„Pólitíkusar sem tala á þennan veg: Fokk jú“ Elísabet Inga Sigurðardóttir og Agnar Már Másson skrifa 7. júní 2026 20:58 Bubbi Morthens talaði á pólitískum nótum á milli laga og sagðist vilja losna við íslensku krónuna. Vísir/Viktor Freyr Mikið fjör var á afmælistónleikum Bubba Morthens í Laugardalshöll í gær. Uppselt var á tónleikana og tók hinn sjötugi Bubbi alla sína helstu slagara.
Þá var hann á persónulegum nótum, fékk meðal annars fjölskylduna upp á svið til sín og ítrekaði ást sína á eiginkonunni, Hrafnhildi Hafsteinsdóttur. Hann spjallaði við tónleikagesti á milli laga og kom meðal annars inn á fegurðina sem felst í lífinu og nánu samneyti fólks. „Kynlíf er ekki skítugt. Það er eitt það fallegasta sem til er í mannlegri náttúru,“ sagði afmælisbarnið. Þá var Bubbi einnig á pólitískum nótum eins og hans er von og vísa. Hann var afdráttarlaus á sviðinu í gær þegar hann ræddi meðal annars Evrópusambandið. Sagðist vilja losna við krónuna og gerði stöðu ungs fólks á húsnæðismarkaði að umfjöllunarefni. Þá lét hann stjórnmálamenn sem sækja að hinsegin fólki heyra það. „Pólitíkusar sem tala á þennan veg: Fokk jú.“ Athugasemd ritstjórnar: Í upprunalegri útgáfu fréttarinnar sagði að Bubbi hafi látið stjórnmálamenn sem tjá sig um Evrópusambandið á ákveðinn máta heyra það. Hið rétta er að hann var að þar að ávarpa stjórnmálamenn sem sækja að hinsegin fólki. Viktor Freyr Arnarson, ljósmyndari var á tónleikunum og fangaði nokkur augnablik. Appelsínugul sólglerugu virtust vera í mikilli tísku a tónleikunum.Vísir/Viktor Freyr Fjöldi fólks mætti á tónleikana Bubba í Laugardalshöll.Vísir/Viktor Freyr Fjölskyldan fór upp á svið.Vísir/Viktor Freyr Þakið ætlaði að rifna af Laugardalshöll.Vísir/Viktor Freyr Bubbi setti á sig hatt.Vísir/Viktor Freyr Frá tónleikunum í gær, sunnudag.Vísir/Viktor Freyr Vísir/Viktor Freyr Vísir/Viktor Freyr Margir nældu sér í Bubbabol.Vísir/Viktor Freyr Mikið fjör í Laugardalshöll.Vísir/Viktor Freyr Bubbi tók fjölskylduna upp á svið.Vísir/Viktor Freyr ... En hvað ef maður vill kók?Vísir/Viktor Freyr Lögreglan var með viðbúnað enda mikill fjöldi fólks á tónleiknunum í Laugardalshöll.Vísir/Viktor Freyr Tvær skvísur.Vísir/Viktor Freyr Skál!Vísir/Viktor Freyr Við Laugardalshöll.Vísir/Viktor Freyr Um að gera að næla sér í Bubbavarning.Vísir/Viktor Freyr Bubbi plokkar gítarstrengina.
Tónleikar á Íslandi Tónlist Evrópusambandið Mest lesið Hættur með fimmtíu árum yngri kærustunni Lífið Ekki gálgadans heldur hæ dúddelí dæ Gagnrýni Hvað veistu um… eyjar við Ísland? Lífið Íslensk listakona sló í gegn í Miami Lífið Arnór Sig kominn á fast Lífið Stjörnulífið: Fáklædd og frjáls Lífið „Erum bara vinir“ Lífið Mikil notkun Íslendinga á appinu óvænt Tónlist Tæplega þriggja áratuga löng gönguferð á enda Lífið Stefna á gullið með tíu tonn í farteskinu Matur Fleiri fréttir Mikil notkun Íslendinga á appinu óvænt Hætt við að hita upp fyrir Azealiu Banks Fjölskyldudeilur vegna uppboðs á gítar George Michael Ísland ekki á lista 36 þjóða sem keppa í Eurovision Fyrsta myndbandi Tár leikstýrt af Baldvin Z Hætta við að hætta við að hætta við Ölvuðu Íslendingarnir í Kristjaníu stóðu upp úr Sagður hafa valið sjálfan sig til að troða upp á Ofurskálinni „Stöðumælaverðir eru líka fólk og þeir hafa tilfinningar“ „Ég er ekki búinn að svelta mig enn þá“ Ástarbréf til íslenskra költmynda „Ég geri bara ráð fyrir því að fólk sé búið að gleyma mér“ Guðmundur Pétursson hlaut Gullnöglina Arkir hita upp fyrir Tha Alkaholiks Sjá meira