Her- og gervimenn Viðreisnar Jón Pétur Zimsen skrifar 3. júní 2026 15:10 Fyrir rúmri viku síðan birtist grein á Vísi eftir Óðin Frey Baldursson, formann Ungra Evrópusinna, þar sem útgangspunkturinn var að enginn teljandi stuðningur væri við það innan Evrópusambandsins að til yrði endanlega sérstakur her sambandsins. Með greininni brást hann við grein eftir mig sem birst hafði á miðlinum skömmu áður þar sem ég benti meðal annars á að þegar væri vísir að slíkum her. Vildi Óðinn Freyr meina að stuðningur við Evrópusambandsher væri „hugarfóstur eins manns“ á þingi ESB, Andrius Kubilius sem reyndar er ekki þingmaður heldur varnarmálastjóri sambandsins eins og ég hafði bent á að hefði kallað eftir 100 þúsund manna fastaher ESB í janúar. Óðinn bætti svo við síðar í greininni: „Vissulega á hugmyndin sér einhverja stuðningsmenn umfram þennan eina þingmann.“ Ég benti á það í svargrein minni, fyrir utan það að Kubilius væri æðsti embættismaður ESB á sviði varnarmála, að fjölmargir pólitískir forystumenn innan sambandsins hefðu þvert á móti lýst yfir stuðningi við ESB-her. Þar á meðal í röðum samtaka frjálslyndra flokka í Evrópu sem Viðreisn, flokkur Óðins, ætti aðild að. Þar með talinn heiðursgestur Viðreisnar á síðasta landsþingi flokksins. Við þessu brást Óðinn í grein fyrr í þessari viku með því að taka alveg nýjan pól í hæðina. Nú sagðist hann hefði sjálfur „að hugmyndin eigi sér áhrifamikla talsmenn“. Það sagði Óðinn hins vegar alls ekki eins og áður er rakið heldur gekk grein hans þvert á móti út á það gera sem allra minnst út stuðningi við málum. Samanber talið um „hugarfóstur eins manns“ og síðan „einhverja stuðningsmenn“. Þessi óreiða öll hjá Óðni lyktar öll af fljótfærni og slælegri notkun gervigreindar, sem er miður. Ég benti einnig á að mikill stuðningur væri við ESB-her í röðum almennings innan ESB sem Óðinn kaus að bregðast ekki við. Samkvæmt skoðanakönnun sem gerð var fyrir fréttavefinn Politico í mars og náði til 6.698 manns í Þýskalandi, Frakklandi, Póllandi, Belgíu, á Spáni og á Ítalíu, sögðust 69% hlynnt slíkum her. Stuðningurinn var mestur í Belgíu (83%) og minnstur í Frakklandi (60%). Veruleikinn er sá að vaxandi stuðningur hefur verið við það að til verði endanlega ESB-her sem þegar er kominn vísir að eins og ég rakti í fyrri greinum. Þetta er mikilvægt að taka inn í myndina þegar rætt er um hvort Ísland eigi að ganga í ESB. Miðað við þróun mála innan sambandsins er viðbúið að fyrr en síðar yrði ætlast til þess að Ísland leggði sitt að mörkum til jafns við önnur ríki innan þess. Hins vegar viðurkennir Óðinn það sem ég benti á í fyrri skrifum mínum að Ísland væri í annarri stöðu gagnvart Bandaríkjunum þegar komi að varnarmálum en önnur Evrópuríki þar sem varnir landsins séu vegna landfræðilegrar legu þess hluti af heimavörnum Bandaríkjamanna. Segir hann það vel mega vera varðandi hernaðarlegar varnir en segir skrif sín aðallega hafa snúist um efnahagslegt öryggi. Raunar var efnahagslegt öryggi aðeins hálfgerð neðanmálsgrein í skrifum Óðins en gott og vel. Það er sjálfsagt að ræða þau mál. Óðinn leggur einkum áherslu á tollamál í því sambandi og að við lendum ekki á milli í tollastríðum stórvelda. Værum við innan tollamúra ESB værum við hins vegar alltaf beinir aðilar að tollastríðum sem sambandið stæði í við önnur ríki og markaðssvæði. Skoðum þetta aðeins betur. Bandaríkin lögðu fyrst á Ísland 10% toll en 20% á ESB. Tollarnir á Ísland voru svo hækkaðir í 15% en sambandinu var fyrst hótað 50% tollum og síðan 30%. Tollurinn á ESB varð svo 15%, sá sami og á Ísland, eftir gerð viðskiptasamnings á milli Bandaríkjanna og ESB sem fól í sér ýmsa eftirgjöf sambandsins. Meðal annars aukin kaup á bandarískri orku og vopnum. Vitanlega sjá allir að við hefðum verið í betri málum innan ESB, ekki satt? Hins vegar er það sem ESB-sinnar benda aðallega á er að hefði Ísland verið innan ESB hefði sambandið ekki lagt refsitolla á íslenskt járnblendi án þess að eiga neitt sökótt við okkur og þvert á EES-samninginn. Viljum við Íslendingar í alvöru vera hluti af slíkum félagsskap ofan á allt annað sem því fylgdi? Talandi síðan um efnahagslegt öryggi skulum við ekki gleyma því hvernig ESB og riki þess, einkum forysturíkið Þýskaland, tókst að verða háð rússneskri orku áratugum saman, setja með því einmitt efnahagslegt öryggi sambandsins í fullkomið uppnám og fjármagna um leið hernað Rússlands Í Úkraínu og það samkvæmt orðum forystumanna þess sjálfs. Og eru enn að því! Höfundur er þingmaður Sjálfstæðisflokksins Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Skoðun: Þjóðaratkvæðagreiðsla um ESB-viðræður Jón Pétur Zimsen Tengdar fréttir Hvað ertu hræddur við, Jón Pétur Zimsen? Þegar rök eru á þrotum þá grípur maður í þvælu. 1. júní 2026 09:32 Mest lesið Til hamingju... með hvað? Einar Jóhannes Guðnason Skoðun Verðmætin verða ekki til af sjálfu sér Hafdís Gunnarsdóttir Skoðun 60 milljarðarnir sem enginn talar um Kári Sigurðsson Skoðun Ekki er allt gull sem glóir Eydís Ásbjörnsdóttir Skoðun Til foreldra trans barna og ungmenna María Gunnarsdóttir Skoðun Tilvistarkreppa borðstofunnar Gunnar Salvarsson Skoðun Laxeldi á Seyðisfirði Kristján Ingimarsson Skoðun Erum við að borða það sem við höldum að við séum að borða? Elísabet Reynisdóttir Skoðun Norrænt sambandsríki – næsta skref! Hrannar Björn Arnarsson Skoðun Barn fyrir bíl Albína Pálsdóttir,Anna Margrét Ásbjarnardóttir,Brynhildur Bolladóttir,Geir Finnsson,Gísli Marteinn Baldursson,Halldóra Þórsdóttir,Hrafnhildur Ingibjargardóttir Hallsdóttir,Kjartan Sveinn Guðmundsson,Rán Flygenring,Sveinn Þórhallsson ,Viktor Lorange Skoðun Skoðun Skoðun Nýsköpun er besta byggðastefnan Lilja Björg Ágústsdóttir skrifar Skoðun Til hamingju... með hvað? Einar Jóhannes Guðnason skrifar Skoðun Tíminn sem tapast þegar næringin fylgir ekki æfingaálaginu Lilja Guðmundsdóttir ,Arnar Sölvi Arnmundsson skrifar Skoðun Ekkert leyniletur heldur íslenskt ritmál – Punktaletur á að vera sjálfsagður hlutur Hjalti Sigurðsson skrifar Skoðun Hvað kemur ESB málinu við? Erna Bjarnadóttir skrifar Skoðun Barn fyrir bíl Albína Pálsdóttir,Anna Margrét Ásbjarnardóttir,Brynhildur Bolladóttir,Geir Finnsson,Gísli Marteinn Baldursson,Halldóra Þórsdóttir,Hrafnhildur Ingibjargardóttir Hallsdóttir,Kjartan Sveinn Guðmundsson,Rán Flygenring,Sveinn Þórhallsson ,Viktor Lorange skrifar Skoðun Flokkur fólksins klippir á bremsur unga fólksins Óðinn Freyr Baldursson skrifar Skoðun Tilvistarkreppa borðstofunnar Gunnar Salvarsson skrifar Skoðun Af hverju ekki hún? Thelma Kristín Kvaran skrifar Skoðun Norrænt sambandsríki – næsta skref! Hrannar Björn Arnarsson skrifar Skoðun Hvers vegna eru niðurstöður PISA leyndarmál? Jón Pétur Zimsen skrifar Skoðun Ekki er allt gull sem glóir Eydís Ásbjörnsdóttir skrifar Skoðun Verðmætin verða ekki til af sjálfu sér Hafdís Gunnarsdóttir skrifar Skoðun Hvað varð um tillögurnar? Ragnhildur Jónsdóttir skrifar Skoðun Spyrjið okkur hvað við sjáum á TikTok Lena Amirsdóttir Mulamuhic skrifar Skoðun Erum við að borða það sem við höldum að við séum að borða? Elísabet Reynisdóttir skrifar Skoðun Lyf eru fjárfesting í fólki og framtíðinni Erla Sigríður Skarphéðinsdóttir skrifar Skoðun Mikilvæg niðurstaða fyrir launafólk Finnbjörn A. Hermannsson skrifar Skoðun Valkvætt samhengi Ásdísar svo hún geti teiknað upp réttu fyrirsögnina Eydís Inga Valsdóttir skrifar Skoðun Laxeldi á Seyðisfirði Kristján Ingimarsson skrifar Skoðun Til foreldra trans barna og ungmenna María Gunnarsdóttir skrifar Skoðun Vextir og vöxtur nýsköpunar Kjartan Björgvinsson skrifar Skoðun Allir vinna – fjárfestum í því sem við eigum Birna Ósk Einarsdóttir skrifar Skoðun Þrjú höfuð eru betri en eitt Sæþór Randalsson skrifar Skoðun Náttúruverndargjald: Rétt hugmynd, of þröng útfærsla Guðmundur Björnsson skrifar Skoðun 60 milljarðarnir sem enginn talar um Kári Sigurðsson skrifar Skoðun Skólamál verða ekki byggð á hentistefnu Valdimar Víðisson skrifar Skoðun Rétt mönnun í hjúkrun er fjárfesting í öryggi og gæðum Helga Rósa Másdóttir skrifar Skoðun Sá sem vinnur gervigreindarstríðið vinnur heiminn. En hver ræður þá heiminum? Sigvaldi Einarsson skrifar Skoðun Bær í vexti - nýtt aðalskipulag Hafnarfjarðar Stefán Már Gunnlaugsson skrifar Sjá meira
Hvað ertu hræddur við, Jón Pétur Zimsen? Þegar rök eru á þrotum þá grípur maður í þvælu. 1. júní 2026 09:32
Barn fyrir bíl Albína Pálsdóttir,Anna Margrét Ásbjarnardóttir,Brynhildur Bolladóttir,Geir Finnsson,Gísli Marteinn Baldursson,Halldóra Þórsdóttir,Hrafnhildur Ingibjargardóttir Hallsdóttir,Kjartan Sveinn Guðmundsson,Rán Flygenring,Sveinn Þórhallsson ,Viktor Lorange Skoðun
Skoðun Tíminn sem tapast þegar næringin fylgir ekki æfingaálaginu Lilja Guðmundsdóttir ,Arnar Sölvi Arnmundsson skrifar
Skoðun Ekkert leyniletur heldur íslenskt ritmál – Punktaletur á að vera sjálfsagður hlutur Hjalti Sigurðsson skrifar
Skoðun Barn fyrir bíl Albína Pálsdóttir,Anna Margrét Ásbjarnardóttir,Brynhildur Bolladóttir,Geir Finnsson,Gísli Marteinn Baldursson,Halldóra Þórsdóttir,Hrafnhildur Ingibjargardóttir Hallsdóttir,Kjartan Sveinn Guðmundsson,Rán Flygenring,Sveinn Þórhallsson ,Viktor Lorange skrifar
Skoðun Valkvætt samhengi Ásdísar svo hún geti teiknað upp réttu fyrirsögnina Eydís Inga Valsdóttir skrifar
Skoðun Sá sem vinnur gervigreindarstríðið vinnur heiminn. En hver ræður þá heiminum? Sigvaldi Einarsson skrifar
Barn fyrir bíl Albína Pálsdóttir,Anna Margrét Ásbjarnardóttir,Brynhildur Bolladóttir,Geir Finnsson,Gísli Marteinn Baldursson,Halldóra Þórsdóttir,Hrafnhildur Ingibjargardóttir Hallsdóttir,Kjartan Sveinn Guðmundsson,Rán Flygenring,Sveinn Þórhallsson ,Viktor Lorange Skoðun