Spurs vinnur þar fer serían í oddaleik, á aðfaranótt sunnudags.
NBA Mest lesið Tekur ekki við afsökunarbeiðninni og segir hann ljúga Fótbolti Rúnar: Ég hef aldrei farið á Þjóðhátíð Íslenski boltinn „Það fyrsta sem sést er rassinn á mér“ Sport Jón Þór: „Ég er algjörlega orðlaus“ Íslenski boltinn Björgvin Karl vann sitt þriðja brons á heimsleikunum Sport Endurkomur hjá kærustuparinu: „Þakklát og hamingjusöm“ Sport Kláraði Harvard og samdi við Blika Íslenski boltinn „Stærstu fréttir ferilsins“ Sport Haaland kyndir undir Haaland-æði á samfélagsmiðlum Fótbolti Elías Rafn vann Íslendingaslaginn í Danmörku Fótbolti Fleiri fréttir Keflvíkingar semja við Litáa og Stólarnir fá Bandaríkjamann Íslenska liðið með stórsigur á EM Vann þriggja stiga skotkeppni WNBA og skoraði á Curry Mirza Bulic yfirgefur Keflavík og semur við Grindavík Sonur Kristófers og Guðrúnar er bæði Acox og Guðjohnsen Trump kallar LeBron James kynþáttahatara Byrjuðu á nítján stiga sigri á Portúgölum LeBron hélt að hann væri búinn að spila sinn síðasta leik Lebron fer til Fíladelfíu Stephen Curry fær sögulega einkasýningu í heiðurshöllinni Hafa náð í leikmenn frá fjórum bestu liðunum KR sækir sænskan landsliðsmann Tékki til Njarðvíkur Miami Heat birti hlekk á blaðamannafund LeBron James fyrir mistök Semple bætist við stjörnum prýtt lið Álftaness Sigurinn á Bretum ýtti íslensku strákunum upp heimslista körfuboltans Strákarnir fengu silfur á EM Sigur á Svíum og sæti í A-deild tryggt LeBron James ekki enn tilbúinn að gefa upp sitt næsta lið Reyndur sænskur sonur til Ármenninga Íslensku strákarnir í undanúrslit Ísland á tvo stigahæstu leikmenn mótsins Rekinn fyrir að senda körfuboltakonu rasísk skilaboð Íslensku strákarnir í átta liða úrslitin Stjörnur Sixers reyna að freista LeBron Fjölnir þiggur sæti Aþenu Gary Payton þjálfar Jeremy Pargo í BIG3-deildinni Íslensku strákarnir héldu sigurgöngunni áfram Minnist Kinu Rochford: „Einn af þeim eftirminnilegri sem maður hefur verið með í liði“ „Verið að þreyta okkur þangað til við gefumst upp“ Sjá meira