Um fáránleika þess að raska grafarró þjóðskáldsins Sævar Þór Jónsson skrifar 2. júní 2026 10:30 Það fór hrollur um marga landsmenn þegar fréttir bárust af því að hópur þjóðþekktra einstaklinga hefði lagt fram formlega beiðni til Þingvallanefndar um að fá að grafa upp jarðneskar leifar Jónasar Hallgrímssonar í þjóðargrafreitnum á Þingvöllum í þeim tilgangi að taka DNA-sýni úr beinunum, meðal annars til að skera úr um gamla þjóðsögu. Viðbrögð Þingvallanefndar voru hárrétt og sýna nauðsynlega virðingu fyrir lögum og reglum landsin. Nefndin benti á að hún geti ekki og megi ekki veita slíka heimild nema fyrir liggi skýr dómsúrskurður. Að ætla að raska grafarró eins ástsælasta skálds þjóðarinnar vegna dægurflugna eins og framleiðslu kvikmyndar er vægast sagt fáránleg hugmynd. Grafarró á að vera heilög, og henni verður ekki fórnað á altari forvitninnar. Áratuga reikistefna og danski bakarinn Hugmyndin um að beinin á Þingvöllum tilheyri mögulega einhverjum öðrum en listaskáldinu góða er þó ekki ný af nálinni. Þessi þjóðsaga hefur fylgt Íslendingum í áratugi. Allt hófst þetta sumarið 1946 þegar beinin voru grafin upp úr Assistentkirkjugarðinum í Kaupmannahöfn undir stjórn Matthíasar Þórðarsonar þjóðminjavarðar. Uppgreftrinum fylgdu miklar deilur og pólitísk hringavitleysa um hvar skáldið skyldi jarðsett. Fljótlega fóru af stað sögusagnir um innihald kistunnar. Halldór Laxness gerði þessar sögusagnir ódauðlegar á eftirminnilegan hátt í skáldsögu sinni Atómstöðinni árið 1947, þar sem látið var að því liggja að allt annað en leifar listaskáldsins góða leyndust í kistunni. Hafa menn bæði í gríni og alvöru gælt við þá kenningu að í stað Jónasar hvíli danskur bakari í þjóðargrafreitnum. Vísindalegur möguleiki en siðferðislegt glapræði Það er vissulega rétt að með nútíma aðferðum, eins og DNA-raðgreiningu, væri tæknilega hægt að skera úr um sannleikann. En hvar drögum við línuna? Á að opna grafir sögulegra persóna í hvert skipti sem einhverjum dettur í hug að framleiða heimildarmynd eða svala persónulegri forvitni? Grafreiturinn á Þingvöllum er helgur staður friðar og virðingar. Að ætla að mæta þangað með skóflur og tæki til að nálgast erfðaefni án þess að fyrir liggi ríkir almannahagsmunir eða dómsúrskurður líkt og kveðið er á um í íslenskum lögum gengur gegn öllu siðferði. Jónas Hallgrímsson gaf okkur nýja sýn á fegurð tungumálsins og nýja sýn á landið okkar og menningu þjóðarinnar. Það minnsta sem við getum gert til að launa honum er að leyfa honum að hvíla í friði í íslenskri moldu, án þess að vísindamenn og kvikmyndagerðarfólk séu að raska ró hans. Sumar leyndardómar eiga einfaldlega að fá að vera í friði. Höfundur er hæstaréttarlögmaður. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Sævar Þór Jónsson Þjóðgarðar Þingvellir Kirkjugarðar Jarðneskar leifar Jónasar Hallgrímssonar Mest lesið Eftir Kveiksþátt Anna Björg Jónsdóttir,Hjördís Halldóra Sigurðardóttir Skoðun Flokkur fólksins tekur í handbremsuna Eyjólfur Ármannsson Skoðun Ríkið vill minnst tvö og hálft ár milli barnanna þinna Karítas Ólafsdóttir Skoðun Cornell og klefamenning Olga Björt Þórðardóttir Skoðun Menning er ekki bisnessplan Birgir Þórarinsson Skoðun Getur Gufunesið talist skapandi hverfi ef Listhúsið lokar? Narfi Þorsteinsson Skoðun Þorum við að banna Airbnb eða erum við líka siðferðislegir hugleysingjar? Helen Ólafsdóttir Skoðun Hvenær eru kjósendur blekktir? Gunnar Ármannsson Skoðun Þegar fyrirsögnin finnur orsökina á undan rannsókninni Elísabet Reynisdóttir Skoðun Af hverju má ég ekki eiga Chihuahua af því að ég bý í húsnæði fyrir fatlað fólk? Ingibjörg Dóra Scheving Bjarnadóttir Skoðun Skoðun Skoðun Þorum við að tala um sorgina? Stefán Már Gunnlaugsson skrifar Skoðun Verklokafælni stjórnvalda Kjartan Björgvinsson skrifar Skoðun Við getum gert betur Hulda Brá Magnadóttir skrifar Skoðun Hverjum er frelsið ætlað? Guðný S. Bjarnadóttir skrifar Skoðun Bakslag fyrir barnafjölskyldur í Hafnarfirði Valdimar Víðisson skrifar Skoðun Þorum við að banna Airbnb eða erum við líka siðferðislegir hugleysingjar? Helen Ólafsdóttir skrifar Skoðun Skattfé er einnota Erna Bjarnadóttir skrifar Skoðun Forvarnadagurinn er í dag María Heimisdóttir skrifar Skoðun Af hverju má ég ekki eiga Chihuahua af því að ég bý í húsnæði fyrir fatlað fólk? Ingibjörg Dóra Scheving Bjarnadóttir skrifar Skoðun Réttindi eiga að vera raunveruleg Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir skrifar Skoðun Flokkur fólksins tekur í handbremsuna Eyjólfur Ármannsson skrifar Skoðun Áramótaheit ríkisstjórnarinnar Helgi Brynjarsson skrifar Skoðun Menning er ekki bisnessplan Birgir Þórarinsson skrifar Skoðun Þegar allt verður þjónusta Valerio Gargiulo skrifar Skoðun Ríkið vill minnst tvö og hálft ár milli barnanna þinna Karítas Ólafsdóttir skrifar Skoðun Hvenær eru kjósendur blekktir? Gunnar Ármannsson skrifar Skoðun Cornell og klefamenning Olga Björt Þórðardóttir skrifar Skoðun Eftir Kveiksþátt Anna Björg Jónsdóttir,Hjördís Halldóra Sigurðardóttir skrifar Skoðun Almannatryggingar í 90 ár Alma D. Möller skrifar Skoðun Frá styrkjum til stefnumótunar Hrönn Ingólfsdóttir skrifar Skoðun Boltinn er hjá ykkur Matthías Bjarnason skrifar Skoðun Golfið lækning við hálfónýtum maga og þörmum? Gunnar Salvarsson skrifar Skoðun Þegar fyrirsögnin finnur orsökina á undan rannsókninni Elísabet Reynisdóttir skrifar Skoðun Fleiri leiðir til Evrópusamstarfs Erna Bjarnadóttir skrifar Skoðun Tiplað inn í framtíð ferðaþjónustunnar Inga Hlín Pálsdóttir skrifar Skoðun Ró á vinnumarkaði krefst skýrra leikreglna Halldóra Sigr. Sveinsdóttir skrifar Skoðun Atvinna, ábyrg nýting og hagsmunir nærsamfélagsins Björn Bjarki Þorsteinsson skrifar Skoðun Hættum að endurræsa menntakerfið, byrjum að halda áfram Hjálmar Bogi Hafliðason skrifar Skoðun Það þarf heilt þorp Björg Magnúsdóttir,Sandra Hlín Guðmundsdóttir skrifar Skoðun Getur Gufunesið talist skapandi hverfi ef Listhúsið lokar? Narfi Þorsteinsson skrifar Sjá meira
Það fór hrollur um marga landsmenn þegar fréttir bárust af því að hópur þjóðþekktra einstaklinga hefði lagt fram formlega beiðni til Þingvallanefndar um að fá að grafa upp jarðneskar leifar Jónasar Hallgrímssonar í þjóðargrafreitnum á Þingvöllum í þeim tilgangi að taka DNA-sýni úr beinunum, meðal annars til að skera úr um gamla þjóðsögu. Viðbrögð Þingvallanefndar voru hárrétt og sýna nauðsynlega virðingu fyrir lögum og reglum landsin. Nefndin benti á að hún geti ekki og megi ekki veita slíka heimild nema fyrir liggi skýr dómsúrskurður. Að ætla að raska grafarró eins ástsælasta skálds þjóðarinnar vegna dægurflugna eins og framleiðslu kvikmyndar er vægast sagt fáránleg hugmynd. Grafarró á að vera heilög, og henni verður ekki fórnað á altari forvitninnar. Áratuga reikistefna og danski bakarinn Hugmyndin um að beinin á Þingvöllum tilheyri mögulega einhverjum öðrum en listaskáldinu góða er þó ekki ný af nálinni. Þessi þjóðsaga hefur fylgt Íslendingum í áratugi. Allt hófst þetta sumarið 1946 þegar beinin voru grafin upp úr Assistentkirkjugarðinum í Kaupmannahöfn undir stjórn Matthíasar Þórðarsonar þjóðminjavarðar. Uppgreftrinum fylgdu miklar deilur og pólitísk hringavitleysa um hvar skáldið skyldi jarðsett. Fljótlega fóru af stað sögusagnir um innihald kistunnar. Halldór Laxness gerði þessar sögusagnir ódauðlegar á eftirminnilegan hátt í skáldsögu sinni Atómstöðinni árið 1947, þar sem látið var að því liggja að allt annað en leifar listaskáldsins góða leyndust í kistunni. Hafa menn bæði í gríni og alvöru gælt við þá kenningu að í stað Jónasar hvíli danskur bakari í þjóðargrafreitnum. Vísindalegur möguleiki en siðferðislegt glapræði Það er vissulega rétt að með nútíma aðferðum, eins og DNA-raðgreiningu, væri tæknilega hægt að skera úr um sannleikann. En hvar drögum við línuna? Á að opna grafir sögulegra persóna í hvert skipti sem einhverjum dettur í hug að framleiða heimildarmynd eða svala persónulegri forvitni? Grafreiturinn á Þingvöllum er helgur staður friðar og virðingar. Að ætla að mæta þangað með skóflur og tæki til að nálgast erfðaefni án þess að fyrir liggi ríkir almannahagsmunir eða dómsúrskurður líkt og kveðið er á um í íslenskum lögum gengur gegn öllu siðferði. Jónas Hallgrímsson gaf okkur nýja sýn á fegurð tungumálsins og nýja sýn á landið okkar og menningu þjóðarinnar. Það minnsta sem við getum gert til að launa honum er að leyfa honum að hvíla í friði í íslenskri moldu, án þess að vísindamenn og kvikmyndagerðarfólk séu að raska ró hans. Sumar leyndardómar eiga einfaldlega að fá að vera í friði. Höfundur er hæstaréttarlögmaður.
Af hverju má ég ekki eiga Chihuahua af því að ég bý í húsnæði fyrir fatlað fólk? Ingibjörg Dóra Scheving Bjarnadóttir Skoðun
Skoðun Þorum við að banna Airbnb eða erum við líka siðferðislegir hugleysingjar? Helen Ólafsdóttir skrifar
Skoðun Af hverju má ég ekki eiga Chihuahua af því að ég bý í húsnæði fyrir fatlað fólk? Ingibjörg Dóra Scheving Bjarnadóttir skrifar
Af hverju má ég ekki eiga Chihuahua af því að ég bý í húsnæði fyrir fatlað fólk? Ingibjörg Dóra Scheving Bjarnadóttir Skoðun