Magga Friðriks leitar til almennings eftir stuðningi Jakob Bjarnar skrifar 8. júní 2026 16:49 Fátt verður að frétta á Fréttinni á næstunni að sögn Margrétar ritstjóra sem segist munu þurfa að verja mesta púðrinu í að leita réttlætis vegna þess sem hún segir ranglátan dóm. vísir/lýður valberg Margrét Friðriksdóttir leitar til almennings eftir styrkjum en hún hlaut að sögn þungt högg í héraðsdómi þegar hún var dæmd til að greiða sekt í ríkissjóð vegna ummæla um Barböru Björnsdóttur dómara þess efnis að hún væri lauslát mella.
Þá var Margréti gert að greiða málsvarnarkostnað sem slagar hátt í milljón. Margrét ritar mikla grein í málgagn sitt Fréttina þar sem hún rekur málið. Hún ætlar að áfrýja málinu en samkvæmt Margréti stendur ekki steinn yfir steini. „Eins og flestum er kunnugt um þá hefur íslenska valdstjórnin verið með mig í heljargreipum í níu ár samfellt og hef ég þurft að sæta réttarstöðu sakbornings fyrir upplognar ákærur í að verða áratug,“ segir Margrét meðal annars í opnu bréfi. Margrét greinir frá því að hún hafi rekið fréttamiðilinn Fréttin í að verða fimm ár vegna áróðurs og einsleitni íslenskra fréttamiðla. Hún segist hafa lagt sitt af mörkum nánast launalaust allan þennan tíma en hún sjái ekki eftir þessu framlagi sínu til samfélagsins. Hins vegar muni hún nú þurfa að leggja allt í að verjast „öfgaöflum og valdníðslu sem ég er að verða fyrir af ríkisvaldinu, og mun ég gera það með aðstoð míns lögmanns og öllum þeim sem geta aðstoðað mig.“ Verði fátt að frétta á Fréttinni á næstunni Eins og áður segir telur Margrét dóminn fráleitan og hún rekur ýmis dæmi um orð sem látin hafa verið falla en dómstóll talið heyra undir tjáningarfrelsi svo sem ókvæðisorð sem Sindri Þór Sigríðarson lét falla gegn Ingólfi Þórarinssyni. Sindri var á endanum dæmdur fyrir meiðyrði í Landsrétti. Róðurinn hafi reynst erfiður að sögn Margrétar, Fréttin fái enga ríkisstyrki og viðbrögð auglýsenda hafa verið rýr. Margrét velkist ekki í vafa um hvers vegna það sé: „... þeir vilji ekki sjálfir lenda í hakkavélinni, þrátt fyrir að sjá óréttlætið í þessu öllu saman, fáir virðast eftir sem tilbúnir eru að verja málfrelsið.“ Allt þetta þýði að Margrét ætli að taka sér pásu frá ritstjórastörfum og verði því lítið að gerast á Fréttinni rétt á meðan. En þar verði þó að sjálfsögðu fluttar bráðnauðsynlegar fréttir. Margrét hvetur áskrifendur eftir sem áður til að styðja miðilinn því það kosti töluvert að halda síðunni opinni, meðal annars vegna kaupa á öryggiskerfum sem aðstandendur miðilsins hafa þurft að kaupa vegna tölvuárása. Styrkja má vörn Margrétar gegn valdníðslu Að endingu leitar Margrét eftir stuðningi. Hún segist opin fyrir því að selja stóran hluta af því sem hún á í Fréttinni ef einhver „sér tækifæri í vinsælum miðli sem hefur tugþúsundir lesenda í hverjum mánuði, allt er opið, mikilvægast er að Fréttin nái að halda lífi, því margir vilja hana dauða, því hún segir frá fleiri hliðum.“ Þá segist Margrét hafa verið hvött til að hefja söfnun og það geri hún nú: „Það er hægt að styrkja vörn mína gegn valdníðslu í gegnum félagasamtökin Náunginn hjálparsamtök sem stofnuð voru í þeim tilgangi að hjálpa þeim sem minna mega sín. Ég á ekki peninga til að leggja út milljónir í málskostnað og vona því kæru vinir að þið getið sýnt málstaðnum stuðning, margt smátt gerir eitt stórt.“
Fjölmiðlar Dómsmál Tjáningarfrelsi Mannréttindadómstóll Evrópu Meiðyrðamál Margrétar Friðriksdóttur Tengdar fréttir „Lauslát mella“ hafi verið mildasta lýsingin á dómaranum Margrét Friðriksdóttir, sem sætir ákæru fyrir meiðyrði í garð Barböru Björnsdóttur héraðsdómara, segir Barböru hafa framið á henni réttarmorð, með því að sakfella hana fyrir hótunarbrot. Hún hafið reiðst vegna þess og því ritað færslu á Facebook, þar sem hún úthúðaði dómaranum. Hún kveðst hafa opnað orðabók í leit að mildasta orðinu til þess að lýsa Barböru. „Viðbjóðslegur dómur og lauslát mella gefur sinn dóm,“ sagði hún meðal annars. 16. janúar 2026 11:34 Hætt við framboð og vonast eftir þjóðhollum og guðræknum forseta Margrét Friðriksdóttir, ritstjóri Fréttarinnar.is, er hætt við forsetaframboð. Hún stofnaði til meðmælalista fyrir fimm dögum síðan, en segir að sér hafi raunar ekki verið alvara með framboðinu. 28. mars 2024 17:00 Hefði ekki drepið þá hjá Fréttinni að spyrja hvort um grín væri að ræða Ólafur Kristjánsson gengst við því að vera maðurinn sem grínaðist með það að Edda Falak ynni ekki í Landsbankanum. Ólafur upplýsti um þetta í Bítinu í morgun og veltir fyrir sér hvers vegna vefsíðan Fréttin.is hafði ekki samband við hann til að athuga hvort um grín væri að ræða. 28. mars 2023 10:20 Mest lesið Eldur í sumarbústað við Suðurlandsveg Innlent Áfram geisar innbrotahrinan Innlent Björgólfur Thor flýr breska skatta til Ítalíu Innlent Enginn alvarlega slasaður eftir bílveltuna Innlent Breikkun á Kjalarnesi boðin út eftir margra ára seinkun Innlent Vegir og gatnamót í Hvalfirði komnir að þolmörkum Innlent Miklar bikblæðingar við Jökulsárlón Innlent Hryðjuverkamálið frá upphafi til enda Innlent Veðrið haggist ekki að neinu ráði Innlent Ferðaþjónustan, fullveldið og fullt af forsætisráðherrum Innlent Fleiri fréttir Flúðu heimili sitt vegna gróðurelda: „Þetta verður ekki fallegt, fjallið er allt brunnið“ Þúsund sjúkraflug á árinu: „Fyrsta skipti sem við brjótum þann múr“ Bráð veikindi og alelda bíll við Kambana Komst undan ásamt fjölskyldunni „Við ákváðum að snúa bara vörn í sókn“ Fæðingardeildin hafi gleymst í hita leiksins Eldur í sumarbústað við Suðurlandsveg Þúsund ára gömul mynt fannst í gamalli verbúð Íslendingur í grennd við Madríd og met í sjúkraflugferðum Fleiri en þeir sem tókust á lentu í átökum ungmenna Áttu eitthvað vantalað við manninn sem endaði fram af svölunum Ari úrskurðaður í gæsluvarðhald á Kýpur Fleygt fram af svölum á fyrstu hæð fjölbýlishúss Eigi ekki að kosta milljónir króna að klæðast landsliðsbúningnum Skynet langt undan en íslensk stjórnvöld þurfa að vera undirbúin „Klappað eins og það væri stórstjarna að koma inn“ Óttast að „bottar“ muni ýta undir ágreining í aðdraganda atkvæðagreiðslu Íslensk hjón þurft að flýja undan gróðureldum á Spáni Báti var siglt yfir kajakræðara Kvöldfréttir í heild sinni „Ég hef aldrei lent í öðru eins“ Fimm fluttir til aðhlynningar eftir árekstur Skipverjarnir áttu að fá 2,5 milljónir króna á haus Endurkoma Herjólfs vekur upp ýmsar spurningar Standa með félagsmanni sem var sviptur frelsi Íslendingur á Benidorm stöðvaður eftir tíu daga svikahrinu Halda samráðsfund vegna innbrotahrinu Auka nákvæmni rauntímaupplýsinga Vara við hviðum á landinu suðaustanverðu Sólmyrkvinn ógnar fjarskiptum og Mærudagar ganga í garð Sjá meira
„Lauslát mella“ hafi verið mildasta lýsingin á dómaranum Margrét Friðriksdóttir, sem sætir ákæru fyrir meiðyrði í garð Barböru Björnsdóttur héraðsdómara, segir Barböru hafa framið á henni réttarmorð, með því að sakfella hana fyrir hótunarbrot. Hún hafið reiðst vegna þess og því ritað færslu á Facebook, þar sem hún úthúðaði dómaranum. Hún kveðst hafa opnað orðabók í leit að mildasta orðinu til þess að lýsa Barböru. „Viðbjóðslegur dómur og lauslát mella gefur sinn dóm,“ sagði hún meðal annars. 16. janúar 2026 11:34
Hætt við framboð og vonast eftir þjóðhollum og guðræknum forseta Margrét Friðriksdóttir, ritstjóri Fréttarinnar.is, er hætt við forsetaframboð. Hún stofnaði til meðmælalista fyrir fimm dögum síðan, en segir að sér hafi raunar ekki verið alvara með framboðinu. 28. mars 2024 17:00
Hefði ekki drepið þá hjá Fréttinni að spyrja hvort um grín væri að ræða Ólafur Kristjánsson gengst við því að vera maðurinn sem grínaðist með það að Edda Falak ynni ekki í Landsbankanum. Ólafur upplýsti um þetta í Bítinu í morgun og veltir fyrir sér hvers vegna vefsíðan Fréttin.is hafði ekki samband við hann til að athuga hvort um grín væri að ræða. 28. mars 2023 10:20