„Í einu tilviki var talað um nauðgunarleik“ Smári Jökull Jónsson skrifar 27. maí 2026 23:41 Dr. Svala Ísfeld Ólafsdóttir er dósent við lagadeild Háskóla Reykjavíkur og hélt erindi um rannsókn á dómum í ofbeldismálum þar sem kyrkingartaki hefur verið beitt. Vísir/Vilhelm Dósent við lagadeild HR sem gerði rannsókn á dómum í ofbeldismálum þar sem kyrkingartaki var beitt segir að algeng málsvörn gerenda sé að um harkalegt kynlíf hafi verið að ræða. Í einu tilviki hafi gerandi talað um nauðgunarleik sem leikinn hafi verið að frumkvæði brotaþola.
Ráðstefna um kyrkingartak fór fram í dag á vegum lagadeildar HR í samstarfi við dómsmálaráðuneytið, lögregluna auk þriggja hagsmunasamtaka þolenda kynferðisbrota. Þar hélt Dr. Svala Ólafsdóttir erindi um rannsókn sína á dómum í ofbeldismálum þar sem kyrkingartaki var beitt. Hún segir það eina grófustu birtingarmynd kynbundins ofbeldis og alvarlegri en fólk hafi áður áttað sig á. Hvert sæti var setið á ráðstefnunni sem fram fór í HR.Vísir/Vilhelm „Í stuttu máli þá kemur í ljós þegar gerendur eru karlmenn og konur brotaþolar sem eru í langflestum þessara mála sem ég skoðaði á þessu fimm ára tímabili, þá er um að ræða ástarsambönd,“ segir Svala í viðtali sem birtist í kvöldfréttum Sýnar. „Það er núverandi eða fyrrverandi maki eða sambýlismaður, núverandi eða fyrrverandi kærasti. Þannig að þetta eru gerendur sem hafa átt í ástarsambandi við þolanda.“ Harkalegt kynlíf notað sem málsvörn Í rannsókn sinni skoðaði Svala meðal annars nauðgunardóma þar sem stórfelldu ofbeldi var beitt og þolendur í viðkvæmri stöðu, búa við heimilisofbeldi og eru háðir geranda. „Í mörgum tilvikum var það málsvörn geranda að um harkalegt kynlíf væri að ræða með samþykki beggja. Það sem vakti athygli mína var að það voru einungis konurnar, brotaþolarnir sem báru áverka.“ Fulltrúar lögreglunnar sátu ráðstefnuna en lögreglustjórinn á höfuðborgarsvæðinu og mennta- og starfsþróunarsetur lögreglunnar voru á meðal þeirra sem komu að skipulagningu ráðstefnunnar.Vísir/Vilhelm Gerendur hafi þá gjarnan haldið fram að allt hafi átt sér stað með samþykki og vilja. Að mati Svölu er þó ekki hægt með vitrænum hætti hægt að fá út að þetta hafi verið vilji þolendanna, jafnvel þó samþykki fyrir kynmökum hafi verið fyrir hendi. „Þetta eru nánast pyntingar“ Þá hafi jafnvel verið talað um leik í þessu samhengi. „Í einu tilviki var talað um nauðgunarleik, að þetta væri leikur sem þau léku gjarnan og þá að frumkvæði brotaþolans,“ segir Svala. Drífa Snædal er talskona Stígamóta en samtökin komu að skipulagningu ráðstefnunnar.Vísir/Vilhelm „Þannig að það eru margvíslegar ástæður en málsvörnin harklegt kynlíf skýtur oft upp kollinum og þegar maður lítur á það þá er þetta ekki harkalegt kynlíf. Þetta eru nánast pyntingar þar sem brotaþolinn, það er að segja stúlkan eða konan, er með alvarlega og oft á tíðum fjöláverka.“ „En gerandinn, karlmaðurinn enga,“ segir Svala.
Kynferðisofbeldi Kynlíf Kynbundið ofbeldi Ráðstefnur á Íslandi Mest lesið Mannasaur og hanskar um allar koppagrundir Innlent Sjö sakaðir um að nauðga samnemanda klukkustundum saman Erlent Farþegi handtekinn í Hollandi vegna skemmdarverka Innlent Ekið á fimm ára barn á hjóli Innlent „Aðgerðaleysið og getuleysið er algjört hjá stjórnvöldum“ Innlent Segist hafa gefist upp á stjórnarmyndun í Svíþjóð Erlent Svindlaði ítrekað í sjálfsafgreiðslu og fékk dóm Innlent Vilja formlega afsökun frá Selenskí Erlent Bregðast við skipulögðum árásum og hótunum Innlent Rannsaka möguleg tengsl Íran við meinta hryðjuverkamenn Erlent Fleiri fréttir Furðar sig á tali um taktík með gjaldahækkanir „Við erum ekki að mismuna eftir þjóðerni með þessum hætti“ Svindlaði ítrekað í sjálfsafgreiðslu og fékk dóm Harðari tónn en áður hafi verið sleginn Uppsagnir, undarleg taktík og umtöluð ræða Ekið á fimm ára barn á hjóli Mannasaur og hanskar um allar koppagrundir „Aðgerðaleysið og getuleysið er algjört hjá stjórnvöldum“ Farþegi handtekinn í Hollandi vegna skemmdarverka Skil næstu lægðar nálgast Tilkynnt um tvær líkamsárásir Bregðast við skipulögðum árásum og hótunum Góðkunningi lögreglunnar grunaður um líkamsárás Stutt geti verið í kosningar Boðar fyrstu lögin og reglurnar gagnvart gervigreind Eldur á Hellu Slökkvilið kallað út í Hafnarfjörð Segir merkilegt að einkaskilaboð séu rædd á Alþingi Beitti úðavopni á vegfarendur Sextán ára unglingar sóttir í bæinn eftir afskipti lögreglu Svara verði í hvaða umboði skilaboðin voru send Maður á sextugsaldri með áverka á höfði eftir árás ungmenna Verður gervigreindin mennskari eða fólk eins og gervigreind? Efnahagsmálin, SÁÁ og skítapotturinn á Sprengisandi Skemmtistað lokað í miðborginni vegna fjölda ungmenna Söfnuðu 32 milljónum fyrir langveik börn Tómas kominn aftur til starfa Siðferðislegir hugleysingjar neiti að semja um frið Þyrlan lenti við Hörpu Daði spreytir sig í Gettu betur Sjá meira