Löggan þorði ekki að þiggja miða Sindri Sverrisson skrifar 8. júní 2026 10:02 Stelpurnar skelltu sér á rúntinn og gáfu miða á landsleikinn. Ída Marín heilsaði upp á löggu sem ætlar að mæta en kunni ekki við að þiggja frímiða. Skjáskot/@footballiceland Stelpurnar okkar í íslenska fótboltalandsliðinu mæta sjálfum heimsmeisturum Spánar á Laugardalsvelli annað kvöld. Þrjár þeirra fóru á rúntinn í gær og gáfu nokkrum heppnum Íslendingum frímiða á leikinn.
Þær Arna Eiríksdóttir, Ída Marín Hermannsdóttir og hin 18 ára Thelma Karen Pálmadóttir, sem skoraði sitt fyrsta landsliðsmark á föstudaginn og tryggði 1-0 sigurinn mikilvæga gegn Úkraínu, sáu um að gleðja fólk á förnum vegi með miða á landsleikinn. Flestir tóku við miðunum fegins hendi og þökkuðu kærlega fyrir sig en strangheiðarlegur lögregluþjónn sem stelpurnar hittu kunni þó ekki við að þiggja miða og kvaðst líklega ekki mega það á meðan hann væri í vinnunni. Sá var þó staðráðinn í að mæta á leikinn. Miðasalan á leikinn, sem hefst klukkan 19 á morgun, er annars í fullum gangi á vef KSÍ. Til sölu eru miðar í stóru stúkuna og kostar miðinn á svæði 1 7.990 krónur fyrir fullorðna en 3.995 fyrir 16 ára og yngri. Á svæði 2, í endum stúkunnar, kostar miðinn 4.990 krónur fyrir fullorðna en 2.495 krónur fyrir 16 ára og yngri. Hægt er að láta 20% miðaverðs renna til aðildarfélags KSÍ að eigin vali. Ljóst er að Ísland mætir á morgun sterkasta liði heims og mögulega sterkasta liði sögunnar. Þær spænsku völtuðu yfir Evrópumeistara Englands á föstudaginn, 4-0, og dugar núna sigur gegn Íslandi á morgun til að vinna riðilinn og tryggja sig inn á HM. Ísland vann Úkraínu 1-0 í Póllandi á föstudaginn og er nú öruggt um 3. sæti riðilsins og þar með áframhaldandi veru í A-deild, auk þess að fara mun auðveldari umspilsleið að HM en Úkraína sem endar í 4. og neðsta sæti.
Landslið kvenna í fótbolta HM 2027 í Brasilíu Tengdar fréttir „Ég var rosalega veik þegar sá leikur átti sér stað“ Katla Tryggvadóttir er klár í slaginn fyrir leik Íslands við heimsmeistara Spánar á Laugardalsvelli á þriðjudagskvöldið kemur. Hún missti af fyrri leik liðanna sökum veikinda en fær nú tækifæri til að mæta besta liði heims. 7. júní 2026 21:46 Uppgjörið: Úkraína - Ísland 0-1 | Stórt skref í átt að HM Íslenska kvennalandsliðið í fótbolta vann mikilvægan 0-1 sigur er liðið mætti Úkraínu í undankeppni HM 2027 í dag. 5. júní 2026 17:55 „Markmiðinu er náð“ Íslenska kvennalandsliðið í fótbolta vann sterkan 0-1 sigur er liðið mætti Úkraínu í undankeppni HM í dag. 5. júní 2026 18:20 Mest lesið Utan vallar: Sjúklingurinn er að deyja Enski boltinn Veigar Páll í árs bann eftir fall á lyfjaprófi Körfubolti Belgísku bakgarðskóngarnir með lygilegt heimsmet Sport Vinirnir deila heimsmetinu en hvorugur er sigurvegari Sport Hitti holu í höggi á fyrsta hring ævinnar Golf Uppgjörið: Grindavík - Stjarnan 98-90 | Fyrsti sigur Grindavíkur en Stjarnan bíður enn Körfubolti Hverjir eru þessir 19 Íslendingar sem hafa spilað í Meistaradeildinni? Fótbolti Belgarnir láta Elísabetu fara Fótbolti Extraleikarnir: Nablinn og Tommi reyna fyrir sér í ballet Körfubolti Þurftu að biðja Infantino afsökunar Fótbolti Fleiri fréttir Hituðu upp fyrir United-leikinn með því að bursta AC Milan Orri Steinn skoraði í Evrópudeildinni „Á morgun mun ég reima á mig takkaskóna í síðasta sinn“ Þrír Íslendingar í byrjunarliði Brann í Evrópusigri Sky Sports: Carrick mun stýra Man. Utd gegn Bournemouth Líf tilnefnd til tvennra verðlauna Matthías hættur hjá Val Vopnaðir ræningjar brutust inn á heimili fyrrum markmanns PSG Hverjir eru þessir 19 Íslendingar sem hafa spilað í Meistaradeildinni? Vill fá annan þjálfara eins og Amorim til að hreinsa til Belgarnir láta Elísabetu fara Utan vallar: Sjúklingurinn er að deyja Nagelsmann efstur á lista verði Carrick rekinn Sagði leikmönnum sínum að slaka á í lok leiksins Svona missti Aron markið sögulega Sjáðu jöfnunarmark Rice og stórtap Manchester United „Kevin sér opnar hraðbrautir þar sem aðrir sjá umferðarteppu“ Barcelona kærir PSG vegna móðgandi skilaboða Þurftu að biðja Infantino afsökunar „Það er augljóst að Kane á að vinna Ballon d'Or“ Diomande með frábært mark í sigri Real Madrid Kane stríddi löndum sínum en Arsenal fer heim með stig „Þetta voru meira en vonbrigði“ „Það er þjálfarans og starfsliðsins að meta það, ekki mitt“ Hákon með stoðsendingu en Lille við botninn eftir tap Martröð hjá Manchester United við Como-vatnið Selma Sól skoraði í bikarsigri Íslenskir dómarar í Sambandsdeild en Danir horfa á skjáinn Messi klæddist Como-treyju Akranesvöllur sundurgrafinn og handónýtur Sjá meira
„Ég var rosalega veik þegar sá leikur átti sér stað“ Katla Tryggvadóttir er klár í slaginn fyrir leik Íslands við heimsmeistara Spánar á Laugardalsvelli á þriðjudagskvöldið kemur. Hún missti af fyrri leik liðanna sökum veikinda en fær nú tækifæri til að mæta besta liði heims. 7. júní 2026 21:46
Uppgjörið: Úkraína - Ísland 0-1 | Stórt skref í átt að HM Íslenska kvennalandsliðið í fótbolta vann mikilvægan 0-1 sigur er liðið mætti Úkraínu í undankeppni HM 2027 í dag. 5. júní 2026 17:55
„Markmiðinu er náð“ Íslenska kvennalandsliðið í fótbolta vann sterkan 0-1 sigur er liðið mætti Úkraínu í undankeppni HM í dag. 5. júní 2026 18:20