Ari þiggur stöðu stjórnarformanns Silja Rún Sigurbjörnsdóttir skrifar 10. júní 2026 21:36 Ari Edwald oddviti Miðflokksins í Reykjavík. Vísir/Vilhelm Ari Edwald, oddviti Miðflokksins, hefur þegið boð Hildar Björnsdóttur um að taka við sem stjórnarformaður Orkuveitunnar.
Þetta tilkynnir hann í færslu á Facebook. „Það vakti athygli er nýr meirihluti D, C og B var myndaður í borgarstjórn 27. maí, að borgarstjóri sagðist myndu gera það að tillögu sinni að oddviti Miðflokksins yrði kjörinn stjórnarformaður Orkuveitu Reykjavíkur (OR). Sýndist sitt hverjum um þessa tilhögun og ég taldi rétt að íhuga málið vandlega,“ skrifar Ari. „Mín niðurstaða er að skorast ekki undan þessu mikilvæga verkefni. Þar vegur þyngst að við í Miðflokknum buðum okkur fram til að þjóna Reykvíkingum og formennska í OR veitir tækifæri til að setja mark sitt á stefnumörkun sem skiptir miklu fyrir alla íbúa borgarinnar og miklu fleiri.“ Var meðal valkosta Sjálfstæðisflokkurinn hlaut flesta kjörna fulltrúa í Reykjavík og stóð val Hildar Björnsdóttur borgarstjóra á milli samstarfs með Miðflokknum eða með Framsókn og Viðreisn. Hún valdi það síðarnefnda en bauð Ara stöðu stjórnarformanns Orkuveitunnar. „OR er eitt mikilvægasta innviðafyrirtæki landsins og leikur lykilhlutverk í uppbyggingu samfélagsins. Kjarni starfseminnar er að sjá samfélaginu fyrir heitu og köldu vatni, rafmagni og fráveitu á sem hagstæðustum kjörum. Gríðarleg tækifæri eru til staðar í aukinni orkuöflun og nýrri tækni sem þarf að nýtast almenningi og atvinnulífi til bættra lífskjara á komandi árum,“ segir Ari í færslunni. Hann segir áherslur Miðflokksins varðandi orkumálin veganesti í verkefnið en þar hafi verið lögð áhersla á að nýtingar- og umráðaréttur sé hjá þjóðinni. Einnig sé stefnan að draga sig út úr verkefnum á borð við Carbfix og Ljósleiðarann. „Ennfremur að arðgreiðslur Orkuveitunnar hafi verið of háar og rekstur borgarinnar hafi verið of háður þeim. Því þurfi að breyta,“ segir Ari. „Það er og verður mikilvægasta hlutverk stjórnar að tryggja að þau verðmæti sem eru fólgin í Orkuveitunni þróist áfram með ábyrgum hætti eigendum og samfélaginu til hagsbóta. Ég hlakka til samstarfsins við stjórn, forstjóra, starfsfólk, eigendur og aðra hagaðila við að byggja áfram upp öfluga Orkuveitu sem þjónar samfélaginu í dag og skapar verðmæti til framtíðar.“ Tillaga um málið verður að óbreyttu afgreidd formlega á fundi borgarstjórnar þann 16. júní.
Borgarstjórn Miðflokkurinn Orkumál Reykjavík Rekstur hins opinbera Mest lesið Rispur á bílum út um allan bæ og tjón upp á hundruð þúsunda Innlent Tugir slösuðust vegna skýstróka á Sikiley Erlent Telur núna sannað að fundin sé hin rétta Brattahlíð Eiríks rauða Innlent „Sólveig Anna virðist vera með mig algjörlega á heilanum“ Innlent Vill auka aðgengi að verkjalyfjum Innlent „Þetta var algjörlega magnað“ Innlent Halla Gunnars svarar fyrir sig á Sprengisandi Innlent Nýtt flóð í Nepal hreif með sér brýr og hús Erlent Kom af fjöllum eftir tilkynningu Trump um orkuvopnahlé Erlent Braust inn með hníf í annarri og hamar hinni Innlent Fleiri fréttir Hafi verið beggja vegna borðsins „Þetta var algjörlega magnað“ Rispur á bílum út um allan bæ og tjón upp á hundruð þúsunda Bein útsending: Niðurstöður Samtalsins kynntar Uppbyggilegra samtal en í athugasemdum „Sólveig Anna virðist vera með mig algjörlega á heilanum“ Mótmæla sjókvíaeldi í tveimur landshlutum „Ég hef áhyggjur af Alþýðusambandinu“ Spenna fyrir þingi ASÍ og framlög til sjóvarna ekki næg Halla Gunnars svarar fyrir sig á Sprengisandi Braust inn með hníf í annarri og hamar hinni Telur núna sannað að fundin sé hin rétta Brattahlíð Eiríks rauða Kalla eftir aðgerðum ekki yfirlýsingum Vill auka aðgengi að verkjalyfjum „Ég sé ekki að íslenskt samfélag vilji kasta því fyrir róða“ Vilja bílastæðin upp úr skotgröfunum Á annað hundrað sektaðir Þrír réðust á einn Halla ætli að sölsa undir sig ASÍ Guðmundur Ari nýr varaformaður Samfylkingar „Vona nú bara að hann fari að jafna sig á tapinu“ Bein útsending: Samtal um framtíðina Opið hús í Höfða í dag Kristrún flytur ræðu á flokksstjórnarfundi Eldur í álverinu í Straumsvík Áfall fyrir Evrópu, hvatning um að jafna sig á tapi og sögulegt afmæli Guðlaugur Þór villtist inn í myndver Þyrlulaus í nokkrar klukkustundir Segjast geta hafið framkvæmdir á morgun Keyrði á og flúði en skildi númeraplötu eftir Sjá meira