Hermann Nökkvi verður aðstoðarmaður Vilhjálms Árnasonar Rafn Ágúst Ragnarsson skrifar 11. júní 2026 11:26 Hermann Nökkvi færir sig suður með sjó. Aðsend Hermann Nökkvi Gunnarsson blaðamaður á Morgunblaðinu verður aðstoðarmaður Vilhjálms Árnasonar nýs bæjarstjóra Reykjanesbæjar. Hann tók einnig þátt í kosningabaráttu Vilhjálms.
Hermann greinir frá vistaskiptunum í færslu á samfélagsmiðlum. Þar segir hann að áætlunin hafi verið að hefja aftur störf á Morgunblaðinu eftir að hafa tekið sér leyfi þaðan til að sinna kosningabaráttu sjálfstæðismanna í Reykjanesbæ. „Reykjanesbær er stórt og öflugt sveitarfélag sem snertir daglegt líf þúsunda íbúa með margvíslegum hætti. Verkefnin eru fjölbreytt og umfangsmikil og því er mikilvægt að bæjarstjóri hafi öflugan stuðning í eftirfylgni verkefna, samskiptum og stefnumótun. Það verður hlutverk mitt, rétt eins og hjá fyrri aðstoðarmönnum, að aðstoða við það, auka skilvirkni og stuðla að því að hlutirnir gangi sem best fyrir sig í þágu íbúa bæjarins,“ segir hann. Hermann er uppalinn í Reykjanesbæ, var formaður nemendafélags Fjölbrautaskóla Suðurnesja og formaður Heimis - félags ungra sjálfstæðismanna í Reykjanesbæ. Síðastliðin þrjú ár hefur hann verið blaðamaður á Morgunblaðinu samhliða námi. „Starfsreynsla mín í sveitarfélaginu er einnig nokkuð fjölbreytt. Hér hef ég starfað við fiskvinnslu, garðslátt, pípulagningarþjónustu, sem verkamaður hjá ÍAV, á kassa í verslun og í stjórnmálum. Þessi reynsla hefur gefið mér innsýn í ólíka starfsemi, fjölbreytt störf og ekki síst það fólk sem byggir upp samfélagið okkar á hverjum degi. Ég er sannfærður um að þessi bakgrunnur muni nýtast mér vel í nýju starfi,“ segir Hermann.
Vistaskipti Reykjanesbær Sveitarstjórnarmál Fjölmiðlar Mest lesið Búið að opna Hellisheiði á ný Innlent Allir á uppsagnarfresti og enginn getur svarað Innlent Brutu kynferðislega gegn börnum en sluppu við refsingu Innlent Leigubílstjóri lét hnefana tala Innlent „Niðurstaðan er sú að hann setti þetta aftur á“ Erlent Ákærður fyrir að nauðga sautján ára stúlku en neitar sök Erlent Sáttameðferð sé ekki alltaf rétta leiðin Innlent Áverkar í 55 atvikum í grunnskólum borgarinnar Innlent Margrét Löf vill komast í opið fangelsi Innlent Lögðu andstæðingunum vafasöm orð í munn með gervigreind Erlent Fleiri fréttir Líðan mannsins stöðug en slysið alvarlegt Hendurnar vilji ekkert með þennan „krabbameinsgaur“ hafa Ekkert um að fjalla Áverkar í 55 atvikum í grunnskólum borgarinnar Allir á uppsagnarfresti og enginn getur svarað Brutu kynferðislega gegn börnum en sluppu við refsingu Sáttameðferð sé ekki alltaf rétta leiðin Leigubílstjóri lét hnefana tala Búið að opna Hellisheiði á ný Vilja kanna fækkun útibúa Borgarbókasafnsins Verklok í Þverholti færast frá sumri til áramóta Vísar jöfnum höndum til mikilvægi samtals og almennra hegningarlaga Lögreglan hafði afskipti af tugum ökumanna Ítalski baróninn á ekki vatnið Tvö umferðarslys og þrír fluttir á sjúkrahús Ómar lagði úrskurðarnefnd vegna tölvupóstsins óvenjulega Skúmaskotum Mjóddarinnar fækkað í forvarnarskyni Segir flugeldasöluna ekki í hættu Tilkynning um kæru óskýr og Bandero fer ekki fet Mál sonar þingmannsins komið til héraðssaksóknara „Við munum tryggja það að hún muni ekki gleymast“ Hættir við að aflétta ráðningarbanni vegna manndráps Bein útsending: Gera samfélagsmiðlar okkur hamingjusöm? Vill bæta eftirlit með lyfjagjöfum aldraðra Fjarvera Þorgerðar á pari við forvera hennar Gríðarleg sjúkdómsbyrði meðal niðurstaðna Eftirsjá að Eggerti: „Lífið heldur áfram“ Nauðgaði fatlaðri konu og gripinn í Leifsstöð Dóttir Kolbrúnar skrifar undir harða viðvörun um leigubremsuna Árásir hófust áður en gallarnir voru lagfærðir Sjá meira