Markvörður í slagsmálum rétt fyrir vítaspyrnukeppni Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 8. júní 2026 23:30 Robin Visser, markvörður Delfstrahuizen, blandaði sér í slagsmálin og var svo hetjan í vítakeppninni. @rtvdrenthesport Það urðu mikil læti á spennuþrungnu augnabliki í mikilvægum leik í hollenska fótboltanum um helgina.
Delfstrahuizen komst upp í C-deild eftir sigur í vítaspyrnukeppni en leikurinn hefði kannski ekki komist mikið í fréttirnar nema fyrir þær sakir að skömmu fyrir vítaspyrnukeppnina urðu slagsmál á milli stuðningsmanna félaganna. Delfstrahuizen mætti þarna CEC frá Emmer-Compascuum en Delfstrahuizen er lítill bær á Fríslandi. Slagsmálin milli stuðningsmannanna brutust út rétt fyrir úrslitavítaspyrnukeppnina sem átti að skera úr um sigurvegara. Eftir 120 mínútna venjulegan leiktíma og framlengingu var staðan í leiknum 2-2. Í átökunum reyndi Robin Visser, markvörður Delfstrahuizen, að grípa inn í að sögn þjálfarans Pope Leffring með því að halda aftur af slagsmálahundi frá Drenthe. Eftir að tókst að róa menn aðeins niður tók við vítaspyrnukeppnin. Umræddur markvörður var þar hetjan. Visser varði aðra vítaspyrnuna með glæsibrag og eftir annað klúður hjá CEC skoraði fyrirliðinn og reynsluboltinn Evert de Jong úr úrslitavítinu. Delfstrahuizen hafði komist í 2-0 í leiknum en misst leikinn aftur niður í jafntefli. Pope Leffring, þjálfari Delfstrahuizen, var kátur með að markmiðið náðist. „Í fyrra féllum við næstum því og nú förum við upp í þriðju deild. Ef þú missir niður 2-0 forystu taparðu yfirleitt, en strákarnir sýndu karakter. Algjörlega frábært,“ sagði Leffring. Hér fyrir neðan má sjá myndband af slagsmálunum og þar má sjá markvörðinn blanda sér inn í málin til að reyna að stöðva æsta stuðningsmenn. View this post on Instagram A post shared by RTV Drenthe Sport (@rtvdrenthesport)
Hollenski boltinn Mest lesið Þurftu að biðja Infantino afsökunar Fótbolti Þurfti að spretta í markið eftir 102 klukkutíma á hlaupum Sport Barcelona kærir PSG vegna móðgandi skilaboða Fótbolti „Það er augljóst að Kane á að vinna Ballon d'Or“ Fótbolti Setti tvö Íslandsmet í snörun á Evrópumótinu Sport Svona missti Aron markið sögulega Fótbolti „Þetta voru meira en vonbrigði“ Fótbolti Bestu byrjanir táninga í körfunni: Gerði betur en Tryggvi og Jón Arnór Körfubolti „Kevin sér opnar hraðbrautir þar sem aðrir sjá umferðarteppu“ Fótbolti Sjáðu jöfnunarmark Rice og stórtap Manchester United Fótbolti Fleiri fréttir Sagði leikmönnum sínum að slaka á í lok leiksins Svona missti Aron markið sögulega Sjáðu jöfnunarmark Rice og stórtap Manchester United „Kevin sér opnar hraðbrautir þar sem aðrir sjá umferðarteppu“ Barcelona kærir PSG vegna móðgandi skilaboða Þurftu að biðja Infantino afsökunar „Það er augljóst að Kane á að vinna Ballon d'Or“ Diomande með frábært mark í sigri Real Madrid Kane stríddi löndum sínum en Arsenal fer heim með stig „Þetta voru meira en vonbrigði“ „Það er þjálfarans og starfsliðsins að meta það, ekki mitt“ Hákon með stoðsendingu en Lille við botninn eftir tap Martröð hjá Manchester United við Como-vatnið Selma Sól skoraði í bikarsigri Íslenskir dómarar í Sambandsdeild en Danir horfa á skjáinn Messi klæddist Como-treyju Akranesvöllur sundurgrafinn og handónýtur Hólmar Örn hættur: „Þakklátur fyrir allt ferðalagið“ Appelsínugul viðvörun og leikur United í hættu ÍA fékk skömm í hattinn en undirbýr byltingu Missir af stórleik kvöldsins og verður í faðmi fjölskyldunnar Með slitið krossband og þarf að fara í aðgerð Vilja að Crystal Palace losi sig við lukkudýrið sitt Sá hann á æfingu og vissi að hann hefði fundið gull Meistaradeildin að slá markamet Dæma nokkra Egypta í bann vegna hegðunar á HM „Ég æfði tíu klukkustundir á dag en enginn sá mig“ Draumur að rætast hjá Fabregas á móti Manchester United „Sjáið Rio, hann var frábær í kvöld“ Phil Foden með þrennu í Meistaradeildinni í kvöld Sjá meira