Fiskurinn, valdið og tilfinningin fyrir fullveldi Karen María Jónsdóttir skrifar 7. júní 2026 23:51 Þegar umræðan um aðild Íslands að Evrópusambandinu blossar upp gerist það nær undantekningarlaust að fiskurinn syndir inn í umræðuna. Það er skiljanlegt. Fá mál tengjast íslenskri sjálfsmynd jafn sterkt og yfirráð yfir fiskimiðunum. Þorskastríðið var til að mynda ekki bara deilur um réttinn til að veiða, heldur saga um sjálfstæði þjóðar sem ákvað að standa vörð um eigin auðlindir gegn stærri ríkjum. Þess vegna vekur sú hugmynd enn sterk tilfinningaleg viðbrögð að Ísland gæti með aðild að Evrópusambandinu þurft að deila ákvörðunarvaldi um nýtingu fiskistofna sinna. Spurningin sem við Íslendingar stöndum frammi fyrir er hins vegar ekki aðeins sú hvort við myndum missa stjórn á fiskiauðlindinni við inngöngu í Evrópusambandið. Spurningin er miklu frekar hvort við höfum yfir höfuð þá stjórn sem við teljum okkur hafa? Í lagalegum skilningi er svarið einfalt. Ísland ræður yfir 200 mílna lögsögu sinni. Ísland setur reglurnar um fiskveiðar. Ísland ákveður kvóta, veiðigjöld og fyrirkomulag fiskveiðistjórnunar. Þannig gæti Alþingi í prinsippinu breytt kvótakerfinu á morgun, ef pólitískur vilji væri fyrir því. En í samfélagslegum og efnahagslegum skilningi er myndin flóknari. Á síðustu þremur áratugum hefur sjávarútvegurinn tekið stakkaskiptum. Kvótar hafa safnast á færri hendur. Íslensk sjávarútvegsfyrirtæki hafa sameinast og stækkað. Mörg þeirra starfa á alþjóðlegum mörkuðum, fjármagna sig erlendis, gera upp í erlendri mynt, veðsetja fiskveiðiheimildir sem sína eign. Á sama tíma hefur mörgum sjávarbyggðum fundist áhrif sín hafa stórminnkað. Þegar við segjum að fiskurinn sé “íslenskur” erum við að tala um tvennt. Annarsvegar lagalegt eignarhald þjóðarinnar á auðlindinni. Hins vegar upplifun almennings af því hvort hann hafi raunverulega aðkomu að þeim verðmætum sem auðlindin skapar. Á þessu er mikilvægt að gera greinarmun. Andstæðingar Evrópusambandsins hafa oft bent á að með aðild myndi Ísland missa hluta af ákvörðunarvaldi sínu um fiskveiðar. Það er ekki ósanngjörn lýsing. Fiskveiðar eru ólíkar flestum öðrum auðlindamálum innan Evrópusambandins. Ólíkt skógarauðlindinni, námum og orkuauðlindum eru fiskveiðar hluti af sameiginlegur stefnu sambandsins og því færist hluti ákvörðunartökunnar til sambandsins. Þetta er raunverulegt framsal. En það þýðir ekki að umræðan sé þar með búin. Því á móti kemur önnur spurning: Hverskonar vald erum við að verja? Ef þjóðin ræður formlega yfir auðlindinni en upplifir að áhrif hennar á nýtingu auðlindarinnar fari sífellt minnkandi, er þá sjálfgefið að núverandi staða sé fullnægjandi? Ef arðurinn safnast á færri hendur, ef byggðir missa áhrif og ef stóru sjávarútvegsfyrirtækin verða sífellt alþjóðlegri, er þá nóg að klappa sér á öxl og benda á að Alþingi eigi enn síðasta orðið? Kannski er það einmitt hér sem umræðan um Evrópusambandið hefur fest sig í fortíðinni. Við deilum enn um þetta eins og árið sé 1994! Við tölum enn eins og að valið standi á milli íslenskra eða erlendra yfirráða! En árið 2026 er veruleikinn miklu flóknari. Valdið yfir auðlindum getur færst til á mun fleiri vegu en í gegnum alþjóðasamninga eins og Evrópusambandið. Það getur færst í gegnum samþjöppun eignarhalds. Það getur færst í gegnum markaðsvæðingu. Það getur færst í gegnum alþjóðlegt fjármagn. Kjarni málsins er ekki hvort að fiskurinn yrði áfram í íslenskri lögsögu. Hann yrði það! Hann er heldur ekki sá hvort Ísland myndi missa allt vald yfir fiskveiðistjórnuninni. Það myndi ekki gerast. Raunverulega spurningin er þessi: Hver hefur raunveruleg áhrif á nýtingu fiskiauðlindarinnar í dag, hver ætti að hafa þau áhrif í framtíðinni, og myndi aðild að Evrópusambandinu færa það vald nær eða fjær okkur almenningi? Gleðilegan sjómannadag. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Skoðun: Þjóðaratkvæðagreiðsla um ESB-viðræður Mest lesið Eftir Kveiksþátt Anna Björg Jónsdóttir,Hjördís Halldóra Sigurðardóttir Skoðun Ríkið vill minnst tvö og hálft ár milli barnanna þinna Karítas Ólafsdóttir Skoðun Flokkur fólksins tekur í handbremsuna Eyjólfur Ármannsson Skoðun Cornell og klefamenning Olga Björt Þórðardóttir Skoðun Menning er ekki bisnessplan Birgir Þórarinsson Skoðun Þorum við að banna Airbnb eða erum við líka siðferðislegir hugleysingjar? Helen Ólafsdóttir Skoðun Þorum við að tala um sorgina? Stefán Már Gunnlaugsson Skoðun Bakslag fyrir barnafjölskyldur í Hafnarfirði Valdimar Víðisson Skoðun Réttindi eiga að vera raunveruleg Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir Skoðun Sýnum viljann í verki Aðalbjörg Stefanía Helgadóttir Skoðun Skoðun Skoðun Kostnaðurinn við nei Sigvaldi Einarsson skrifar Skoðun Hver stal kökunni úr krúsinni? Gunnar Valur Sveinsson skrifar Skoðun Stríð Rússlands gegn utanríkisviðskiptum Úkraínu er stríð gegn fæðuöryggi heimsins Clara Ganslandt skrifar Skoðun Sjónvarpið 60 ára: Þögnin segir líka sögu Gunnar Salvarsson skrifar Skoðun Takk Hörður Jóhann Páll Jóhannsson skrifar Skoðun Firrur um aflareglu fyrir þorsk Ásgeir Daníelsson skrifar Skoðun EES málið, ESA og fullveldi Íslands og tími komin til varna Eggert Guðmundsson skrifar Skoðun Sýnum viljann í verki Aðalbjörg Stefanía Helgadóttir skrifar Skoðun Bókun 35 – þegar molnar undan stjórnkerfinu Aðalsteinn Júlíus Magnússon skrifar Skoðun Pínu sársauki á unga fólkið? Helgi Bárðarson skrifar Skoðun Austurland margborgar sig Ragnar Sigurðsson skrifar Skoðun Þorum við að tala um sorgina? Stefán Már Gunnlaugsson skrifar Skoðun Verklokafælni stjórnvalda Kjartan Björgvinsson skrifar Skoðun Við getum gert betur Hulda Brá Magnadóttir skrifar Skoðun Hverjum er frelsið ætlað? Guðný S. Bjarnadóttir skrifar Skoðun Bakslag fyrir barnafjölskyldur í Hafnarfirði Valdimar Víðisson skrifar Skoðun Þorum við að banna Airbnb eða erum við líka siðferðislegir hugleysingjar? Helen Ólafsdóttir skrifar Skoðun Skattfé er einnota Erna Bjarnadóttir skrifar Skoðun Forvarnadagurinn er í dag María Heimisdóttir skrifar Skoðun Af hverju má ég ekki eiga Chihuahua af því að ég bý í húsnæði fyrir fatlað fólk? Ingibjörg Dóra Scheving Bjarnadóttir skrifar Skoðun Réttindi eiga að vera raunveruleg Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir skrifar Skoðun Flokkur fólksins tekur í handbremsuna Eyjólfur Ármannsson skrifar Skoðun Áramótaheit ríkisstjórnarinnar Helgi Brynjarsson skrifar Skoðun Menning er ekki bisnessplan Birgir Þórarinsson skrifar Skoðun Þegar allt verður þjónusta Valerio Gargiulo skrifar Skoðun Ríkið vill minnst tvö og hálft ár milli barnanna þinna Karítas Ólafsdóttir skrifar Skoðun Hvenær eru kjósendur blekktir? Gunnar Ármannsson skrifar Skoðun Cornell og klefamenning Olga Björt Þórðardóttir skrifar Skoðun Eftir Kveiksþátt Anna Björg Jónsdóttir,Hjördís Halldóra Sigurðardóttir skrifar Skoðun Almannatryggingar í 90 ár Alma D. Möller skrifar Sjá meira
Skoðun Stríð Rússlands gegn utanríkisviðskiptum Úkraínu er stríð gegn fæðuöryggi heimsins Clara Ganslandt skrifar
Skoðun Þorum við að banna Airbnb eða erum við líka siðferðislegir hugleysingjar? Helen Ólafsdóttir skrifar
Skoðun Af hverju má ég ekki eiga Chihuahua af því að ég bý í húsnæði fyrir fatlað fólk? Ingibjörg Dóra Scheving Bjarnadóttir skrifar