Alþingi í samstarfi við pólitísk félagasamtök? Guttormur Þorsteinsson skrifar 5. júní 2026 07:03 Athygli Samtaka hernaðarandstæðinga hefur verið vakin á því að Alþingi muni í haust, annað árið í röð, standa fyrir fundi og einhvers konar hlutverkaleik í Smiðju, nýju skrifstofuhúsnæði þingsins, í samvinnu við ýmsa aðila, s.s. Varðberg og ungliðahreyfinguna Skjöld-YATA. Frásögn af samkomunni má finna á vefsvæði stjórnarráðsins.Þessar fregnir komu nokkuð á óvart enda var okkur ekki kunnugt um að Alþingi tæki þátt í samstarfi við frjáls pólitísk félagasamtök af þessu tagi. Í ljósi þessa óska Samtök hernaðarandstæðinga eftir samvinnu við Alþingi um skipulagningu málþings um friðar- og afvopnunarmál, t.d. um fyrirhugaða þjóðaröryggisstefnu SHA sem kynnt verður í sumar. Vel færi á því að halda þing þetta í húsakynnum Alþingis, en hliðarviðburði mætti skipuleggja í Friðarhúsi, Njálsgötu 87. Þar er heimili íslensku friðarhreyfingarinnar með veglegu bóka- og skjalasafni um alþjóða- og friðarmál ásamt veggspjöldum frá ýmsum tímabilum friðarbaráttunnar.Á tímum þar sem allir helstu afvopnunarsamningar eru fallnir úr gildi og kjarnorkuveldin eru að auka við vopnabúr sín væri frekar við hæfi að Alþingi tæki þátt í að fræða ungt fólk um hættuna af kjarnavopnum. Það er trú okkar að samkoma af þessu tagi muni verða þjóðinni öllu farsælli en að skipuleggja stríðsleiki fyrir táninga í nafni hernaðarbandalags sem áskilur sér réttinn til að beita kjarnorkuvopnum að fyrra bragði. Fulltrúar SHA eru hvenær sem er tilbúnir að mæta á fund forsætisnefndar og kynna hugmyndir sínar í þessu efni.Jafnframt er óskað upplýsingar um hver sé stefna Alþingis varðandi samstarf við þrýstihópa og pólitísk hagsmunasamtök. Má vænta þess að samstarfsverkefni af þessu tagi verði fastur liður á verkefnaskrá Alþingis? Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Guttormur Þorsteinsson Félagasamtök Mest lesið Litla beiðnin kemur fyrst, svo sú stóra. Birna Bragadóttir Skoðun Nei fyrir komandi kynslóðir Ingibjörg H. Sverrisdóttir Skoðun Angan lótusblómsins Meyvant Þórólfsson Skoðun Rétturinn er sá sami – en tækifærið er það ekki Anna Margrét Bjarnadóttir Skoðun Er betra? Sigþrúður Ármann Skoðun Hinn ólánsami Ólafur Ragnar Lúðvík Bergvinsson Skoðun Hvernig lækka vextir með upptöku evru? Gauti B. Eggertsson Skoðun Ísland, Evrópa og áhrifasvæði stórvelda Þorsteinn Kristinsson Skoðun 600 þúsund manna Ísland – ætlum við að byggja það sjálf? Eyjólfur Ingvi Bjarnason Skoðun Hvaða þýðingu hefur óvissa um aðildarsamning að ESB? Jón Jónsson Skoðun Skoðun Skoðun Rétturinn er sá sami – en tækifærið er það ekki Anna Margrét Bjarnadóttir skrifar Skoðun Litla beiðnin kemur fyrst, svo sú stóra. Birna Bragadóttir skrifar Skoðun Nei fyrir komandi kynslóðir Ingibjörg H. Sverrisdóttir skrifar Skoðun Angan lótusblómsins Meyvant Þórólfsson skrifar Skoðun Er ég að bregðast börnunum mínum með því að segja NEI? Monika Margrét Stefánsdóttir skrifar Skoðun Gamli sáttmálinn og sá nýi Aðalsteinn Már Þorsteinsson skrifar Skoðun Er betra? Sigþrúður Ármann skrifar Skoðun Útgerðarauðvaldið vill í ESB - ég segi nei Ögmundur Jónasson skrifar Skoðun Gervigreind, gagnaver og tækifæri Íslands Eymundur Sigurðsson skrifar Skoðun Sveitirnar þagna Walter Fannar Kristjánsson skrifar Skoðun Áður en lengra er haldið Þórarinn Ingi Pétursson skrifar Skoðun Erum við of fljót að kenna samfélagsmiðlum um? Elísabet Reynisdóttir skrifar Skoðun Börn læra ekki fyrir framtíð sem þau skynja ekki Helgi S. Karlsson skrifar Skoðun Danir, ESB og staða Íslands Finnur Torfi Magnússon skrifar Skoðun Hvað kostar „þetta reddast“? Guðríður Lára Þrastardóttir skrifar Skoðun Frá öllum til allra með nútímalegum sjúkratryggingum Sigurður H. Helgason skrifar Skoðun Tækifærið er núna Agnar H. Johnson skrifar Skoðun Einelti og samskiptahættir kvenna á Íslandi Vigdís Ásgeirsdóttir skrifar Skoðun 600 þúsund manna Ísland – ætlum við að byggja það sjálf? Eyjólfur Ingvi Bjarnason skrifar Skoðun Hlaupið er búið - en láttu það ekki stoppa þig Sigrún Elva Einarsdóttir skrifar Skoðun Aðildarviðræður eru ekki prufuáskrift Guðbjörg Oddný Jónasdóttir skrifar Skoðun Trump á ekki að vera ástæðan Friðjón R. Friðjónsson skrifar Skoðun Hvernig lækka vextir með upptöku evru? Gauti B. Eggertsson skrifar Skoðun Eldra fólk ætti alls ekki að kjósa nei Björn B Björnsson skrifar Skoðun Fleiri valkostir og sterkari staða ef við segjum já Ragna Sigurðardóttir skrifar Skoðun Samkeppniseftirlitið eitt og sér Sigurjón Þórðarson skrifar Skoðun Opnum dyr fyrir innviðafjárfestingu um allt land Logi Einarsson skrifar Skoðun Hinn ólánsami Ólafur Ragnar Lúðvík Bergvinsson skrifar Skoðun Milljarða ávinningur af evru – fyrir heimilin, fyrirtækin, ríkið, sveitarfélögin og þjóðina alla Baldur Pétursson skrifar Skoðun Skipulag sem má ekki borga sig! Íris Björk Hreinsdóttir skrifar Sjá meira
Athygli Samtaka hernaðarandstæðinga hefur verið vakin á því að Alþingi muni í haust, annað árið í röð, standa fyrir fundi og einhvers konar hlutverkaleik í Smiðju, nýju skrifstofuhúsnæði þingsins, í samvinnu við ýmsa aðila, s.s. Varðberg og ungliðahreyfinguna Skjöld-YATA. Frásögn af samkomunni má finna á vefsvæði stjórnarráðsins.Þessar fregnir komu nokkuð á óvart enda var okkur ekki kunnugt um að Alþingi tæki þátt í samstarfi við frjáls pólitísk félagasamtök af þessu tagi. Í ljósi þessa óska Samtök hernaðarandstæðinga eftir samvinnu við Alþingi um skipulagningu málþings um friðar- og afvopnunarmál, t.d. um fyrirhugaða þjóðaröryggisstefnu SHA sem kynnt verður í sumar. Vel færi á því að halda þing þetta í húsakynnum Alþingis, en hliðarviðburði mætti skipuleggja í Friðarhúsi, Njálsgötu 87. Þar er heimili íslensku friðarhreyfingarinnar með veglegu bóka- og skjalasafni um alþjóða- og friðarmál ásamt veggspjöldum frá ýmsum tímabilum friðarbaráttunnar.Á tímum þar sem allir helstu afvopnunarsamningar eru fallnir úr gildi og kjarnorkuveldin eru að auka við vopnabúr sín væri frekar við hæfi að Alþingi tæki þátt í að fræða ungt fólk um hættuna af kjarnavopnum. Það er trú okkar að samkoma af þessu tagi muni verða þjóðinni öllu farsælli en að skipuleggja stríðsleiki fyrir táninga í nafni hernaðarbandalags sem áskilur sér réttinn til að beita kjarnorkuvopnum að fyrra bragði. Fulltrúar SHA eru hvenær sem er tilbúnir að mæta á fund forsætisnefndar og kynna hugmyndir sínar í þessu efni.Jafnframt er óskað upplýsingar um hver sé stefna Alþingis varðandi samstarf við þrýstihópa og pólitísk hagsmunasamtök. Má vænta þess að samstarfsverkefni af þessu tagi verði fastur liður á verkefnaskrá Alþingis?
Skoðun Milljarða ávinningur af evru – fyrir heimilin, fyrirtækin, ríkið, sveitarfélögin og þjóðina alla Baldur Pétursson skrifar