Starfsmannaleiga mátti ekki hýrudraga rafvirkja Árni Sæberg skrifar 8. júní 2026 12:42 Menn við vinnu. Myndin tengist fréttinni ekki með beinum hætti. Vísir/Anton Brink Starfsmannaleigu hefur verið gert að endurgreiða starfsmanni sínum 15 þúsund krónur sem dregnar voru af launum hans vegna meints brots á húsreglum, en starfsmaðurinn leigði herbergi af starfsmannaleigunni. Þá var starfsmannaleigunni einnig gert að endurgreiða starfsmanninum ofgreidda leigu.
Þetta var niðurstaða Kærunefndar húsamála, sem kvað upp úrskurð í málinu þann 27. maí síðastliðinn. Í úrskurðinum segir að starfsmaðurinn, sem hafi starfað sem rafvirki hjá starfsmannaleigunni, hafi krafist viðurkenningar á því að starfsmannaleigunni bæri að endurgreiða 15.000 krónur, sem hún dró af launum hans vegna „brots á húsnæðissamningi“. Starfsmaðurinn hefði sagst hafa átt í minni háttar orðaskaki við ofbeldisfullan leigjanda í húsinu, án þess að til handalögmála hefði komið. Starfsmannaleigan hefði sagt manninn hafa brotið húsreglur með því að raska húsfriði. Hann hafi einnig krafist viðurkenningar á því að starfsmannaleigunni bæri að endurgreiða ofgreidda leigu, samtals að fjárhæð 95.064 krónur ásamt vöxtum. Lögin ófrávíkjanleg Í niðurstöðu nefndarinnar um fyrri kröfuna segir að húsaleigulög séu ófrávíkjanleg að því leyti að óheimilt sé að semja um að leigjandi íbúðarhúsnæðis taki á sig ríkari skyldur og öðlist minni réttindi en lögin mæla fyrir um nema ákvæði laganna hafi að geyma sérstök frávik þess efnis. Í lögunum sé hvorki kveðið á um að leigusala sé heimilt að draga fé af launagreiðslum til leigjanda sökum vanefnda hans á leigusamningi né sekta hann fyrir samningsbrot. Almenn ákvæði húsaleigulaga um umgengni leigjanda feli ekki í sér slíka heimild. „Verður því talið að varnaraðila hafi verið óheimilt að sekta sóknaraðila fyrir ætlað brot á áðurnefndum húsreglum.“ Hækkaði leiguna í andstöðu við lög Hvað síðari kröfuna varðar segir í úrskurðinum að þar sem breytingar starfsmannaleigunnar á fjárhæð húsaleigunnar samkvæmt tölvubréfum í lok febrúar 2024 og lok janúar 2025 hafi verið í andstöðu við ófrávíkjanleg ákvæði húsaleigulaga verði fallist á með starfsmanninum að hann eigi rétt á endurgreiðslu á fjárhæð sem nemur mismun umsaminnar húsaleigu og þeirrar sem var dregin af launum hans frá annars vegar 1. apríl 2024 og hins vegar frá 1. mars 2025 ásamt dráttarvöxtum. Í ljósi niðurstöðu málsins yrði ekki fallist á málskostnaðarkröfu starfsmannaleigunnar.
Úrskurðar- og kærunefndir Vinnumarkaður Húsnæðismál Leigumarkaður Mest lesið Matorka í Grindavík gjaldþrota Viðskipti innlent Arion segir unnið að lausn vegna hótelturnsins Viðskipti innlent Forstjóri og stjórnarformaður kveðja ÍAV Viðskipti innlent Julebryg verði mun ódýrari Viðskipti innlent Starfsfólk orðið svo þreytt á endalausum breytingum – ekki endilega vinnunni sjálfri Atvinnulíf Uppbygging umdeilds hótels í uppnámi Viðskipti innlent Allir Bónus vanilludropar innkallaðir Neytendur Bjarni Benediktsson: „Eftirsóknarvert að vera í þessum hópi“ Framúrskarandi fyrirtæki Karl Wernersson opnar sig Viðskipti innlent Hafa gott fólk í vinnu og borga reikningana á réttum tíma Framúrskarandi fyrirtæki Fleiri fréttir Hagnaður Kviku dróst saman Reitir féllu frá samstarfi við Art-verk Arion segir unnið að lausn vegna hótelturnsins Matorka í Grindavík gjaldþrota Forstjóri og stjórnarformaður kveðja ÍAV Bein útsending: Sjávarútvegsdagurinn 2026 Julebryg verði mun ódýrari Uppbygging umdeilds hótels í uppnámi Segja Adomat reyna að koma höggi á Borealis Borealis stefnt vegna hundruða milljóna króna leiguskuldar Karl Wernersson opnar sig Hvar á sonur minn að geyma húsnæðissparnaðinn sinn? Sektað fyrir að láta gesti skanna QR-kóða til að sjá verðið Bláa lónið má kaupa annan ferðaþjónusturisa 281 sagt upp í fimm hópuppsögnum Ráðinn forstjóri Elkem á Íslandi Róar áhyggjufulla Hafnfirðinga Orð Andra Snæs um apaheila dæmi sig sjálf Samkaup kaupir Fjarðarkaup Loka kaffihúsinu Örnu á Eiðistorgi Nýtt gjald hefur áhrif á íslenska seljendur Nýttu hagnaðinn í styrki fyrir íþróttastarfsemi Mega kaupa Öryggismiðstöðina og Opin kerfi Bláa lónið á markað í nóvember Klakki, áður Exista, gjaldþrota Hótelævintýri lauk með gjaldþrotum upp á milljarð Getur ekki lengur orða bundist Hefja viðræður um sölu Blikastaðalandsins Bein útsending: Hátæknibrennsla á Íslandi Gangast í ábyrgð fyrir 3,4 milljarða króna láni Sjá meira