Bandaríkin og Íran staðfesta að samkomulag hafi náðst Eiður Þór Árnason skrifar 14. júní 2026 21:29 Donald Trump Bandaríkjaforseti segist nú vilja láta olíuna flæða, eitthvað sem stjórnvöld í Íran og Bandaríkjunum hafa um tíma markvisst reynt að koma í veg fyrir. Getty/Kevin Dietsch Bandaríkin og Íran hafa náð samkomulagi um að binda endi á stríðið í Íran. Þetta staðfesta Bandaríkjaforseti og aðstoðarutanríkisráðherra Íran. Til standi að undirrita samninginn í Sviss föstudaginn 19. júní. „
Samkomulagið við Íslamska lýðveldið Íran er nú frágengið,“ skrifaði Trump á samfélagsmiðlinum Truth Social. „Ég heimila hér með að fullu opnun Hormússunds án tollgjalda og heimila um leið og samstundis að herkví Bandaríkjanna verði aflétt,“ segir hann. „Skip heimsins, ræsið vélarnar. Látið olíuna flæða!“ Íran segir einnig samkomulag í höfn Kazem Gharibabadi, aðstoðarutanríkisráðherra Írans, hefur staðfest í símtali við ríkissjónvarpið þar í landi að samkomulag hafi náðst við Bandaríkin og að formleg undirritun fari fram í Sviss á föstudag. „Tilkynnt verður um tafarlausan og varanlegan endi á stríðinu og hernaðaraðgerðum á ólíkum vígstöðvum, þar á meðal í Líbanon, í kvöld,“ segir hann. Kharg-eyja Hormússund JEMEN S.A.F. TYRKLAND SÝRLAND SÁDI-ARABÍA ÓMAN ÍRAK ÍRAN JÓRDANÍA EGYPTALAND LÍBANON ÍSRAEL KÚVEIT KÝPUR PALESTÍNA Kharg-eyja Teheran Hormússund BAREIN KATAR BBC greinir frá þessu en Gharibabadi bætir við að herkví Bandaríkjanna verði einnig aflétt í kvöld. Bandaríkjaher hefur stöðvað skipafarir við íranskar hafnir til að koma í veg fyrir útflutning á olíu. Aðgerðin var svar við lokun Hormússunds sem kom í veg fyrir olíu- og vöruflutninga í Persaflóa og hefur haft áhrif á olíuverð og efnahagskerfi heimsins. Enn eigi eftir að útfæra ýmis atriði Shehbaz Sharif, forsætisráðherra Pakistans, greindi fyrst frá samkomulaginu en ríkið hafði milligöngu um viðræður stjórnvalda. Shehbaz Sharif, forsætisráðherra Pakistans.AP „Báðir aðilar hafa lýst yfir tafarlausri og varanlegri stöðvun hernaðaraðgerða á öllum vígstöðvum, þar á meðal í Líbanon,“ sagði hann í færslu á X, áður Twitter. „Nú eftir að samkomulagið er í höfn munu sáttasemjarar hafa umsjón með röð funda í þessari viku. Þessar for-innleiðingarviðræður munu leggja grunninn að tæknilegum viðræðum og opinberu undirritunarathöfninni.“ Following intensive talks, we are pleased to announce that the Peace Deal between the United States of America and Islamic Republic of Iran has been REACHED. Both sides have declared the immediate and permanent termination of military operations on all fronts, including in…— Shehbaz Sharif (@CMShehbaz) June 14, 2026 Í yfirlýsingu sem flutt var í íranska ríkissjónvarpinu er fullyrt að Bandaríkin hafi verið „neydd til þess að skrifa undir samning“ sem bindi enda á stríðið við Íran. Þetta segir Ghoncheh Habibiazad, fréttamaður BBC Persian. Ríkismiðilinn lýsi niðurstöðunni sem sigri fyrir stjórnvöld í Teheran. Trump hafi gefið eftir á síðustu stundu Fars-fréttastofan í Íran sem er með tengsl við íranska byltingarvörðinn, herafla klerkastjórnarinnar, segir von á yfirlýsingu frá stjórnvöldum um samkomulagið. Að sögn fréttastofunnar stöðvaði Íran samningaviðræðurnar eftir árás Ísraelshers á Líbanon í dag og hafi búið sig undir að svara með árás á Ísrael. Stjórnvöld hafi að lokum fallist á að hætta við árásina vegna tilslakana sem Bandaríkjaforseti bauð á síðustu stundu. Hluti af þeim hafi verið að „vernda friðhelgi yfirráðasvæðis Líbanons“, að Ísrael myndi draga sig frá landamærum Líbanons og tafarlaus aflétting á herkví Bandaríkjahers við íranskar hafnir. Einnig hafi verið ákveðið að endurskoða stjórn og reglur um umferð á hafsvæðunum við Persaflóa í samvinnu við Íran og Óman, að sögn Fars. Þetta hefur ekki verið staðfest af írönskum eða bandarískum stjórnvöldum. Fréttin er í vinnslu.
Íran Árásir Bandaríkjanna og Ísraels á Íran Bandaríkin Donald Trump Pakistan Tengdar fréttir Lét Netanjahú heyra það í símtali þeirra: „Ég varð svo brjálaður“ „Af hverju í andskotanum þurfti Bibi að gera árás? Ég varð svo brjálaður. Ég lét hann vita af því. Hann hefur enga helvítis dómgreind. Ég sagði honum það.“ Þetta segir Donald Trump Bandaríkjaforseti um árás Ísraelshers á Líbanon í dag og samtal sem hann átti við Benjamín Netanjahú, forsætisráðherra Ísraels, í kjölfarið. 14. júní 2026 20:11 Friðarviðræður sagðar í uppnámi Aðalsamningamaður Íran sagði friðarviðræður við Bandaríkin í uppnámi eftir nýjustu loftárás Ísraela á Beirút, höfuðborg Líbanon. Þrír eru látnir og fimmtán særðir í úthverfum borgarinnar eftir árásina, að sögn yfirvalda í Líbanon. Þá hafa byggingar og verslanir orðið fyrir umtalsverðum skemmdum. 14. júní 2026 17:04 „Afleiðingarnar muni vara í einhver ár jafnvel“ Alþjóðastjórnmálafræðingur segir langt frá því að friður sé í augnsýn á milli Bandaríkjanna og Íran þrátt fyrir drög að samkomulagi. Átök milli þjóðanna með tilheyrandi lokun Hormússunds og loftárásum Bandaríkjahers hafa staðið yfir síðan í lok febrúar. 13. júní 2026 12:38 Mest lesið Fékk viðurkenninguna ekki afhenta fyrr en á þriðjudeginum: „Ég var mjög hissa þegar þau hringdu í mig“ Innlent Munaði minnstu að hún væri sjálf komin út í þegar árásin varð: „Það verður bara allt í blóði í sjónum“ Erlent Fólk þurfi að gæta sín þegar það leigir íbúðina út í ágúst Innlent Voru komnir með sína eigin dyraverði þegar lögregluna bar að garði Innlent Segir upptöku evrunnar geta leitt til aukins atvinnuleysis Innlent Skipagöngin samþykkt eftir pólitísk hrossakaup Fréttir Kominn með nóg af tímasetningu lögreglu Innlent Tólf fórust þegar flugvél hrapaði í Missouri Erlent Friðarviðræður sagðar í uppnámi Erlent Laus úr sjálfheldu eftir um fimm tíma strand Innlent Fleiri fréttir Trump segir samkomulag hafa náðst við Íran Lét Netanjahú heyra það í símtali þeirra: „Ég varð svo brjálaður“ Tólf fórust þegar flugvél hrapaði í Missouri Friðarviðræður sagðar í uppnámi Virðast ekki vilja takmarka sig við tíu milljónir Vonast til þess að fá friðarsamkomulag í afmælisgjöf Spánarkonungur lánaði Leó einkaþotuna Dramatík í tveimur þáttum: Gervigreindarbóla og óður um yfirráð Munaði minnstu að hún væri sjálf komin út í þegar árásin varð: „Það verður bara allt í blóði í sjónum“ Breski herinn stöðvaði skip úr skuggaflota Rússa Fullyrti að samkomulag yrði undirritað og sundið opnað „Afleiðingarnar muni vara í einhver ár jafnvel“ Friður í augsýn að uppfylltum skilyrðum Tveir látnir eftir að bíl var ekið í hlið húss Samþykkt friðarsamkomulag liggi fyrir Dregur umdeildar skýrslur um Havana-heilkennið til baka Facebook lá niðri Kaninn pakkar saman í Evrópu Stríðið í Úkraínu orðið lengra en fyrri heimsstyrjöldin Hæstiréttur bannar Alabama að taka menn af lífi með köfnunarefni Íranir draga orð Trump til baka og vara fólk við að taka hann trúanlegan Lýsa uppgötvuninni sem gríðarstórum „hvalakirkjugarði“ Vilja lækka sakhæfisaldur um eitt ár í stað tveggja Aflýsir kröftugu árásunum Bretar samþykkja Wegovy pilluna fyrstir í Evrópu Rýmdu hluta Pentagon vegna „loftgæðafráviks“ Saka Ísraela um þjóðernishreinsun á Vesturbakkanum Gera úkraínsk ungmenni að launmorðingjum Boðar harðar árásir og hernám Kharg-eyju Varnarmálaráðherra Breta segir af sér Sjá meira
Lét Netanjahú heyra það í símtali þeirra: „Ég varð svo brjálaður“ „Af hverju í andskotanum þurfti Bibi að gera árás? Ég varð svo brjálaður. Ég lét hann vita af því. Hann hefur enga helvítis dómgreind. Ég sagði honum það.“ Þetta segir Donald Trump Bandaríkjaforseti um árás Ísraelshers á Líbanon í dag og samtal sem hann átti við Benjamín Netanjahú, forsætisráðherra Ísraels, í kjölfarið. 14. júní 2026 20:11
Friðarviðræður sagðar í uppnámi Aðalsamningamaður Íran sagði friðarviðræður við Bandaríkin í uppnámi eftir nýjustu loftárás Ísraela á Beirút, höfuðborg Líbanon. Þrír eru látnir og fimmtán særðir í úthverfum borgarinnar eftir árásina, að sögn yfirvalda í Líbanon. Þá hafa byggingar og verslanir orðið fyrir umtalsverðum skemmdum. 14. júní 2026 17:04
„Afleiðingarnar muni vara í einhver ár jafnvel“ Alþjóðastjórnmálafræðingur segir langt frá því að friður sé í augnsýn á milli Bandaríkjanna og Íran þrátt fyrir drög að samkomulagi. Átök milli þjóðanna með tilheyrandi lokun Hormússunds og loftárásum Bandaríkjahers hafa staðið yfir síðan í lok febrúar. 13. júní 2026 12:38
Fékk viðurkenninguna ekki afhenta fyrr en á þriðjudeginum: „Ég var mjög hissa þegar þau hringdu í mig“ Innlent
Munaði minnstu að hún væri sjálf komin út í þegar árásin varð: „Það verður bara allt í blóði í sjónum“ Erlent
Munaði minnstu að hún væri sjálf komin út í þegar árásin varð: „Það verður bara allt í blóði í sjónum“
Fékk viðurkenninguna ekki afhenta fyrr en á þriðjudeginum: „Ég var mjög hissa þegar þau hringdu í mig“ Innlent
Munaði minnstu að hún væri sjálf komin út í þegar árásin varð: „Það verður bara allt í blóði í sjónum“ Erlent