Við unnum stóra vinninginn Gunnar Salvarsson skrifar 29. maí 2026 12:30 Þrátt fyrir landlægan barlóm og kvein yfir ýmsu í íslensku samfélagi er augljóst að þeir sem fæðast á Íslandi hafa unnið stóra vinninginn í lukkuhjóli lífsins. Líkurnar á því að fæðast á Íslandi eru sáralitlar þegar litið er til allra þeirra 380 þúsund barna sem fæðast daglega í heiminum. Mæðradauði er nánast óþekktur hér á landi, börn innan við fimm ára sem látast af læknanlegum sjúkdómum eru afar fá og Íslendingar eru í hópi þjóða þar sem langlífi er mest. Í gær barst sú frétt að íslensk móðir hefði látist af barnsförum, sú fyrsta um áratugaskeið. Sú harmafregn vakti sterk sorgarviðbrögð hjá mér eins og öðrum en hún vakti mig líka til umhugsunar um það hversu lánsöm við erum, Íslendingar. Fyrir einhverjum árum, þegar ég starfaði við alþjóðlega þróunarsamvinnu Íslands, reyndi ég að vekja áhuga kennara á gildi fræðslu um þróunarmál og mikilvægi þess fyrir íslenska nemendur að kynnast aðstæðum annarra barna í ólíkum heimshlutum. Ein áhrifamesta aðferðin að mínu mati var einfaldur netleikur ættaður frá Barnaheill í Svíþjóð. Lukkuhjól lífsins Á skjánum birtist lukkuhjól með nöfnum allra ríkja heims og nemandinn átti að snúa því. Hjólið staðnæmdist af handahófi í einhverju landanna þar sem hann hafði „fæðst“. Hann fékk nýtt nafn, nýja fjölskyldu og nýjar lífsaðstæður. Einnig fylgdu upplýsingar um lífslíkur, heilsufar, menntun og efnahagslegar aðstæður í viðkomandi landi. Mér er minnisstæð spurning frá einum kennara eftir að ég hafði lýst leiknum: „Og hvað eiga börnin að gera við þessar upplýsingar?“ Ég stóð eiginlega á gati og varð svarafátt. Í dag held ég að ég myndi svara á augabragði. Samkennd. Að setja sig í spor annarra. Að fá börnin til að átta sig á því hversu gæfusöm þau eru að fæðast á Íslandi eða yfirhöfuð að búa í einu öruggasta og besta samfélagi heims. Kona deyr af barnsförum á tveggja mínútna fresti Mæðradauði er enn algengur í samstarfsríkjum Íslendinga í alþjóðlegri þróunarsamvinnu, Malaví, Úganda og Síerra Leóne. Samkvæmt nýjustu gögnum Sameinuðu þjóðanna létust um 260 þúsund konur af orsökum tengdum meðgöngu og fæðingu árið 2023. Það jafngildir því að ein kona látist á um það bil tveggja mínútna fresti. Langflest dauðsföllin verða í fátækum ríkjum þar sem aðgangur að heilbrigðisþjónustu er takmarkaður. Sama gildir um börnin. Árið 2024 létust um 4,9 milljónir barna áður en þau náðu fimm ára aldri. Það samsvarar því að um 13 þúsund börn deyi á hverjum degi. Grátlegast er að unnt hefði verið að afstýra flestum þessum dauðsföllum. Börnin dóu úr sjúkdómum og kvillum sem í flestum tilvikum væri hægt að meðhöndla með bólusetningum, sýklalyfjum, hreinu vatni og grunnheilbrigðisþjónustu. Við eigum erfitt með að setja okkur í þessi spor. Hér er mæðradauði svo sjaldgæfur að hann verður forsíðufrétt. Hér deyja afar fá börn af læknanlegum sjúkdómum. Lífslíkur eru meðal þeirra hæstu í heimi. Við höfum aðgang að hreinu vatni, menntun og heilbrigðisþjónustu sem flestir jarðarbúar geta aðeins látið sig dreyma um. Þetta er allt annað en sjálfsagt. Þegar litið er í baksýnisspegil sögunnar birtist allt önnur og dekkri mynd. Einungis fyrir rúmri öld var veruleikinn allt annar. Barnadauði var gífurlegur og fjölmargar fjölskyldur misstu börn sín áður en þau náðu fyrsta afmælisdegi sínum. Mæður létust af barnsförum vegna fylgikvilla sem nú eru auðveldlega meðhöndlaðir. Það sem við upplifum í dag sem einstakan harmleik var þá hluti af daglegum veruleika Íslendinga. Við sem fæddumst á Íslandi unnum stóra vinninginn í lukkuhjóli lífsins. Það er ekki afrek sem við getum stært okkur af. Við höfðum einfaldlega heppnina með okkur. Við ættum oftar að muna það. Höfundur er fyrrverandi kynningarstjóri Þróunarsamvinnustofnunar Íslands. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Gunnar Salvarsson Mest lesið Opnum dyr fyrir innviðafjárfestingu um allt land Logi Einarsson Skoðun Fleiri valkostir og sterkari staða ef við segjum já Ragna Sigurðardóttir Skoðun Eru 532 milljarðar minni tala en 245 milljarðar? Egill Almar Ágústsson Skoðun Referendum: Gratitude and Outlook from the Swiss Substitute Carl Baudenbacher Skoðun Ísland, Evrópa og áhrifasvæði stórvelda Þorsteinn Kristinsson Skoðun Eldra fólk ætti alls ekki að kjósa nei Björn B Björnsson Skoðun Hvað kostar „þetta reddast“? Guðríður Lára Þrastardóttir Skoðun Hvaða þýðingu hefur óvissa um aðildarsamning að ESB? Jón Jónsson Skoðun Hóparnir þrír sem segja JÁ Rúnar Vilhjálmsson Skoðun 600 þúsund manna Ísland – ætlum við að byggja það sjálf? Eyjólfur Ingvi Bjarnason Skoðun Skoðun Skoðun Er ég að bregðast börnunum mínum með því að segja NEI? Monika Margrét Stefánsdóttir skrifar Skoðun Gamli sáttmálinn og sá nýi Aðalsteinn Már Þorsteinsson skrifar Skoðun Er betra? Sigþrúður Ármann skrifar Skoðun Útgerðarauðvaldið vill í ESB - ég segi nei Ögmundur Jónasson skrifar Skoðun Gervigreind, gagnaver og tækifæri Íslands Eymundur Sigurðsson skrifar Skoðun Sveitirnar þagna Walter Fannar Kristjánsson skrifar Skoðun Áður en lengra er haldið Þórarinn Ingi Pétursson skrifar Skoðun Erum við of fljót að kenna samfélagsmiðlum um? Elísabet Reynisdóttir skrifar Skoðun Börn læra ekki fyrir framtíð sem þau skynja ekki Helgi S. Karlsson skrifar Skoðun Danir, ESB og staða Íslands Finnur Torfi Magnússon skrifar Skoðun Hvað kostar „þetta reddast“? Guðríður Lára Þrastardóttir skrifar Skoðun Frá öllum til allra með nútímalegum sjúkratryggingum Sigurður H. Helgason skrifar Skoðun Tækifærið er núna Agnar H. Johnson skrifar Skoðun Einelti og samskiptahættir kvenna á Íslandi Vigdís Ásgeirsdóttir skrifar Skoðun 600 þúsund manna Ísland – ætlum við að byggja það sjálf? Eyjólfur Ingvi Bjarnason skrifar Skoðun Hlaupið er búið - en láttu það ekki stoppa þig Sigrún Elva Einarsdóttir skrifar Skoðun Aðildarviðræður eru ekki prufuáskrift Guðbjörg Oddný Jónasdóttir skrifar Skoðun Trump á ekki að vera ástæðan Friðjón R. Friðjónsson skrifar Skoðun Hvernig lækka vextir með upptöku evru? Gauti B. Eggertsson skrifar Skoðun Eldra fólk ætti alls ekki að kjósa nei Björn B Björnsson skrifar Skoðun Fleiri valkostir og sterkari staða ef við segjum já Ragna Sigurðardóttir skrifar Skoðun Samkeppniseftirlitið eitt og sér Sigurjón Þórðarson skrifar Skoðun Opnum dyr fyrir innviðafjárfestingu um allt land Logi Einarsson skrifar Skoðun Hinn ólánsami Ólafur Ragnar Lúðvík Bergvinsson skrifar Skoðun Milljarða ávinningur af evru – fyrir heimilin, fyrirtækin, ríkið, sveitarfélögin og þjóðina alla Baldur Pétursson skrifar Skoðun Skipulag sem má ekki borga sig! Íris Björk Hreinsdóttir skrifar Skoðun Ísland, Evrópa og áhrifasvæði stórvelda Þorsteinn Kristinsson skrifar Skoðun Hvaða þýðingu hefur óvissa um aðildarsamning að ESB? Jón Jónsson skrifar Skoðun Ástkæra, ylhýra, orðljóta málið… mitt Íris Erlingsdóttir skrifar Skoðun Referendum: Gratitude and Outlook from the Swiss Substitute Carl Baudenbacher skrifar Sjá meira
Skoðun Milljarða ávinningur af evru – fyrir heimilin, fyrirtækin, ríkið, sveitarfélögin og þjóðina alla Baldur Pétursson skrifar