Þegar allt virðist vera í lagi í vinnunni Ragnhildur Bjarkadóttir skrifar 9. júní 2026 10:33 „Just because everything is okay today, doesn’t mean it will be okay tomorrow“ Þessi setning fangar kjarnann af hverju heilsa og öryggi í vinnu eru verkefni sem aldrei klárast. Nýlega sat ég ráðstefnu í Berlín um öryggi, heilsu og sjálfbærni á vinnustöðum. Þar komu saman sérfræðingar, stjórnendur og fulltrúar leiðandi fyrirtækja til að ræða hvernig skapa megi vinnustaði sem eru ekki aðeins öruggir í dag heldur einnig til framtíðar. Bara ef við gætum minnkað streitu um 10% Mia Hjorth hjá Novo Nordisk fjallaði um sálfélagslegt öryggi í fyrirlestri sínum sem bar yfirskriftina Can You Really Target a 10% Reduction in Stress? Í fyrstu hljómar það næstum eins og ómögulegt verkefni - Getur fyrirtæki raunverulega sett sér mælanlegt markmið um að draga úr streitu? Novo Nordisk hefur árum saman fylgst markvisst með streitu starfsfólks, greint þróunina og lagt áherslu á að finna rót vandans áður en hann verður að veikindum, kulnun eða starfsmannaveltu. Þegar ég hlustaði á Miu hugsaði ég hvað þessi nálgun ætti vel við íslenskan vinnumarkmað. Við erum oft fljót að bregðast við þegar vandamál eru orðin sýnileg en mun sjaldnar greinum við áhættuna áður en hún birtist í fjarvistum eða starfsmannaveltu. Það sem vakti sérstklega athygli var að nálgun þeirra að sálfélagslegu öryggi snerist ekki um heilsuvikur, átök eða falleg slagorð. Að þeirra mati er ekki hægt að tryggja sálfélagslegt öryggi nema stjórnendur taki virkan þátt. Með öðrum orðum: Ef stjórnendur skilja ekki streitu geta þeir ekki stýrt henni. Ef stjórnendur skilja ekki sálfélagslega áhættu geta þeir ekki dregið úr henni. Ef stjórnendur eru ekki hluti af lausninni verða þeir oft, óafvitandi, hluti af vandanum. Eru sálfélagslegir þættir minna mikilvægir en aðrir þættir í starfsumhverfi? Annað sem vakti athygli mína var að þau nálgast streitu á sama hátt og önnur öryggismál. Þau leitast við að greina orsakirnar en ekki aðeins bregðast við afleiðingunum. Við myndum aldrei sætta okkur við að vinna eingöngu úr afleiðingum slysa án þess að rannsaka hvað olli þeim. Af hverju ættum við þá að gera það þegar kemur að streitu? Menning verður til með endurtekningu Þriðja atriðið sem sat eftir hjá mér var eftirfarandi setning: Consistency beats campaigns Mér fannst þessi setning útskýra svo vel hvers vegna sum fyrirtæki ná árangri í sálfélagslegu öryggi en önnur ekki. Menning verður ekki til í herferð heldur í endurtekningu, í því sem stjórnendur gera á hverjum degi. Með litlum ákvörðunum sem teknar eru aftur og aftur, ár eftir ár og sérstaklega þegar á reynir. Þær birtast meðal annars í því: Hvernig brugðist er við þegar álag eykst á vinnustað Hvernig stjórnendur nálgast streitu og sálfélagslega áhættu í orðræðu Hvernig forgangsrsöðun er ákveðin þegar verkefnin eru umfram það sem starfsfólk getur sinnt Hvort fólk þori að segja frá vandamálum áður en þau verða of alvarleg Hvort árangur sé á kostnað heilsu eða í samræmi við hana Helsti lærdómur af ráðstefnunni var þessi: Sálfélagslegt öryggi verður ekki til vegna þess að vinnustaður segist leggja áherslu á það. Sálfélagslegt öryggi verður til þegar stjórnendur sýna það í verki daglega að heilsa, öryggi og árangur eigi að fara saman. Menning mótast því ekki í stefnunni heldur í athöfnum þegar á reynir. Höfundur er sérfræðingur í vinnuvernd, klínískur sálfræðingur og eigandi Auðnast. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Vinnustaðurinn Mest lesið Eftir Kveiksþátt Anna Björg Jónsdóttir,Hjördís Halldóra Sigurðardóttir Skoðun Ríkið vill minnst tvö og hálft ár milli barnanna þinna Karítas Ólafsdóttir Skoðun Flokkur fólksins tekur í handbremsuna Eyjólfur Ármannsson Skoðun Cornell og klefamenning Olga Björt Þórðardóttir Skoðun Menning er ekki bisnessplan Birgir Þórarinsson Skoðun Þorum við að banna Airbnb eða erum við líka siðferðislegir hugleysingjar? Helen Ólafsdóttir Skoðun Getur Gufunesið talist skapandi hverfi ef Listhúsið lokar? Narfi Þorsteinsson Skoðun Bakslag fyrir barnafjölskyldur í Hafnarfirði Valdimar Víðisson Skoðun Þorum við að tala um sorgina? Stefán Már Gunnlaugsson Skoðun Réttindi eiga að vera raunveruleg Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir Skoðun Skoðun Skoðun Stríð Rússlands gegn utanríkisviðskiptum Úkraínu er stríð gegn fæðuöryggi heimsins Clara Ganslandt skrifar Skoðun Sjónvarpið 60 ára: Þögnin segir líka sögu Gunnar Salvarsson skrifar Skoðun Takk Hörður Jóhann Páll Jóhannsson skrifar Skoðun Firrur um aflareglu fyrir þorsk Ásgeir Daníelsson skrifar Skoðun EES málið, ESA og fullveldi Íslands og tími komin til varna Eggert Guðmundsson skrifar Skoðun Sýnum viljann í verki Aðalbjörg Stefanía Helgadóttir skrifar Skoðun Bókun 35 – þegar molnar undan stjórnkerfinu Aðalsteinn Júlíus Magnússon skrifar Skoðun Pínu sársauki á unga fólkið? Helgi Bárðarson skrifar Skoðun Austurland margborgar sig Ragnar Sigurðsson skrifar Skoðun Þorum við að tala um sorgina? Stefán Már Gunnlaugsson skrifar Skoðun Verklokafælni stjórnvalda Kjartan Björgvinsson skrifar Skoðun Við getum gert betur Hulda Brá Magnadóttir skrifar Skoðun Hverjum er frelsið ætlað? Guðný S. Bjarnadóttir skrifar Skoðun Bakslag fyrir barnafjölskyldur í Hafnarfirði Valdimar Víðisson skrifar Skoðun Þorum við að banna Airbnb eða erum við líka siðferðislegir hugleysingjar? Helen Ólafsdóttir skrifar Skoðun Skattfé er einnota Erna Bjarnadóttir skrifar Skoðun Forvarnadagurinn er í dag María Heimisdóttir skrifar Skoðun Af hverju má ég ekki eiga Chihuahua af því að ég bý í húsnæði fyrir fatlað fólk? Ingibjörg Dóra Scheving Bjarnadóttir skrifar Skoðun Réttindi eiga að vera raunveruleg Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir skrifar Skoðun Flokkur fólksins tekur í handbremsuna Eyjólfur Ármannsson skrifar Skoðun Áramótaheit ríkisstjórnarinnar Helgi Brynjarsson skrifar Skoðun Menning er ekki bisnessplan Birgir Þórarinsson skrifar Skoðun Þegar allt verður þjónusta Valerio Gargiulo skrifar Skoðun Ríkið vill minnst tvö og hálft ár milli barnanna þinna Karítas Ólafsdóttir skrifar Skoðun Hvenær eru kjósendur blekktir? Gunnar Ármannsson skrifar Skoðun Cornell og klefamenning Olga Björt Þórðardóttir skrifar Skoðun Eftir Kveiksþátt Anna Björg Jónsdóttir,Hjördís Halldóra Sigurðardóttir skrifar Skoðun Almannatryggingar í 90 ár Alma D. Möller skrifar Skoðun Frá styrkjum til stefnumótunar Hrönn Ingólfsdóttir skrifar Skoðun Boltinn er hjá ykkur Matthías Bjarnason skrifar Sjá meira
„
Skoðun Stríð Rússlands gegn utanríkisviðskiptum Úkraínu er stríð gegn fæðuöryggi heimsins Clara Ganslandt skrifar
Skoðun Þorum við að banna Airbnb eða erum við líka siðferðislegir hugleysingjar? Helen Ólafsdóttir skrifar
Skoðun Af hverju má ég ekki eiga Chihuahua af því að ég bý í húsnæði fyrir fatlað fólk? Ingibjörg Dóra Scheving Bjarnadóttir skrifar