Greinarstúfur um tillögur stjórnvalda um að leggja niður heilbrigðiseftirlitin í landinu Ásdís H. Bjarnadóttir skrifar 4. júní 2026 16:00 Á löggjafarþingi liggja fyrir tvö frumvörp, annars vegar nr 687 um einföldun regluverks og aukin skilvirkni eftirlits með hollustuháttum og mengunarvörnum og hinsvegar um stofnun atvinnuveganna mál 568. Er verið að leysa rétt vandamál? Með þessum lagafrumvörpum er lagt til að leggja niður heilbrigðiseftirlit sveitarfélaga og flytja matvælaeftirlit til Matvælastofnunar (MAST), sem fer þá undir nýja stofnun - Stofnun atvinnuveganna, og mengunareftirlit til Umhverfis- og orkustofnunar (UOS). Helstu rökin hafa verið að ESA, Eftirlitsstofnun EFTA, hafi gert alvarlegar athugasemdir við íslenskt eftirlitskerfi og að nauðsynlegt sé að bregðast við þeim. Í þeirri umræðu er mikilvægt að staldra við og spyrja einfaldrar spurningar: Er verið að leysa það vandamál sem ESA benti á eða er verið að breyta skipuriti án þess að ráðast að rót vandans? Þegar rýnt er í athugasemdir ESA kemur í ljós að gagnrýnin hefur fyrst og fremst beinst að samræmingu og sameiginlegum stjórntækjum innan eftirlitskerfisins. ESA hefur bent á að framkvæmd eftirlits geti verið mismunandi milli svæða og að skráning, eftirfylgni og miðlun upplýsinga þurfi að vera samræmdari. Það sem ekki hefur komið fram í umræðunni er að ESA hefur alls ekki komist að þeirri niðurstöðu að sveitarfélög séu óhæf til að sinna eftirliti og hefur ekki lagt til að heilbrigðiseftirlit sveitarfélaga verði lagt niður. Athugasemdirnar beinast fyrst og fremst að ábyrgð stjórnvalda á að tryggja samræmda stjórnun eftirlitskerfisins, óháð hver framkvæmir eftirlitið. Þetta er mjög mikilvægt. Samstarfið er þegar til staðar Sú mynd sem stundum er dregin upp, að eftirlitið sé sundurlaust og hver aðili starfi á eigin forsendum, gefur ekki rétta mynd af raunveruleikanum. Heilbrigðiseftirlit sveitarfélaga hafa um árabil unnið náið með Matvælastofnun, Umhverfis- og loftslagsstofnun og öðrum stjórnvöldum. Allir þessir aðilar vinna eftir sömu lögum, sem dæmi lög nr. 93/1995 um matvæli og lögum nr. 7/1998 um hollustuhætti og mengunarvarnir. Starfshópar innan heilbrigðiseftirlits sveitarfélaga, staðsettir út um allt land, á sviði matvæla, hollustuhátta og mengunarvarna vinna reglulega að samræmingu verklags, túlkun reglna og miðlun reynslu. Spurningin er því ekki hvort samræming sé nauðsynleg. Um það eru flestir sammála. Spurningin er hvernig best sé að miðla henni. Hvar liggur vandinn? Ef lesa má eitthvað út úr athugasemdum ESA er það að ríkið þarf að styrkja þau verkfæri sem samræmt eftirlit byggir á. Í dag skortir samræmda gagnagrunna, sameiginleg skráningarkerfi og heildstæða yfirsýn yfir framkvæmd eftirlits. Þetta getur haft í för með sér að samanburður milli svæða er erfiðari og takmarkað möguleika stjórnvalda til að fylgjast með árangri og samræmi. Þetta er að verulegu leyti innviða-, stjórntækja- og samræmingarvandi, ekki stjórnskipulagsvandi. Samræming verður ekki sjálfkrafa til með því að flytja verkefni milli stofnana. Hún verður til þegar til þess bærir eftirlitsaðilar setja með samræmdum hætti úttektargögn í skráningarkerfi og niðurstöður birtast þjónustuþegum með sama sniði. Þar liggur raunverulegt umbótatækifæri. Sameiginlegir innviðir – raunhæfar umbætur Vilji stjórnvöld bregðast við athugasemdum ESA af festu og ábyrgð ætti áherslan að vera á uppbyggingu sameiginlegra innviða fyrir allt eftirlitskerfið. Það felur meðal annars í sér: Innleiðingu á sameiginlegum gagnagrunni fyrir opinbert eftirlit. Með slíkum gagnagrunni fylgir: samræmdri áhættuflokkun, samræmdri skráning frávika og eftirfylgni, reglubundin innri úttekt, sameiginleg þjálfun, skýrari leiðbeiningar er varðar túlkun laga og reglna og betri yfirsýn yfir eftirlitsáætlanir og niðurstöður á landsvísu. Slík verkfæri myndu nýtast jafnt MAST, UOS og heilbrigðiseftirlitum sveitarfélaga og mæta þeim athugasemdum sem ESA hefur sett fram og tryggt betur þjónustu til eftirlitsþega í stað hættu á þjónusturofi, óvissu er fylgir skipulagsbreytingum og aukins kostnaðar þjónustuþega. Nú þegar er yfirumsjón og ábyrgðarhlutverk opinberu stofnananna skilgreind í lögum hvað varðar eftirlit þeirra löggjafa sem unnið er eftir. Nálægðin hefur gildi Heilbrigðiseftirlit sveitarfélaga hafa áratugum saman byggt upp þekkingu á staðbundnum aðstæðum, atvinnulífi, vatnsverndarsvæðum, fráveitum og fyrirtækjum á sínum svæðum. Einn af styrkleikum núverandi kerfis er að eftirlitið er nálægt íbúum, rekstraraðilum og sveitarfélögum. Sú þekking, mannauður og nálægð flyst ekki sjálfkrafa með lagabreytingu eða breytingu á skipuriti. Staðþekking skiptir gríðarlegu máli og að hægt sé að bregðast hratt við þegar, t.d. mengunarslys koma upp. Samræming er ekki það sama og ríkisvædd miðstýring ESA hefur bent á þörf fyrir aukna samræmingu, betri yfirsýn og sameiginleg verkfæri. Það leiðir ekki sjálfkrafa til þeirrar niðurstöðu að leggja þurfi niður heilbrigðiseftirlit sveitarfélaga eða rjúfa það samþætta eftirlit sem byggst hefur upp á sviði matvæla, hollustuhátta og mengunarvarna. Það að leggja niður Heilbrigðiseftirlit sveitarfélagana gerir eftirlitið ekki skilvirkara heldur kallar á aukið flækjustig og aukinn kostnað fyrir fyrirtæki og aðra þjónustuþega, sem dæmi gististaður með veitingaþjónustu. Eftir breytingu munu rekstraraðila fá eftirlit frá tveimur stofnunum í stað einnar, með tilheyrandi auka kostnaði. Annað flækjustig verður svo til þegar kemur að útgáfu starfsleyfa og rekstrarleyfa og samskiptum við Sýslumannsembættin, án þess að fara hér nánar í þau eða önnur flækjustig. Að lokum Með sameiginlegu stjórntæki fyrir allt eftirlitskerfið má bregðast við ábendingum ESA og varðveita um leið þá nálægð, reynslu og staðþekkingu sem heilbrigðiseftirlit sveitarfélaga hafa byggt upp um allt land. Sú leið er líklegri til að skila raunverulegum umbótum með minni röskun, minni óvissu og betri þjónustu við sveitarfélög, íbúa og atvinnulíf. Höfundur er starfsmaður Heilbrigðiseftirlits Vesturlands. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Heilbrigðismál Mest lesið Gott bú stendur undir sér Róbert Ragnarsson Skoðun Börn þurfa úrræði, ekki innantóm loforð Ása Berglind Hjálmarsdóttir Skoðun Fæðingarorlof fyrir ömmu og afa? Magnea Gná Jóhannsdóttir Skoðun Þegar samþykki virðist verða að ábyrgð brotaþola Herdís Ósk Sveinbjörnsdóttir Skoðun Af þreyttasta frumvarpi íslenskrar þingsögu Árni Guðmundsson Skoðun Að byrja á röngum enda – vítahringur vímuefnavanda, afbrota og refsinga Margrét Dís Yeoman Skoðun Hamfarir í hversdagslegum kringumstæðum Sanna Magdalena Mörtudóttir Skoðun Skörum fram úr í skaðlegu skattaumhverfi Elliði Vignisson Skoðun Hver ætlar að hjúkra þér? Helga Rósa Másdóttir Skoðun Hvers vegna skiptir bókun 35 máli? Eiríkur S. Svavarsson Skoðun Skoðun Skoðun Veitingageiranum var hent undir vagninn Einar Bárðarson skrifar Skoðun Ætlum við að fækka bílum eða bara ökumönnum með sjálfkeyrandi bílum? Kristín Hrefna Halldórsdóttir skrifar Skoðun Úr öskunni í eldinn Ingveldur Anna Sigurðardóttir skrifar Skoðun Hamfarir í hversdagslegum kringumstæðum Sanna Magdalena Mörtudóttir skrifar Skoðun Heimilin eiga ekki alltaf að borga brúsann Alexander M. Árnason skrifar Skoðun Fleiri krónur taldar – fáar nýjar Daði Freyr Ólafsson skrifar Skoðun „The Concert of Three“. Samráð stórveldanna þriggja – ný leið til heimsfriðar? Aðalsteinn Júlíus Magnússon skrifar Skoðun Mikilvægt er að draga lærdóm af smáíbúðamálinu i Hafnarfirði Árni Rúnar Þorvaldsson skrifar Skoðun Farsælt ferðalag fólks og fisks Heiðrún Lind Marteinsdóttir skrifar Skoðun Orkan í ólgusjó efnahagsmála Tinna Traustadóttir skrifar Skoðun Fæðingarorlof fyrir ömmu og afa? Magnea Gná Jóhannsdóttir skrifar Skoðun Gott bú stendur undir sér Róbert Ragnarsson skrifar Skoðun Loksins get ég notið þess að vera heima Ingibjörg Dóra Scheving Bjarnadóttir skrifar Skoðun Þegar samþykki virðist verða að ábyrgð brotaþola Herdís Ósk Sveinbjörnsdóttir skrifar Skoðun Sama fötlun en ólík réttindi - Aldurinn ræður úrslitum - Ásta Ólafsdóttir skrifar Skoðun Umskiptingar Flokks fólksins á Alþingi Júlíus Valsson skrifar Skoðun Okkar fé í Heimum Bergur Hauksson skrifar Skoðun Hver ætlar að hjúkra þér? Helga Rósa Másdóttir skrifar Skoðun Er alveg sama hvað Ísland er dýrt? Björn Ragnarsson skrifar Skoðun Krossinn er ekki matseðill Hilmar Kristinsson skrifar Skoðun Við mælum hávaða en mælum við óskýrleikann? Ragnhildur Bjarkadóttir skrifar Skoðun Hvað gerist í síðari hálfleik? Lovísa Oktovía Eyvindsdóttir skrifar Skoðun Hvers vegna skiptir bókun 35 máli? Eiríkur S. Svavarsson skrifar Skoðun Skörum fram úr í skaðlegu skattaumhverfi Elliði Vignisson skrifar Skoðun Hvernig getum við dregið úr einmanaleika mæðra í fæðingarorlofi? Sigrún Þóra Sveinsdóttir skrifar Skoðun Arfurinn og réttur ríkisins til skattheimtu Gunnar Ármannsson skrifar Skoðun Undir sömu stjörnu – ópera fyrir alla þjóðina Sævar Þór Halldórsson skrifar Skoðun Börn þurfa úrræði, ekki innantóm loforð Ása Berglind Hjálmarsdóttir skrifar Skoðun Ísland á ekki að verða land gjaldhliða Þórir Garðarsson skrifar Skoðun Fokk, ég er með ristilkrabbamein! Matthías Freyr Matthíasson skrifar Sjá meira
Að byrja á röngum enda – vítahringur vímuefnavanda, afbrota og refsinga Margrét Dís Yeoman Skoðun
Skoðun Ætlum við að fækka bílum eða bara ökumönnum með sjálfkeyrandi bílum? Kristín Hrefna Halldórsdóttir skrifar
Skoðun „The Concert of Three“. Samráð stórveldanna þriggja – ný leið til heimsfriðar? Aðalsteinn Júlíus Magnússon skrifar
Skoðun Mikilvægt er að draga lærdóm af smáíbúðamálinu i Hafnarfirði Árni Rúnar Þorvaldsson skrifar
Skoðun Hvernig getum við dregið úr einmanaleika mæðra í fæðingarorlofi? Sigrún Þóra Sveinsdóttir skrifar
Að byrja á röngum enda – vítahringur vímuefnavanda, afbrota og refsinga Margrét Dís Yeoman Skoðun