Handbolti

Lovísa og Arnór Snær best í Olís deildinni

Aron Guðmundsson skrifar
Lovísa Thompson, leikmaður Vals var meðal annars valin besti leikmaður Olís deildar kvenna
Lovísa Thompson, leikmaður Vals var meðal annars valin besti leikmaður Olís deildar kvenna Mynd: HSÍ

Upp­skeru­hátíð HSÍ var haldin í gær og leik­menn, þjálfarar og dómarar heiðraðir fyrir frammistöðu sína á nýaf­stöðnu tíma­bili í Olís deildum karla og kvenna. Val­sararnir Arnór Snær Óskars­son og Lovísa Thomp­son voru valin bestu leik­menn tíma­bilsins í deildunum tveimur.

Í Olís­deild karla var það Ágúst Þór Jóhanns­son, þjálfari Ís­lands­meistara Vals sem var valinn þjálfari ársins eftir að hafa stýrt Val til deildar­meistara- og Ís­lands­meistara­titils á sínu fyrsta tíma­bili með liðið. 

Arnór Snær Óskars­son, leik­maður liðsins, sankaði einnig að sér verð­launum. Valdimars­bikarinn, leik­maður tíma­bilsins og sóknar­maður tíma­bilsins. Jón Þórarinn Þor­steins­son var valinn besti mark­maður deildarinnar, Ingvar Dagur Gunnars­son besti varnar­maðurinn og Ómar Darri Sigur­geirs­son efni­legasti leik­maðurinn.

Í Olís­deild kvenna var Anton Rúnars­son hjá Val valinn þjálfari ársins eftir að hafa stýrt liði sínu til deildar­meistara-, bikar­meistara- og Ís­lands­meistara­titils. Lovísa Thomp­son hlaut tvær viður­kenningar og var valin bæði leik­maður tíma­bilsins og varnar­maður tíma­bilsins.

Sandra Er­lings­dóttir hlaut Sigríðar­bikarinn og var jafn­framt valin sóknar­maður tíma­bilsins. Haf­dís Renötu­dóttir var valin besti mark­maður deildarinnar og Arna Karítas Eiríks­dóttir efni­legasti leik­maðurinn.

Þá voru Anton Gylfi Páls­son og Jónas Elías­son valdir dómarapar tíma­bilsins fyrir framúr­skarandi störf sín á keppnistíma­bilinu.

Ás­dís Guð­munds­dóttir og Dagur Arnars­son voru svo verð­launuð fyrir fram­komu og heiðar­leika á velli og hlutu hátt­vísi­verð­laun að launum.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×