Spá örlítilli hjöðnun verðbólgu Agnar Már Másson skrifar 11. júní 2026 14:13 Hækkandi flugfargjöldin vega þyngst í spá Íslandsbanka um hækkandi vísitölu neysluverðs. Vísir/Vilhelm Íslandsbanki spáir því að verðbólga hjaðni lítillega í júní, en muni samt mælast yfir forsenduákvæði kjarasamninga í ágúst. Til lengri tíma litið er ekki útlit fyrir að verðbólga mælist við markmið á næstu árum.
Hagfræðingar við greiningardeild bankans segja frá þessu í tilkynningu en þeir búast við því að vísitala neysluverðs hækki um 0,7 prósent í júní frá fyrri mánuði. Ef spáin rætist mun ársverðbólga hjaðna lítillega, úr 5,1 prósentum í 5,0 prósent, og samkvæmt spánni verður hún það einnig í ágúst. Greiningardeild Íslandsbanka gefur reglulega út verðbólguspá.Vísir/Vilhelm Hagstofan mun birta vísitölu neysluverðs 26. júní. Í maí hjaðnaði verðbólga minna en vonir stóðu til. Helstu hækkunarvaldar í mánuðinum eru sagðir vera árstíðarbundnar hækkanir flugfargjalda ásamt hækkun á reiknaðri húsaleigu. Flugmiðaverð drifkraftur hækkunarinnar Í spánni vega flutningar þyngst til hækkunar og hækka um 1,5 prósent á milli mánaða. Hækkunin er sögð fyrst og fremst drifin áfram af flugfargjöldum, sem hækka um rúmlega 11 prósent á milli mánaða (0,29 prósenta áhrif á vísitölu neysluverðs) samkvæmt mælingu bankans. Þetta megi rekja til árstíðarbundinnar aukningar í ferðalögum yfir sumarmánuðina sem nær hámarki í júlí. Líklegt sé að flugfargjöld hækki meira en ella á næstu mánuðum vegna hækkana á þotueldsneyti og gerir bankinn ráð fyrir því í bráðabirgðaspá sinni. Eldsneytisverð stendur aftur á móti í stað á milli mánaða. Þetta er þá í fyrsta sinn frá því að átök hófust við Persaflóa sem eldsneytisverð hækkar ekki, ef frá er talin lækkun virðisaukaskatts á eldsneyti í síðasta mánuði. Annar flokkur sem hækkar jafnan yfir sumarmánuðina er veitingahús og gistiþjónusta. Samkvæmt spá bankans hækkar hann um 2,6 prósent á milli mánaða, sem myndi hafa 0,14 prósenta áhrif á vísitölu neysluverðs. Spá hækkun leiguverðs Næstþyngst vegur húsnæðis- og leiguverð, en bankinn spáir að það hækki um 0,6 prósent (0,17 prósenta áhrif á vísitölu neysluverðs), þar sem reiknuð húsaleiga vegur þyngst og skýrir um 0,14% af hækkun vísitölunnar. Reiknuð húsaleiga hefur hækkað hraðar á síðustu tveimur mánuðum en áður. Frá áramótum hefur hún hækkað um 2,2 prósent. Þessi þróun er í takti við vísitölu leiguverðs, sem hefur þó hækkað hraðar það sem af er ári. Samkvæmt gögnum fram til apríl nemur hækkunin 3,1 prósentum. Þá segir bankinn að verð á mat- og drykkjarvörum hafi nokkuð óvænt staðið í stað undanfarna tvo mánuði. Miðað við mælingu bankans verður breyting þar á í júní og spáir því að matvörur hækki um 0,5 prósent og dreifist hækkunin yfir flesta undirliði. Helst beri þó að nefna hækkun á mjólkurvörum í kjölfar þess að verðlagsnefnd búvara hækkaði verð til bænda í maí. Líklegt sé að innfluttar vörur, þar á meðal matvörur, hækki á næstu mánuðum eftir því sem verðhækkanir á aðföngum til matvælaframleiðslu skili sér í auknum mæli til landsins. „Ef horft er lengra fram á veginn gerum við ráð fyrir að verðbólga verði að meðaltali um 5% á þessu ári. Átök við Persaflóa munu ýta undir viðvarandi verðbólguþrýsting á komandi fjórðungum og tefja fyrir hjöðnun verðbólgu. Í fyrrnefndri þjóðhagsspá gerum við ekki ráð fyrir að verðbólga nái verðbólgumarkmiðinu á spátímanum, spáin hljóðar upp á 4,3% verðbólgu að jafnaði árið 2027 og 3,8% árið 2028. Óvissa um verðbólguhorfur er þó enn mikil, ekki síst um lengd og umfang raskana á framboðshlið aðfanga,“ segir í greiningu bankans.
Íslandsbanki Efnahagsmál Verðlag Íslenska krónan Mest lesið Nýtt gjald hefur áhrif á íslenska seljendur Viðskipti innlent Loka kaffihúsinu Örnu á Eiðistorgi Viðskipti innlent „Ég stend hins vegar föst á mínu, enda sofna ég alltaf á mig“ Atvinnulíf Björguðu hamsatólginni: „Ég er algjörlega að stökkva út í djúpu laugina“ Neytendur Gangast í ábyrgð fyrir 3,4 milljarða króna láni Viðskipti innlent Klakki, áður Exista, gjaldþrota Viðskipti innlent Hótelævintýri lauk með gjaldþrotum upp á milljarð Viðskipti innlent Getur ekki lengur orða bundist Viðskipti innlent Hefja viðræður um sölu Blikastaðalandsins Viðskipti innlent Bein útsending: Hátæknibrennsla á Íslandi Viðskipti innlent Fleiri fréttir Björguðu hamsatólginni: „Ég er algjörlega að stökkva út í djúpu laugina“ Unnendur hamsatólgar geta andað léttar Aðskotahlutur fannst í kanilsykurspoka Núna er hægt að framvísa lófanum til að komast í ræktina Ísbúð Vesturbæjar í Skipholti lokað Airbnb-gestir þurfa ekki lengur að vaska upp Fækka heimsóknum til muna með einni breytingu Kostar allt að 580 þúsund Fær hvorki bætur né afsökunarbeiðni eftir að hafa stungið sig á saumnál Tveggja lítra flöskur heyra brátt sögunni til Auglýsi sjúkdóma til að komast fram hjá reglum Verja súkkulaðimyndirnar á Swiss Miss Opna seinna á Dalvegi og í Jafnaseli Ný streymisveita verði heimili íslenskrar framleiðslu Fréttamaður missti af strætónum til baka Gapti þegar hún sá heimilisbókhaldið hjá Röggu nagla Sjá meira