MDE vísar frá tveimur málum gegn Íslandi Lovísa Arnardóttir skrifar 11. júní 2026 12:43 Dómstóllinn er í Strassborg. Vísir/EPA Mannréttindadómstóll Evrópu vísaði í morgun frá tveimur málum gegn Íslandi. Annað varðar ákæru í kynferðisbrotamáli sem ekki var gefin út og hitt félagafrelsi lyfjafræðings.
Í tilkynningu á vef stjórnarráðsins kemur fram að í öðru málinu hafi því verið haldið fram að íslenska ríkið hefði brugðist skyldum sínum með því að gefa ekki út ákæru í kynferðisbrotamáli og ekki verndað viðkomandi gegn kynbundnu ofbeldi. Mannréttindadómstóllinn vísaði kærunni frá á grundvelli 35. greinar Mannréttindasáttmálans, þar sem hann taldi ekki sýnt fram á brot gegn sáttmálanum. Alls kærðu níu konur niðurstöðu sinna mála til Mannréttindadómstóls Evrópu árið 2021. Málið sem vísað var frá í dag var þó ekki hluti af þeim en þó af sama meiði. Konurnar sem kærðu áttu það sameiginlegt að mál þeirra voru annaðhvort felld niður hjá saksóknara eða rannsókn hjá lögreglu hætt. Niðurstaða liggur nú fyrir í máli allra níu og var ríkið brotlegt í máli tveggja kvenna, ríkið sýknað í máli fimm og svo var hinum vísað frá. Tekist á um félagafrelsi Í tilkynningu stjórnarráðsins kemur fram að í hinu málinu hafi verið fjallað um félagafrelsi. Lyfjafræðingur hjá Landspítalanum taldi brotið gegn félagafrelsi sínu þegar Félagsdómur gerði henni að sæta aðild að Lyfjafræðingafélagi Íslands. Lyfjafræðingurinn sagði sig úr Lyfjafræðingafélaginu og gekk í Félag náttúrufræðinga Íslands, FÍN. Hún fór þess síðan á leit við Landspítalann að kjarasamningur FÍN gilti um starfskjör hennar hjá spítalanum. Landspítalinn hafnaði því og höfðaði FÍN mál fyrir Félagsdómi sem hafnaði kröfum félagsins. Mannréttindadómstóllinn taldi að viðkomandi hefði ekki tæmt innlend réttarúrræði og því var málinu vísað frá.
Mannréttindadómstóll Evrópu Kynferðisofbeldi Lögreglumál Dómsmál Lyf Stéttarfélög Tengdar fréttir Ríkið braut á konu með því að láta mál hennar fyrnast Íslenska ríkið gerðist brotlegt við mannréttindasáttmála Evrópu, með því að lögregla hafi látið tilkynningu konu um heimilisofbeldi á hendur fyrrverandi kærasta sínum fyrnast. Maðurinn var ekki yfirheyrður fyrr en eftir að málin voru fyrnd. Önnur kona tapaði sambærilegu máli fyrir Mannréttindadómstól Evrópu í morgun. 26. ágúst 2025 10:21 Mest lesið „Farið að minna mig á stöðuna í Bandaríkjunum“ Innlent Hafa skotið um hundrað bjargdúfur í Vestmannaeyjum Innlent Baráttan harðnar í Texas: Dæla milljónum í baráttuna um öldungadeildina Erlent Freyr látinn fara frá Eflingu Innlent Mátti þrífa harkalega í leikskólabarn Innlent Ákærðir fyrir að frelsissvipta mann og nauðga með röri Innlent Ákærður fyrir gróf brot á barnungri stjúpsystur sinni Innlent María Sigurðardóttir er látin Innlent Breiðholtsbraut lokuð allan morgundaginn Innlent Segir Ingu hafa eytt sér á Facebook Innlent Fleiri fréttir „Farið að minna mig á stöðuna í Bandaríkjunum“ Mátti þrífa harkalega í leikskólabarn Hafa skotið um hundrað bjargdúfur í Vestmannaeyjum Ákærður fyrir gróf brot á barnungri stjúpsystur sinni Sjaldgæfur gestur í Eyjum Bað um álit lögreglu á gæðum fíkniefna Skriða þveraði veginn í Árneshrepp Breiðholtsbraut lokuð allan morgundaginn Allt umfram 2,8 milljarða dregið frá Segir Ingu hafa eytt sér á Facebook Húsbíll fauk út af Hver ákvað að Guðmundur Ingi ætti að hætta? Gæsluvarðhald framlengt yfir þremur Ákærðir fyrir að frelsissvipta mann og nauðga með röri Fundu umfangsmikla kannabisrækt í Bolungarvík „Nauðsynlegt er að kjarasamningar haldi“ Sárnar að vera bendlaður við líkamsárás Freyr látinn fara frá Eflingu Segir Ingu hafa vitnað í trúnaðarsamtal Stefna á að taka inn skjólstæðinga í næstu viku Segir Ingu hafa brotið trúnað í ræðustól Alþingis Bein útsending: Sjálfsvíg á Íslandi – staðan, forvarnir og leiðin fram á við „Við erum ekki að byrja á núlli“ Fimm ára dómur Norberts staðfestur Veita ekki viðtöl eftir ríkisstjórnarfund Jöfnuður næst ekki í um öðrum hverjum kosningum Kjarni málsins sé að Inga hafi ekki sagt alveg rétt frá Endurskoða samning SÁÁ María Sigurðardóttir er látin Handtekinn fyrir líkamsárás, rán, íkveikju og þjófnað Sjá meira
Ríkið braut á konu með því að láta mál hennar fyrnast Íslenska ríkið gerðist brotlegt við mannréttindasáttmála Evrópu, með því að lögregla hafi látið tilkynningu konu um heimilisofbeldi á hendur fyrrverandi kærasta sínum fyrnast. Maðurinn var ekki yfirheyrður fyrr en eftir að málin voru fyrnd. Önnur kona tapaði sambærilegu máli fyrir Mannréttindadómstól Evrópu í morgun. 26. ágúst 2025 10:21