Ekki óvenjulegt að konan gangi laus þrátt fyrir hrottalegar lýsingar Elísabet Inga Sigurðardóttir skrifar 16. júní 2026 19:32 Margrét Valdimarsdóttir er afbrotafræðingur. vísir/bjarni/vilhelm Afbrotafræðingur segir ekki óvenjulegt að sakborningur í Edition málinu svokallaða gangi laus þrátt fyrir hrottafengnar lýsingar á málsatvikum. Geðlæknir sem gaf skýrslu fyrir dómi í dag segir ekkert benda til þess að konan glími við geðræna erfiðleika. Réttarhöld héldu áfram í dag yfir Ming Ting Mancel sem ákærð er fyrir að hafa í samráði við eiginmann sinn banað dóttur þeirra á hótelherbergi á Edition síðasta sumar. Fyrir dóminn í dag komu meðal annars lögreglumenn og geðlæknir sem sagði ekkert benda til þess að móðirin þjáist af geðrænum erfiðleikum. „Þetta mál hefur vakið athygli annars staðar en hér. Erlendir fjölmiðlar hafa fjallað um þetta vegna þess að þetta er svo sérstakt á svo margan hátt, svo óvenjulegt á svo margan hátt,“ segir Margrét Valdimarsdóttir, afbrotafræðingur. Í þessari grein er fjallað um sjálfsvíg. Fólki með sjálfsvígshugsanir er bent á upplýsingasíma heilsugæslunnar s.1700, netspjallið heilsuvera.is, Hjálparsíma Rauða krossins s.1717, á netspjallið 1717.is og á Píeta símann s.552-2218. Mögrum hryllti við lestur á málavöxtu upp úr réttarhöldunum í síðustu viku þar sem móðirin lýsir því hvernig hún hafi haldið í hönd dóttur sinnar inni á baðherbergi á meðan eiginmaður hennar stakk dótturina í hjartað. Því næst hafi hjónin lagt hana í rúmið, boðið henni áfengi og svefnlyf í þeim tilgangi að lina þjáningar hennar. Kaus ekki þessa aðferð Mancel sagði dóttur sína hafa viljað deyja en viðurkennir að hnífstunga í hjartað hafi reyndar ekki verið sú aðferð sem dóttirin hefði helst kosið. Móðirin reyndi að svipta sig lífi að eigin sögn en það tókst ekki. Hún var handtekin skömmu síðar og var í gæsluvarðhaldi fram í september en hefur gengið laus síðan. Ekki óvanalegt Margrét segir ekki óvenjulegt að hún gangi laus þrátt fyrir hrottafengnar lýsingar á málsatvikum og bendir á að hún sé í farbanni. „Og svona miðað við málavexti í þessu máli og þrátt fyrir að þetta sé mjög óhugnanlegt að þá virðist þetta vera tilvik innan fjölskyldunnar og mér finnst ekkert skýrt að almenningi stafi hætta af þessari konu og þess vegna finnst mér skiljanlegt að á meðan á réttarhöldunum stendur að hún gangi laus og það er ekki óvanalegt.“ Lögreglumaður lýsti því fyrir rétti í dag að Mancel hafi á vettvangi málsins ekki sýnt nein viðbrögð við aðstæðum. Eina skiptið sem hún hafi fellt tár var þegar henni var tjáð að hún væri sjálf ekki í lífshættu. Annar sagði að engin gögn hafi fundist við rannsókn málsins sem bentu til skipulagningar sjálfsvíga fjölskyldunnar. Þá kom fram að sími Mancel bæri þess merki að hafa verið hreinsaður af öllum gögnum daginn áður en síðast sást til fjölskyldunnar utan hótelsins. Áætlað er að aðalmeðferð haldi áfram á fimmtudaginn. Manndráp á Reykjavík Edition Lögreglumál Reykjavík Fangelsismál Tengdar fréttir Grét af vonbrigðum yfir því að hafa ekki stungið sig í hjartað Ming Ting Mancel, sem sætir ákæru fyrir að hafa myrt dóttur sína í félagi við eiginmann sinn á Edition-hótelinu í fyrra, grét af vonbrigðum þegar henni var tjáð að henni hefði ekki tekist að stinga sig í hjartað og væri því ekki í lífshættu. 16. júní 2026 16:29 Mest lesið Rússar gómaðir með leynilega sæstrengjaklippu Erlent Halda minningarstund fyrir Hönnuh Innlent Braut reglur þegar hann minntist Steins Innlent 25 ár frá 9/11: Ólíkar útgáfur Trumps af deginum Erlent Kanna hvort Kim eigi son Erlent „Ég mun stúta þér og einhver skilar sér ekki í skólann“ Innlent Halla hæstánægð með stólaskiptin Innlent Viðraði hugmyndir um bandarískt Ísland við Bjarna Innlent Tilkynnt um innbrotsþjóf sem var enn inni Innlent Tók konu hálstaki sem söng með á söngleik Erlent Fleiri fréttir Finni nikótínpúða á leikskólalóðinni og stingi upp í sig Segir Áfram Ísland ekki hafa borgað fyrir auglýsingu Þjóðmála Tilkynnt um innbrotsþjóf sem var enn inni Halda minningarstund fyrir Hönnuh Fjárlagafrumvarpið „köld kveðja til launafólks“ „Ég mun stúta þér og einhver skilar sér ekki í skólann“ Hanna Katrín átti fund með sendiherra Kína Viðraði hugmyndir um bandarískt Ísland við Bjarna „Við erum að gera stóra hluti í samgöngum“ Halla hæstánægð með stólaskiptin Próflaus á öfugum vegarhelmingi Uppstokkun í fullri sátt innan Framsóknar Tvíkjálkabraut konuna en sleppur við fangelsi Braut reglur þegar hann minntist Steins Skera rúma fjóra milljarða af vegagerð Hallinn töluverður en mun minni en búist var við Fæddi barn utan við verslun Elko Daði segir eyðsluseggjum að hemja sig Afkoma borgarinnar tólf milljörðum króna verri en reiknað var með Féllu af þingi en fóru ekki langt „Við tökum þessa stöðu mjög alvarlega“ Útför Steins Ármanns Ráðherra boðar aukið eftirlit Samúel hafi sótt hart að fólki að greiða fyrir fram Rektorarnir svara fyrir sig Opna nýja sundlaug í Urriðaholti Hekla Aurora skorin niður í minjagripi Jarðsyngur sinn besta vin Segja ráðherra hafa gengið fram hjá þingnefnd þegar hann sendi ESB bréf Aðstoðar tugi fórnarlamba Samúels á Spáni Sjá meira
Réttarhöld héldu áfram í dag yfir Ming Ting Mancel sem ákærð er fyrir að hafa í samráði við eiginmann sinn banað dóttur þeirra á hótelherbergi á Edition síðasta sumar. Fyrir dóminn í dag komu meðal annars lögreglumenn og geðlæknir sem sagði ekkert benda til þess að móðirin þjáist af geðrænum erfiðleikum. „Þetta mál hefur vakið athygli annars staðar en hér. Erlendir fjölmiðlar hafa fjallað um þetta vegna þess að þetta er svo sérstakt á svo margan hátt, svo óvenjulegt á svo margan hátt,“ segir Margrét Valdimarsdóttir, afbrotafræðingur. Í þessari grein er fjallað um sjálfsvíg. Fólki með sjálfsvígshugsanir er bent á upplýsingasíma heilsugæslunnar s.1700, netspjallið heilsuvera.is, Hjálparsíma Rauða krossins s.1717, á netspjallið 1717.is og á Píeta símann s.552-2218. Mögrum hryllti við lestur á málavöxtu upp úr réttarhöldunum í síðustu viku þar sem móðirin lýsir því hvernig hún hafi haldið í hönd dóttur sinnar inni á baðherbergi á meðan eiginmaður hennar stakk dótturina í hjartað. Því næst hafi hjónin lagt hana í rúmið, boðið henni áfengi og svefnlyf í þeim tilgangi að lina þjáningar hennar. Kaus ekki þessa aðferð Mancel sagði dóttur sína hafa viljað deyja en viðurkennir að hnífstunga í hjartað hafi reyndar ekki verið sú aðferð sem dóttirin hefði helst kosið. Móðirin reyndi að svipta sig lífi að eigin sögn en það tókst ekki. Hún var handtekin skömmu síðar og var í gæsluvarðhaldi fram í september en hefur gengið laus síðan. Ekki óvanalegt Margrét segir ekki óvenjulegt að hún gangi laus þrátt fyrir hrottafengnar lýsingar á málsatvikum og bendir á að hún sé í farbanni. „Og svona miðað við málavexti í þessu máli og þrátt fyrir að þetta sé mjög óhugnanlegt að þá virðist þetta vera tilvik innan fjölskyldunnar og mér finnst ekkert skýrt að almenningi stafi hætta af þessari konu og þess vegna finnst mér skiljanlegt að á meðan á réttarhöldunum stendur að hún gangi laus og það er ekki óvanalegt.“ Lögreglumaður lýsti því fyrir rétti í dag að Mancel hafi á vettvangi málsins ekki sýnt nein viðbrögð við aðstæðum. Eina skiptið sem hún hafi fellt tár var þegar henni var tjáð að hún væri sjálf ekki í lífshættu. Annar sagði að engin gögn hafi fundist við rannsókn málsins sem bentu til skipulagningar sjálfsvíga fjölskyldunnar. Þá kom fram að sími Mancel bæri þess merki að hafa verið hreinsaður af öllum gögnum daginn áður en síðast sást til fjölskyldunnar utan hótelsins. Áætlað er að aðalmeðferð haldi áfram á fimmtudaginn.
Í þessari grein er fjallað um sjálfsvíg. Fólki með sjálfsvígshugsanir er bent á upplýsingasíma heilsugæslunnar s.1700, netspjallið heilsuvera.is, Hjálparsíma Rauða krossins s.1717, á netspjallið 1717.is og á Píeta símann s.552-2218.
Manndráp á Reykjavík Edition Lögreglumál Reykjavík Fangelsismál Tengdar fréttir Grét af vonbrigðum yfir því að hafa ekki stungið sig í hjartað Ming Ting Mancel, sem sætir ákæru fyrir að hafa myrt dóttur sína í félagi við eiginmann sinn á Edition-hótelinu í fyrra, grét af vonbrigðum þegar henni var tjáð að henni hefði ekki tekist að stinga sig í hjartað og væri því ekki í lífshættu. 16. júní 2026 16:29 Mest lesið Rússar gómaðir með leynilega sæstrengjaklippu Erlent Halda minningarstund fyrir Hönnuh Innlent Braut reglur þegar hann minntist Steins Innlent 25 ár frá 9/11: Ólíkar útgáfur Trumps af deginum Erlent Kanna hvort Kim eigi son Erlent „Ég mun stúta þér og einhver skilar sér ekki í skólann“ Innlent Halla hæstánægð með stólaskiptin Innlent Viðraði hugmyndir um bandarískt Ísland við Bjarna Innlent Tilkynnt um innbrotsþjóf sem var enn inni Innlent Tók konu hálstaki sem söng með á söngleik Erlent Fleiri fréttir Finni nikótínpúða á leikskólalóðinni og stingi upp í sig Segir Áfram Ísland ekki hafa borgað fyrir auglýsingu Þjóðmála Tilkynnt um innbrotsþjóf sem var enn inni Halda minningarstund fyrir Hönnuh Fjárlagafrumvarpið „köld kveðja til launafólks“ „Ég mun stúta þér og einhver skilar sér ekki í skólann“ Hanna Katrín átti fund með sendiherra Kína Viðraði hugmyndir um bandarískt Ísland við Bjarna „Við erum að gera stóra hluti í samgöngum“ Halla hæstánægð með stólaskiptin Próflaus á öfugum vegarhelmingi Uppstokkun í fullri sátt innan Framsóknar Tvíkjálkabraut konuna en sleppur við fangelsi Braut reglur þegar hann minntist Steins Skera rúma fjóra milljarða af vegagerð Hallinn töluverður en mun minni en búist var við Fæddi barn utan við verslun Elko Daði segir eyðsluseggjum að hemja sig Afkoma borgarinnar tólf milljörðum króna verri en reiknað var með Féllu af þingi en fóru ekki langt „Við tökum þessa stöðu mjög alvarlega“ Útför Steins Ármanns Ráðherra boðar aukið eftirlit Samúel hafi sótt hart að fólki að greiða fyrir fram Rektorarnir svara fyrir sig Opna nýja sundlaug í Urriðaholti Hekla Aurora skorin niður í minjagripi Jarðsyngur sinn besta vin Segja ráðherra hafa gengið fram hjá þingnefnd þegar hann sendi ESB bréf Aðstoðar tugi fórnarlamba Samúels á Spáni Sjá meira
Grét af vonbrigðum yfir því að hafa ekki stungið sig í hjartað Ming Ting Mancel, sem sætir ákæru fyrir að hafa myrt dóttur sína í félagi við eiginmann sinn á Edition-hótelinu í fyrra, grét af vonbrigðum þegar henni var tjáð að henni hefði ekki tekist að stinga sig í hjartað og væri því ekki í lífshættu. 16. júní 2026 16:29