Rafbyssum aldrei beitt oftar Árni Sæberg skrifar 5. júní 2026 14:49 Lögreglumaður sýnir fréttamanni pílu úr rafbyssu. Vísir/Arnar Á fyrsta ársfjórðungi þessa árs drógu laganna verðir rafbyssu úr slíðri eða ógnuðu með tækinu í þrjátíu málum og í fimm málum var því beitt. Þetta er mesta notkun rafbyssa á einum ársfjórðungi frá því að þær voru teknar til notkunar en á þriðja ársfjórðungi síðasta árs var rafbyssum beitt næst oftast, eða fjórum sinnum við handtöku.
Í fréttatilkynningu frá Ríkislögreglustjóra segir að embættið hafi gefið út ársfjórðungsskýrslur um notkun rafvarnarvopna svokallaðra frá því að þau voru tekin í notkun sem valdbeitingartæki hjá lögreglu í september 2024. Skýrslan sýni heildarnotkun lögreglu á rafvarnarvopnum frá upphafi. Vopnin séu á sama stigi í valdbeitingarstiganum og kylfa og varnarúði og gefi lögreglu aukna möguleika á að velja þann varnarbúnað sem hæfir hverju verkefni. Með því sé leitast við að auka öryggi almennings og lögreglu. Sem áður segir hafi rafvarnarvopn verið dregið úr slíðri eða ógnað með tækinu í þrjátíu málum og í fimm málum hafi því verið beitt. „Er þetta mesta notkun tækisins á einum ársfjórðungi frá því að það var tekið til notkunar en á þriðja ársfjórðungi síðasta árs var vopninu beitt næst oftast eða fjórum sinnum við handtöku. Þegar skoðuð eru útköll sérsveitar og alvarleg ofbeldisbrot í janúar til mars á þessu ári má sjá að þau voru svipuð að fjölda og yfir sama tímabil í fyrra.“ Of snemmt sé að segja til um hvort tilvikum þar sem rafvarnarvopni er beitt fari fjölgandi, þar sem málin séu fá. Sem dæmi hafi rafvarnarvopni aldrei verið beitt á síðasta ársfjórðungi síðasta árs en í fjórum málum ársfjórðunginn á undan. Ríkislögreglustjóri muni halda áfram að birta ársfjórðungs tölur um valdbeitingu með rafvarnarvopni.
Rafbyssur Lögreglan Mest lesið Stutt geti verið í kosningar Innlent Segir merkilegt að einkaskilaboð séu rædd á Alþingi Innlent Bregðast við skipulögðum árásum og hótunum Innlent Fimm handteknir og grunaðir um skipulagningu hryðjuverks Erlent Yfirgefa heimili sín og flykkjast í neyðarskýlin Erlent Maður á sextugsaldri með áverka á höfði eftir árás ungmenna Innlent Skrúðgangan aftur leyfð þrjátíu árum eftir hryllinginn Erlent Rafflugvélin jafnar stærð innanlandsvéla Icelandair Erlent Skemmtistað lokað í miðborginni vegna fjölda ungmenna Innlent Eldur á Hellu Innlent Fleiri fréttir Bregðast við skipulögðum árásum og hótunum Góðkunningi lögreglunnar grunaður um líkamsárás Stutt geti verið í kosningar Boðar fyrstu lögin og reglurnar gagnvart gervigreind Eldur á Hellu Slökkvilið kallað út í Hafnarfjörð Segir merkilegt að einkaskilaboð séu rædd á Alþingi Beitti úðavopni á vegfarendur Sextán ára unglingar sóttir í bæinn eftir afskipti lögreglu Svara verði í hvaða umboði skilaboðin voru send Maður á sextugsaldri með áverka á höfði eftir árás ungmenna Verður gervigreindin mennskari eða fólk eins og gervigreind? Efnahagsmálin, SÁÁ og skítapotturinn á Sprengisandi Skemmtistað lokað í miðborginni vegna fjölda ungmenna Söfnuðu 32 milljónum fyrir langveik börn Tómas kominn aftur til starfa Siðferðislegir hugleysingjar neiti að semja um frið Þyrlan lenti við Hörpu Daði spreytir sig í Gettu betur Ráðherra hafi hrakið hana úr starfi: „Ég mun aldrei gleyma svipnum á Ragnari“ Umdæmin mishrifin af fækkun embætta Tugir mættir til þess að mótmæla ríkisstjórninni Buxnalaus Lalli olli glundroða Þyrlan sótti slasaðan knapa Heimsfræg Twitch-stjarna olli örtröð í miðbænum Fagnar fækkun lögregluembætta og deilt um málverk af Danakonungi Átján kíló af kókaíni undir fölskum botni Eftirlitið fellur á herðar foreldra Loka hringveginum við Jökulsárlón Fá loksins að fagna aldarafmælinu Sjá meira