Í upphafi skal endinn skoða Íris Eva Gísladóttir, Ársæll Guðmundsson, Jóhanna Stella Oddsdóttir, Simon Cramer Larsen og Helga Þórðardóttir skrifa 8. júní 2026 20:33 Mennta- og barnamálaráðuneytið tilkynnti fyrir helgi að það hafi sett af stað kannanir meðal stærðfræðikennara í grunn- og framhaldsskólum til að kanna stöðu námsgagna í greininni. Stjórn Þróunarsjóðs námsgagna fagnar þessu framtaki. Það er jákvæð þróun að ráðuneytið leiti eftir mati kennara og taki þörf á umbótum í námsefnismálum alvarlega. Þróunarsjóður námsgagna skilaði ráðuneytinu fyrir skemmstu yfirgripsmikilli skýrslu um stöðu námsgagna á Íslandi. Skýrslan byggir á gögnum, rannsóknum og alþjóðlegum samanburði og sýnir með skýrum hætti að vandinn er víðtækur. Sjötíu prósent kennara þurfa að búa til eigið námsefni oft eða mjög oft. Aðeins 0,4% af rekstrarkostnaði grunnskóla fer í námsgögn á meðan hlutfallið á Norðurlöndunum er almennt 1,5 til 4%. Þessi staða er ekki sérstakt einkenni stærðfræðikennslu. Hún einkennir nánast allar námsgreinar og öll skólastig. Af hverju er einungis verið að kanna stöðuna í einni námsgrein. Án almennrar þarfagreiningar þvert á allar námsgreinar og öll skólastig er hætta á að niðurstöður kannana af þessum toga leiði til brotakenndra lausna fremur en heildstæðrar stefnu. Vandinn í stærðfræðinámsefni er raunverulegur, en hann er hluti af mun stærri mynd. Stjórn Þróunarsjóðs námsgagna hvetur ráðuneytið til að líta á stöðu námsgagna í heild. Leggjast þarf í endurskoðun á þeim kerfislægu þáttum sem hafa leitt til núverandi stöðu: hvernig fjármögnun til námsgagna hefur þróast á raunvirði, hvernig verkaskipting ríkis og sveitarfélaga hefur skapað hvata sem vinna gegn fjárfestingu í námsefni, og hvernig lagalegur rammi hefur ekki haldið í við þarfir skólakerfisins. Slík greining er forsenda þess að niðurstöður úr einstaklingsbundnum könnunum, eins og þeirri sem nú er lögð fyrir stærðfræðikennara, Leiði til bóta á því ófremdarástandi sem ríkt hefur í þessum málaflokki til fjölda ára. Þá þyrfti að hefja kortlagningu á því námsefni sem til er, greina hvar þörfin er mest og hvar fjárfesting myndi skila hve mestum áhrifum. Kortlagning og kerfisgreining af þessum toga er ein af þeim tillögum sem stjórn sjóðsins lagði fram í skýrslunni til ráðuneytisins. Stjórn Þróunarsjóðs námsgagna er reiðubúin til samstarfs í slíkri vinnu. Við fögnum framtakinu en í upphafi skyldi endinn skoða. Mikilvægt er að fundin sé framtíðarlausn fyrir allt skólakerfið. Höfundar sitja í stjórn Þróunarsjóðs námsgagna. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Skóla- og menntamál Mest lesið Marta Kos verður að virða niðurstöðuna Erna Bjarnadóttir Skoðun Að velta eigin sök á aðra Sigurjón Þórðarson Skoðun Próf, einkunnir og (PISA) mat á skólakerfi. Hluti 1. Jón Torfi Jónasson Skoðun Gagnaver, Verne og Ísrael Halldór Reynisson Skoðun Bubbi Morthens og endalok alheimsins Kristján Logason Skoðun Ábyrgur hagsmunaseggur eða óábyrgt fórnarlamb? Þórdís Hólm Filipsdóttir Skoðun EES-samningurinn og regluverk atvinnulífsins Ólafur Stephensen Skoðun Þegar öll hafa svörin skiptir hugsunin mestu Hjálmar Bogi Hafliðason Skoðun Ísland sagði nei – en sagði það nei við Evrópu? Valerio Gargiulo Skoðun Á að mismuna lántökum? Jón Guðni Ómarsson Skoðun Skoðun Skoðun Marta Kos verður að virða niðurstöðuna Erna Bjarnadóttir skrifar Skoðun Þegar góður ásetningur skilur börn eftir Guðjóna Eygló Friðriksdóttir skrifar Skoðun Gagnaver, Verne og Ísrael Halldór Reynisson skrifar Skoðun Sterkari innviðir fyrir STEM menntun Huld Hafliðadóttir skrifar Skoðun Ísland sagði nei – en sagði það nei við Evrópu? Valerio Gargiulo skrifar Skoðun EES-samningurinn og regluverk atvinnulífsins Ólafur Stephensen skrifar Skoðun Ábyrgur hagsmunaseggur eða óábyrgt fórnarlamb? Þórdís Hólm Filipsdóttir skrifar Skoðun Milljón hugmyndir, hundrað tímamót Sigvaldi Einarsson skrifar Skoðun Fjórða valdið? En það ert þú! Þorsteinn J. Vilhjálmsson skrifar Skoðun Að velta eigin sök á aðra Sigurjón Þórðarson skrifar Skoðun Próf, einkunnir og (PISA) mat á skólakerfi. Hluti 1. Jón Torfi Jónasson skrifar Skoðun Hvers eiga börnin að gjalda? Magnea Gná Jóhannsdóttir skrifar Skoðun Á að mismuna lántökum? Jón Guðni Ómarsson skrifar Skoðun Þegar öll hafa svörin skiptir hugsunin mestu Hjálmar Bogi Hafliðason skrifar Skoðun Bubbi Morthens og endalok alheimsins Kristján Logason skrifar Skoðun Þýsklendingar á meðal vor Darri Eyþórsson skrifar Skoðun Þöllin á þorpinu Jakob Tryggvason skrifar Skoðun Þjóðin sagði nei. En „látum eins og ekkert sé…” Íris Erlingsdóttir skrifar Skoðun Málshraðasögur Eva Hauksdóttir skrifar Skoðun Búrkuball í inngildingarviku Þórarinn Hjartarson skrifar Skoðun Þjóðaratkvæðgreiðslan: Aðild að Evrópusambandinu hafnað Kristinn H. Gunnarsson skrifar Skoðun Blekking litla samfélagsins Sævar Þór Jónsson skrifar Skoðun Farsælt samstarf sveitarfélaga á höfuðborgarsvæðinu í 50 ár Páll Björgvin Guðmundsson skrifar Skoðun Bókun 35: Munurinn á stjórnarskrá Noregs og Íslands Júlíus Valsson skrifar Skoðun Kærleikur er pönk Guðný Þorsteinsdóttir skrifar Skoðun Er kostnaðurinn einskis virði? Hrafn Gunnarsson skrifar Skoðun Mikilvægi þess að lifa æskuna af Einar Torfi Einarsson Reynis skrifar Skoðun Hvað ef svarið hefði verið já? Eva Magnúsdóttir skrifar Skoðun Húsnæðisstefnan sem gerði ungt fólk að leiguliðum Yngvi Ómar Sigrúnarson skrifar Skoðun Veist þú í raun hvernig gervigreind virkar? Bjarki Sigurjónsson Thorarensen skrifar Sjá meira
Skoðun Farsælt samstarf sveitarfélaga á höfuðborgarsvæðinu í 50 ár Páll Björgvin Guðmundsson skrifar