Enski boltinn

Vann tvo Evróputitla sama vorið

Valur Páll Eiríksson skrifar
Evan Guessand átti ekki frábæra leiktíð en henni lauk með mikilli gleði.
Evan Guessand átti ekki frábæra leiktíð en henni lauk með mikilli gleði. Vitalii Kliuiev/Getty Images

Evann Guessand afrekaði það í gær að vinna annan Evróputitil sinn á leiktíðinni. Hann lék fyrir bæði Aston Villa og Crystal Palace, sem unnu sitthvora Evrópukeppnina.

Aston Villa keypti framherjann Guessand síðasta sumar fyrir rúmar 30 milljónir evra frá Nice í Frakklandi. Hann hafði þar skorað tólf mörk í frönsku úrvalsdeildinni og verið valinn leikmaður tímabilsins hjá félaginu.

Hann sló ekki beint í gegn í Birmingham en skoraði þó tvö mörk í Evrópudeildinni, þó hann hafi ekki komist á blað í ensku úrvalsdeildinni. Undir lok janúargluggans færði hann sig til Crystal Palace á láni en tókst ekki heldur að slá í gegn þar.

Hann spilaði sex leiki fyrir Palace í Sambandsdeildinni, þar á meðal í úrslitaleiknum í gær.

Þrátt fyrir að hafa ekki átt sína bestu leiktíð lauk henni sannarlega vel þar sem fílbeinski framherjinn lauk tímabilinu á sögulegan hátt, sem Sambandsdeildarmeistari og Evrópudeildarmeistari.

Hann heldur næst á HM með landsliði Fílabeinsstrandarinnar og vonast eflaust eftir stærra hlutverki en hann hefur fengið hjá sitthvoru ensku liðinu á nýafstaðinni leiktíð.

Fílabeinsströndin er í E-riðli heimsmeistaramótsins með Þýskalandi, Ekvador og Curacao.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×