Brennandi hús Jón Steindór Valdimarsson skrifar 30. maí 2026 23:45 Í umræðu um Evrópumál er oft gripið til gífuryrða og stórkarlalegra fullyrðinga. Það er yfirleitt lítið gagn af því ef fólk vill í alvöru ræða Evrópumál og hugsanlega aðild Íslands að ESB. Einn frasi hefur verið furðu lífseigur og það er að tala um Evrópusambandið sem brennandi hús og þangað myndi ekki nokkur heilvita maður (þjóð) vilja fara. Vissulega er ekki allt eins og best verður á kosið innan ESB og einstökum aðildarríkjum frekar en á Íslandi eða öllum öðrum löndum heims en það er fjarri öllum sanni að það sé eins og brennandi hús. Í þessu samhengi er auðvitað gott að kanna hvað íbúar í þessu „brennandi húsi“ segja. Um áratugaskeið hafa verið gerðar kannanir þar sem spurt er hvort fólk telji að aðild lands síns að Evrópusambandinu sé góð, slæm eða hvorki góð né slæm. Nýjasta samanburðarhæfa könnun Evrópuþingsins var framkvæmd 6.–30. nóvember 2025 meðal 26.453 íbúa í öllum 27 aðildarríkjunum. Í heild töldu 62% að aðild lands þeirra að ESB væri góð. Hlutfallið hafði hækkað um tvö prósentustig frá því spurningin var síðast lögð fyrir í febrúar og mars 2024. Í könnuninni kemur líka fram að hæst er hlutfallið á Írlandi 86%, Danmörku og Svíþjóð 85%, Portúgal 84%, Lúxemborg 83% og Hollandi 81%. Þessi ríki eru að mörgu leyti ólík en í hópnum eru Danmörk og Svíþjóð sem eru tvö norræn velferðarríki, Írland og Lúxemborg sem eru tvö lítil og opin hagkerfi, Holland sem er eitt af stofnríkjum ESB og síðan Portúgal sem gekk í ESB árið 1986 og bjó við inngönguna við ein lökustu lífskjör í Vestur-Evrópu. Það má benda á að í Finnlandi er hlutfallið 76%. Þessar niðurstöður benda tæplega til þess að almenningur í þessum ríkjum sé að stikna í brennandi húsi. Auðvitað er almenningur í ESB ekki gagnrýnislaus og hér hafa verið nefnd þau sex ríki þar sem hlutfallið er hæst, að viðbættu Finnlandi, þannig að öll Norðurlöndin séu með. Ánægjan er mismikil og í öllum aðildarríkjunum fer fram pólitísk umræða um galla ESB. Engu að síður telur skýr meirihluti almennings í sambandinu að aðildin sé góð og enn stærri meirihluti að landið hafi haft hag af henni. Sannfæring mín er sú að við höfum ekkert að óttast við að ganga í ESB frekar en góðir félagar okkar í Svíþjóð, Danmörku og Finnlandi. Höfundur er lögfræðingur. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Skoðun: Þjóðaratkvæðagreiðsla um ESB-viðræður Jón Steindór Valdimarsson Mest lesið Eftir Kveiksþátt Anna Björg Jónsdóttir,Hjördís Halldóra Sigurðardóttir Skoðun Ríkið vill minnst tvö og hálft ár milli barnanna þinna Karítas Ólafsdóttir Skoðun Flokkur fólksins tekur í handbremsuna Eyjólfur Ármannsson Skoðun Cornell og klefamenning Olga Björt Þórðardóttir Skoðun Menning er ekki bisnessplan Birgir Þórarinsson Skoðun Þorum við að banna Airbnb eða erum við líka siðferðislegir hugleysingjar? Helen Ólafsdóttir Skoðun Þorum við að tala um sorgina? Stefán Már Gunnlaugsson Skoðun Bakslag fyrir barnafjölskyldur í Hafnarfirði Valdimar Víðisson Skoðun Réttindi eiga að vera raunveruleg Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir Skoðun Sýnum viljann í verki Aðalbjörg Stefanía Helgadóttir Skoðun Skoðun Skoðun Kostnaðurinn við nei Sigvaldi Einarsson skrifar Skoðun Hver stal kökunni úr krúsinni? Gunnar Valur Sveinsson skrifar Skoðun Stríð Rússlands gegn utanríkisviðskiptum Úkraínu er stríð gegn fæðuöryggi heimsins Clara Ganslandt skrifar Skoðun Sjónvarpið 60 ára: Þögnin segir líka sögu Gunnar Salvarsson skrifar Skoðun Takk Hörður Jóhann Páll Jóhannsson skrifar Skoðun Firrur um aflareglu fyrir þorsk Ásgeir Daníelsson skrifar Skoðun EES málið, ESA og fullveldi Íslands og tími komin til varna Eggert Guðmundsson skrifar Skoðun Sýnum viljann í verki Aðalbjörg Stefanía Helgadóttir skrifar Skoðun Bókun 35 – þegar molnar undan stjórnkerfinu Aðalsteinn Júlíus Magnússon skrifar Skoðun Pínu sársauki á unga fólkið? Helgi Bárðarson skrifar Skoðun Austurland margborgar sig Ragnar Sigurðsson skrifar Skoðun Þorum við að tala um sorgina? Stefán Már Gunnlaugsson skrifar Skoðun Verklokafælni stjórnvalda Kjartan Björgvinsson skrifar Skoðun Við getum gert betur Hulda Brá Magnadóttir skrifar Skoðun Hverjum er frelsið ætlað? Guðný S. Bjarnadóttir skrifar Skoðun Bakslag fyrir barnafjölskyldur í Hafnarfirði Valdimar Víðisson skrifar Skoðun Þorum við að banna Airbnb eða erum við líka siðferðislegir hugleysingjar? Helen Ólafsdóttir skrifar Skoðun Skattfé er einnota Erna Bjarnadóttir skrifar Skoðun Forvarnadagurinn er í dag María Heimisdóttir skrifar Skoðun Af hverju má ég ekki eiga Chihuahua af því að ég bý í húsnæði fyrir fatlað fólk? Ingibjörg Dóra Scheving Bjarnadóttir skrifar Skoðun Réttindi eiga að vera raunveruleg Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir skrifar Skoðun Flokkur fólksins tekur í handbremsuna Eyjólfur Ármannsson skrifar Skoðun Áramótaheit ríkisstjórnarinnar Helgi Brynjarsson skrifar Skoðun Menning er ekki bisnessplan Birgir Þórarinsson skrifar Skoðun Þegar allt verður þjónusta Valerio Gargiulo skrifar Skoðun Ríkið vill minnst tvö og hálft ár milli barnanna þinna Karítas Ólafsdóttir skrifar Skoðun Hvenær eru kjósendur blekktir? Gunnar Ármannsson skrifar Skoðun Cornell og klefamenning Olga Björt Þórðardóttir skrifar Skoðun Eftir Kveiksþátt Anna Björg Jónsdóttir,Hjördís Halldóra Sigurðardóttir skrifar Skoðun Almannatryggingar í 90 ár Alma D. Möller skrifar Sjá meira
Skoðun Stríð Rússlands gegn utanríkisviðskiptum Úkraínu er stríð gegn fæðuöryggi heimsins Clara Ganslandt skrifar
Skoðun Þorum við að banna Airbnb eða erum við líka siðferðislegir hugleysingjar? Helen Ólafsdóttir skrifar
Skoðun Af hverju má ég ekki eiga Chihuahua af því að ég bý í húsnæði fyrir fatlað fólk? Ingibjörg Dóra Scheving Bjarnadóttir skrifar