Framkvæmd skólastefnu fær falleinkunn Gunnar Salvarsson skrifar 2. júní 2026 14:02 Framkvæmd stefnunnar um skóla án aðgreiningar virðist fá falleinkunn hjá tveimur af helstu kyndilberum stefnunnar á sínum tíma. Stefnan sjálf um að öll börn sæki nám í hverfisskóla er ljómandi falleg og styður göfug markmið um jöfnuð og samfélag án útilokunar. Að unnt væri að framkvæma þá draumsýn reyndist hins vegar vera tálsýn, eins og niðurstöður nýrrar skýrslu kennslufræðinganna Ingvars Sigurgeirssonar og Lilju M. Jónsdóttur bera með sér. Í skýrslunni er víða bent á nauðsyn þess að beita sérúrræðum, en fyrir þremur áratugum þegar stefnan var kynnt, mátti vart ræða neitt sem væri „sér“. Allt átti að vera án aðgreiningar. Starfsumhverfi í grunnskólum, álag, ástæður og úrbætur er yfirheiti skýrslunnar og þar segir meðal annars um börn með mikinn vanda: „Horfast verður í augu við það að eins og nú horfir við virðist mun auðveldara að aðlaga námskrá að þessum hópi í sérúrræðum en oftast virðist unnt í almennum bekkjardeildum grunnskólanna. Meðan svo er, verður að finna aðrar leiðir til að styðja þessi börn. Um þetta gætu sveitarfélögin á höfuðborgarsvæðinu sameinast.“ Fjölga þarf sérhæfðum úrræðum Skýrslan byggir á rannsókn á starfsaðstæðum starfsfólks í grunnskólum á höfuðborgarsvæðinu og ætti að vekja athygli langt út fyrir raðir kennara og skólastjórnenda. Meðal þeirra úrbóta sem starfsfólk skólanna telur brýnastar er að fjölga sérfræðingum, efla stoðþjónustu og skapa fleiri sérhæfð úrræði fyrir börn með alvarlegan hegðunar-, félags- eða geðrænan vanda. Þá er kallað eftir skýrari ferlum, sérfræðiteymum, sérdeildum og öðrum úrræðum fyrir þann hóp nemenda sem þarf meiri stuðning en almennt skólastarf ræður við. Þetta ætti ekki að koma neinum á óvart. Ef reynt er að draga í fáeinum orðum upp stóru línurnar í skýrslunni eru þær þessar: Álag hefur aukist verulega. Nemendahópurinn hefur orðið fjölbreyttari, börnum með annað móðurmál en íslensku hefur fjölgað, hegðunarvandi er meiri en áður og fleiri börn glíma við alvarleg félagsleg og geðræn vandamál. Jafnframt hefur hlutverk skólanna í uppeldi barna aukist og samskipti við foreldra orðið umfangsmeiri og oft flóknari. Þetta eru mikilvægar niðurstöður en í raun aðeins staðfesting á því sem margir kennarar og skólastjórnendur hafa vitað í áraraðir. Sveitarfélögin sameinist… Í skýrslunni er einnig bent á annað sem kjörnir fulltrúar á höfuðborgarsvæðinu ættu að taka mjög alvarlega. Vandamálin sem þar er lýst eru ekki bundin við eitt sveitarfélag. Þau birtast í mismunandi myndum um allt höfuðborgarsvæðið. Þess vegna benda skýrsluhöfundar einmitt á að erfitt sé að sjá að farsælasta leiðin sé sú að hvert sveitarfélag reyni að þróa eigin úrræði, eigin sérfræðiteymi og eigin lausnir. Þvert á móti liggur beint við að sveitarfélögin sameinist um þau verkefni sem eru bæði kostnaðarsöm og sérhæfð. Sameiginleg sérúrræði, sérdeildir, ráðgjafarteymi og fagþjónusta gætu þjónað öllum grunnskólum svæðisins. Með slíku samstarfi mætti bæði nýta fjármuni betur og tryggja meiri fagleg gæði. Það væri því skynsamlegt fyrsta skref að borgarstjóri Reykjavíkur og bæjarstjórar nágrannasveitarfélaganna kæmu saman og settu af stað sameiginlega aðgerðaáætlun um úrbætur í grunnskólum höfuðborgarsvæðisins. Þar yrði sérstök áhersla lögð á sérhæfð úrræði fyrir börn með mestan vanda, aukna stoðþjónustu við kennara og markvissari stuðning við þá skóla sem búa við mest álag. Ingvar og Lilja María hafa unnið þarft verk við að greina vandann. Nú er komið að þeim sem bera ábyrgð á rekstri skólanna að sýna að þeir hafi vilja til að bregðast við honum. Höfundur er fyrrverandi skólastjóri í sérskóla. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Gunnar Salvarsson Mest lesið Opnum dyr fyrir innviðafjárfestingu um allt land Logi Einarsson Skoðun Fleiri valkostir og sterkari staða ef við segjum já Ragna Sigurðardóttir Skoðun Ísland, Evrópa og áhrifasvæði stórvelda Þorsteinn Kristinsson Skoðun Eru 532 milljarðar minni tala en 245 milljarðar? Egill Almar Ágústsson Skoðun Referendum: Gratitude and Outlook from the Swiss Substitute Carl Baudenbacher Skoðun Eldra fólk ætti alls ekki að kjósa nei Björn B Björnsson Skoðun Hvað kostar „þetta reddast“? Guðríður Lára Þrastardóttir Skoðun Hvaða þýðingu hefur óvissa um aðildarsamning að ESB? Jón Jónsson Skoðun Hóparnir þrír sem segja JÁ Rúnar Vilhjálmsson Skoðun 600 þúsund manna Ísland – ætlum við að byggja það sjálf? Eyjólfur Ingvi Bjarnason Skoðun Skoðun Skoðun Er ég að bregðast börnunum mínum með því að segja NEI? Monika Margrét Stefánsdóttir skrifar Skoðun Gamli sáttmálinn og sá nýi Aðalsteinn Már Þorsteinsson skrifar Skoðun Er betra? Sigþrúður Ármann skrifar Skoðun Útgerðarauðvaldið vill í ESB - ég segi nei Ögmundur Jónasson skrifar Skoðun Gervigreind, gagnaver og tækifæri Íslands Eymundur Sigurðsson skrifar Skoðun Sveitirnar þagna Walter Fannar Kristjánsson skrifar Skoðun Áður en lengra er haldið Þórarinn Ingi Pétursson skrifar Skoðun Erum við of fljót að kenna samfélagsmiðlum um? Elísabet Reynisdóttir skrifar Skoðun Börn læra ekki fyrir framtíð sem þau skynja ekki Helgi S. Karlsson skrifar Skoðun Danir, ESB og staða Íslands Finnur Torfi Magnússon skrifar Skoðun Hvað kostar „þetta reddast“? Guðríður Lára Þrastardóttir skrifar Skoðun Frá öllum til allra með nútímalegum sjúkratryggingum Sigurður H. Helgason skrifar Skoðun Tækifærið er núna Agnar H. Johnson skrifar Skoðun Einelti og samskiptahættir kvenna á Íslandi Vigdís Ásgeirsdóttir skrifar Skoðun 600 þúsund manna Ísland – ætlum við að byggja það sjálf? Eyjólfur Ingvi Bjarnason skrifar Skoðun Hlaupið er búið - en láttu það ekki stoppa þig Sigrún Elva Einarsdóttir skrifar Skoðun Aðildarviðræður eru ekki prufuáskrift Guðbjörg Oddný Jónasdóttir skrifar Skoðun Trump á ekki að vera ástæðan Friðjón R. Friðjónsson skrifar Skoðun Hvernig lækka vextir með upptöku evru? Gauti B. Eggertsson skrifar Skoðun Eldra fólk ætti alls ekki að kjósa nei Björn B Björnsson skrifar Skoðun Fleiri valkostir og sterkari staða ef við segjum já Ragna Sigurðardóttir skrifar Skoðun Samkeppniseftirlitið eitt og sér Sigurjón Þórðarson skrifar Skoðun Opnum dyr fyrir innviðafjárfestingu um allt land Logi Einarsson skrifar Skoðun Hinn ólánsami Ólafur Ragnar Lúðvík Bergvinsson skrifar Skoðun Milljarða ávinningur af evru – fyrir heimilin, fyrirtækin, ríkið, sveitarfélögin og þjóðina alla Baldur Pétursson skrifar Skoðun Skipulag sem má ekki borga sig! Íris Björk Hreinsdóttir skrifar Skoðun Ísland, Evrópa og áhrifasvæði stórvelda Þorsteinn Kristinsson skrifar Skoðun Hvaða þýðingu hefur óvissa um aðildarsamning að ESB? Jón Jónsson skrifar Skoðun Ástkæra, ylhýra, orðljóta málið… mitt Íris Erlingsdóttir skrifar Skoðun Referendum: Gratitude and Outlook from the Swiss Substitute Carl Baudenbacher skrifar Sjá meira
Skoðun Milljarða ávinningur af evru – fyrir heimilin, fyrirtækin, ríkið, sveitarfélögin og þjóðina alla Baldur Pétursson skrifar