Óttaðist að komast ekki inn en leikur til úrslita um helgina Ágúst Orri Arnarson skrifar 4. júní 2026 17:52 Maja Chwalinska hefur náð ótrúlegum árangri. Dan Istitene/Getty Images Maja Chwalinska er í 114. sæti heimslistans í tennis en hefur komist alla leið úr undankeppninni í úrslitaleik Opna franska meistaramótsins.
Chwalinska hefur þurft að hafa mikið fyrir hlutunum en að meðtalinni undankeppninni hefur nú unnið níu leiki í röð á leirvöllum Rolland Garros. Samkvæmt Opta er hún lægst skrifaða konan síðan 1977 til að komast í úrslitaleik Opna franska. Chwalinska lagði Diana Shnaider að velli í undanúrslitum í dag, 7-6, 6-4. Í leiknum sýndi Chwalinska mikinn stöðugleika og náði nokkrum frábærum skotum en vörn lágvaxna Pólverjans var sérlega sterk. Maja Chwalinska can't even believe it herself 🤩She joins Mirra Andreeva in the #RolandGarros Final 🏆 pic.twitter.com/5G0JASklon— TNT Sports U.S. (@TNTSportsUS) June 4, 2026 Með sigrinum varð Chwalinska aðeins önnur kona sögunnar til að fara frá undankeppni og í úrslitaleik á risamóti. Emma Raducanu er sú eina sem hefur tekist það áður, á Opna bandaríska árið 2021. Maja Chwalinska has changed her life at this year’s Roland Garros. Her total career earnings before Roland Garros:$864,030.What she’s earned at this tournament:$1,624,000. Because the players don’t get the money til after the tournament, she was worried she wouldn’t be… pic.twitter.com/Tcal3EDnwi— The Tennis Letter (@TheTennisLetter) June 4, 2026 Í úrslitaleiknum á laugardaginn mun Chwalinska mæta hinni rússnesku Mirra Andreeva, sem er aðeins nítján ára gömul og einnig á leiðinni í sinn fyrsta úrslitaleik á risamóti. Þrátt fyrir að vera fimm árum yngri er Andreeva samt talin sigurstranglegri. Hún vann gullverðlaun í tvíliðaleik á Ólympíuleikunum í París 2024, sem samherji Diana Shnaider. Andreeva hefur líka átt fast sæti á WTA mótaröðinni og komist í úrslitaleiki í Dubai, Madríd, Miami, á Ítalíu og á Indian Wells mótinu. Chwalinska hefur ekki náð eins háum hæðum á sínum ferli og sagði fyrr á árinu að helsta markmið hennar árið 2026 væri að komast inn á Opna franska. Hún getur gert gott betur á laugardaginn.
Tennis Mest lesið Haaland stefnir flugfélagi í Noregi Fótbolti Systir Ronaldos tók til varna og hraunaði yfir portúgölsku þjóðina Fótbolti Yfirmenn Heimis teknir á teppið Fótbolti Forsætisráðherrann notið góðs af eigendum City og vill síður missa þá Enski boltinn Jesus sveik lærisveininn Fótbolti „Alla vikuna höfum við verið afskrifuð af ykkur fjölmiðlum“ Sport Berar konur í FC 27 en EA lofar bót og betrun Fótbolti Etihad hótar að kæra ensku úrvalsdeildina Enski boltinn Tók boltann með höndum og kostaði Arsenal tvö stig Fótbolti Ronaldo tilkynnir að hann sé á förum frá landsliðinu Fótbolti Fleiri fréttir Jesus sveik lærisveininn Fékk gráðuna fyrir viku og lék í djörfu myndbandi Litlu finnsku uglurnar slá í gegn Klopp býr sig ekki undir að fá fleiri titla Forsætisráðherrann notið góðs af eigendum City og vill síður missa þá Yfirmenn Heimis teknir á teppið Tók boltann með höndum og kostaði Arsenal tvö stig Systir Ronaldos tók til varna og hraunaði yfir portúgölsku þjóðina Etihad hótar að kæra ensku úrvalsdeildina Dagskráin í dag: Enginn Ronaldo í Danmörku Haaland stefnir flugfélagi í Noregi Á förum frá Haas og mögulega frá Formúlu 1 Uppgjörið: Valur - Njarðvík 77-64| Valur skellti Íslandsmeisturunum Þýsku meistararnir unnu stórsigur í Meistaradeildinni „Alla vikuna höfum við verið afskrifuð af ykkur fjölmiðlum“ Haukar létu Fjölni bíða eftir fyrstu stigum tímabilsins Sigurganga Tindastóls í Evrópu heldur áfram Svekkjandi tap FH eftir góðan lokasprett Ída Marín skoraði í stórsigri í Evrópubikarnum Hlín og félagar á leið í 16-liða úrslitin sannfærandi Uppgjörið: Czarni - Breiðablik 1-0 (7-2) | Áttu aldrei séns Ellefu marka Ómar kom Magdeburg á toppinn Ronaldo tilkynnir að hann sé á förum frá landsliðinu Diljá Ýr skaut Brann í 16-liða úrslitin Leyfði nýliðanum ekki að halda í hefðir Berar konur í FC 27 en EA lofar bót og betrun Uppgjörið: Frankfurt - FH 4-1 | Stórliðið batt enda á Evrópudraumi FH Kvartaði í forsetann þegar hann fékk ekki að spila Setti silfurliðið í sjötta sæti: Nýr þjálfari og þynnri hópur Hvar á maður að byrja? Sjá meira