Bætt aðgengi að nýjum lyfjum skilar víðtækum ávinningi fyrir samfélagið Ragnhildur Reynisdóttir og Pétur Magnússon skrifa 1. júní 2026 22:30 Aðgengi að nýjum lyfjum er einn af hornsteinum þess að heilbrigðiskerfið standi undir væntingum um gæði, framfarir og aukin lífsgæði. Á því sviði stendur Ísland verr að vígi en nágrannalöndin og það hefur raunveruleg áhrif á sjúklinga, heilbrigðisstarfsfólk og samfélagið allt. Smæð markaðarins hefur áhrif Ein ástæðan er sú að Ísland er lítið land í alþjóðlegu lyfjaumhverfi. Sjúklingahópar eru fámennir en kröfur til skráningar, gæða og eftirlits sambærilegar og í stærri ríkjum. Því verður kostnaður við að koma nýju lyfi á markað hlutfallslega meiri hér en annars staðar. Þetta hefur áhrif á það hvenær og hvort nýjar meðferðir verða aðgengilegar. Þörfin fyrir umbætur er því skýr. Samkvæmt nýjustu gögnum frá Evrópusamtökum frumlyfjaframleiðenda hefur Ísland aðeins tekið upp um þriðjung þeirra nýju lyfja sem skráð eru í Evrópu, sem er mun lægra hlutfall en í nágrannalöndunum. Í reynd þýðir það að íslenskir sjúklingar hafa ekki sama aðgengi að nýjustu meðferðum og sjúklingar í löndum sem við berum okkur saman við. Mikilvæg stefnubreyting Í þessu ljósi er sú stefnubreyting sem Alma D. Möller heilbrigðisráðherra kynnti nýlega sérstaklega jákvæð. Hún felur í sér að í auknum mæli verði horft til meðalverðs á Norðurlöndum við ákvörðun lyfjaverðs á Íslandi, í stað þess að miða áfram við lægsta verð. Þessi breyting er mikilvægt skref í rétta átt. Hún bætir skilyrði fyrir markaðssetningu nýrra lyfja og stuðlar þar með að því að þau verði aðgengileg fyrr. Eins og ráðherra hefur bent á getur of þröng verðlagning dregið úr hvata til innleiðingar nýrra lyfja og ný nálgun skapi betra jafnvægi milli aðgengis og ábyrgðar í ráðstöfun fjármuna. Ráðherra kynnti breytinguna á ráðstefnu Frumtaka, samtaka frumlyfjaframleiðenda á Íslandi, í apríl og undirstrikaði þar mikilvægi þess að skapa raunhæfari forsendur fyrir aðgengi að nýjum lyfjum hér á landi. Tækifæri til að bæta stöðuna Sú stefna að miða við lægsta verð á Norðurlöndum átti kannski við rök að styðjast á sínum tíma. Hún hefur þó í reynd haft þau áhrif að tefja innleiðingu nýrra lyfja, meðal annars vegna áhrifa á verðmyndun í öðrum löndum og þess kostnaðar sem fylgir litlum markaði. Breytingin sem nú hefur verið kynnt felur því í sér mikilvæga endurskoðun á þessari nálgun. Bætt aðgengi að nýjum lyfjum skilar víðtækum ávinningi. Það getur dregið úr álagi á heilbrigðiskerfið, stytt veikindatíma og aukið lífsgæði sjúklinga og aðstandenda þeirra. Þetta er því ekki aðeins spurning um útgjöld heldur einnig fjárfesting í betri heilsu og öflugra samfélagi. Framkvæmdin skiptir mestu máli Nú skiptir mestu máli að fylgja þessari stefnu eftir í framkvæmd. Ákvörðun um breytingu er mikilvægt skref en árangurinn ræðst af því hvort tekst að skapa fyrirsjáanlegt og skilvirkt umhverfi þar sem innleiðing nýrra lyfja gengur greiðlega. Hér er raunverulegt tækifæri til að bæta stöðu Íslands og færa okkur nær þeim löndum sem við viljum bera okkur saman við. Með skýrum næstu skrefum og áframhaldandi samvinnu er raunhæft að ná þeim árangri. Við hvetjum heilbrigðisráðherra og stofnanir tengdar lyfjamálum til að ganga vasklega til verks í þessum málaflokki, sjúklingum í landinu til heilla. Frumtök, samtök framleiðenda frumlyfja, eru reiðubúin að leggja sitt af mörkum til að styðja við þessa þróun, eins og þörf er á. Höfundar eru formaður stjórnar Frumtaka og framkvæmdastjóri Frumtaka. Frumtök eru samtök framleiðenda frumlyfja. Tilgangur Frumtaka er að efla og dýpka umræðu um lyfjamál og að gæta þess að sameiginlegir hagsmunir framleiðenda frumlyfja á Íslandi og á alþjóðavísu og almennings fari saman. Frumtök vilja með málflutningi sínum stuðla að framþróun íslenska heilbrigðiskerfisins, að rannsóknum og þróun lyfja hér á landi og að annast sameiginleg mál frumlyfjaframleiðenda á Íslandi. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Lyf Heilbrigðismál Mest lesið Marta Kos verður að virða niðurstöðuna Erna Bjarnadóttir Skoðun Að velta eigin sök á aðra Sigurjón Þórðarson Skoðun Gagnaver, Verne og Ísrael Halldór Reynisson Skoðun Próf, einkunnir og (PISA) mat á skólakerfi. Hluti 1. Jón Torfi Jónasson Skoðun Bubbi Morthens og endalok alheimsins Kristján Logason Skoðun EES-samningurinn og regluverk atvinnulífsins Ólafur Stephensen Skoðun Ábyrgur hagsmunaseggur eða óábyrgt fórnarlamb? Þórdís Hólm Filipsdóttir Skoðun Þegar öll hafa svörin skiptir hugsunin mestu Hjálmar Bogi Hafliðason Skoðun Ísland sagði nei – en sagði það nei við Evrópu? Valerio Gargiulo Skoðun Á að mismuna lántökum? Jón Guðni Ómarsson Skoðun Skoðun Skoðun Marta Kos verður að virða niðurstöðuna Erna Bjarnadóttir skrifar Skoðun Þegar góður ásetningur skilur börn eftir Guðjóna Eygló Friðriksdóttir skrifar Skoðun Gagnaver, Verne og Ísrael Halldór Reynisson skrifar Skoðun Sterkari innviðir fyrir STEM menntun Huld Hafliðadóttir skrifar Skoðun Ísland sagði nei – en sagði það nei við Evrópu? Valerio Gargiulo skrifar Skoðun EES-samningurinn og regluverk atvinnulífsins Ólafur Stephensen skrifar Skoðun Ábyrgur hagsmunaseggur eða óábyrgt fórnarlamb? Þórdís Hólm Filipsdóttir skrifar Skoðun Milljón hugmyndir, hundrað tímamót Sigvaldi Einarsson skrifar Skoðun Fjórða valdið? En það ert þú! Þorsteinn J. Vilhjálmsson skrifar Skoðun Að velta eigin sök á aðra Sigurjón Þórðarson skrifar Skoðun Próf, einkunnir og (PISA) mat á skólakerfi. Hluti 1. Jón Torfi Jónasson skrifar Skoðun Hvers eiga börnin að gjalda? Magnea Gná Jóhannsdóttir skrifar Skoðun Á að mismuna lántökum? Jón Guðni Ómarsson skrifar Skoðun Þegar öll hafa svörin skiptir hugsunin mestu Hjálmar Bogi Hafliðason skrifar Skoðun Bubbi Morthens og endalok alheimsins Kristján Logason skrifar Skoðun Þýsklendingar á meðal vor Darri Eyþórsson skrifar Skoðun Þöllin á þorpinu Jakob Tryggvason skrifar Skoðun Þjóðin sagði nei. En „látum eins og ekkert sé…” Íris Erlingsdóttir skrifar Skoðun Málshraðasögur Eva Hauksdóttir skrifar Skoðun Búrkuball í inngildingarviku Þórarinn Hjartarson skrifar Skoðun Þjóðaratkvæðgreiðslan: Aðild að Evrópusambandinu hafnað Kristinn H. Gunnarsson skrifar Skoðun Blekking litla samfélagsins Sævar Þór Jónsson skrifar Skoðun Farsælt samstarf sveitarfélaga á höfuðborgarsvæðinu í 50 ár Páll Björgvin Guðmundsson skrifar Skoðun Bókun 35: Munurinn á stjórnarskrá Noregs og Íslands Júlíus Valsson skrifar Skoðun Kærleikur er pönk Guðný Þorsteinsdóttir skrifar Skoðun Er kostnaðurinn einskis virði? Hrafn Gunnarsson skrifar Skoðun Mikilvægi þess að lifa æskuna af Einar Torfi Einarsson Reynis skrifar Skoðun Hvað ef svarið hefði verið já? Eva Magnúsdóttir skrifar Skoðun Húsnæðisstefnan sem gerði ungt fólk að leiguliðum Yngvi Ómar Sigrúnarson skrifar Skoðun Veist þú í raun hvernig gervigreind virkar? Bjarki Sigurjónsson Thorarensen skrifar Sjá meira
Skoðun Farsælt samstarf sveitarfélaga á höfuðborgarsvæðinu í 50 ár Páll Björgvin Guðmundsson skrifar