Erfiðar aðstæður gætu hjálpað Gunnlaugi Stefán Árni Pálsson skrifar 18. júní 2026 12:17 Gunnlaugur Árna verður í eldlínunni í dag en hann fer af stað 18:20 í fyrsta hring. „Ég finn bara fyrir gríðarlegum áhuga fyrir þessu og mikill áhugi hjá kylfingum á öllu getustigi fyrir þessu. Það er einstakt að þetta sé að gerast. Opna bandaríska er eitt erfiðasta golfmót sem haldið er á hverju ári og nú er leikið á Shinnecock Hills vellinum í New York ríki sem að er einn erfiðasti golfvöllur í heimi. Þannig að það verður mjög athyglisvert að fylgjast með hvernig okkar manni reiðir af við þessar aðstæður,“ segir golfsérfræðingurinn og lýsandinn Jón Júlíus Karlsson í hádegisfréttum Bylgjunnar.
Opna bandaríska risamótið í golfi hefst í dag og er Íslendingurinn Gunnlaugur Árni Sveinsson meðal kylfinga á mótinu. Völlurinn sjálfur er erfiður og má búast við töluverðum vindi í upphafi mótsins. „Þetta verður örugglega með hærra meðalskori sem við höfum séð á þessum fyrsta hring í sögu þessa móts. Ég held að það gæti hjálpað Gulla við að komast í gegnum niðurskurðinn, því að hann þekkir það nú heldur betur að leika í þéttu roki hérna á Íslandi, þannig að þetta eru ekki aðstæður sem ættu að koma honum í opna skjöldu.“ Undirbúningur Gunnlaugs fyrir mótið hefur verið ótrúlegur en hann hefur til að mynda leikið með stórstjörnum á borð við Bryson DeChambeau, Scottie Scheffler og Patrick Reed. Skrekkurinn farinn „Það mun vafalaust hjálpa honum að hann er búinn að spila með besta kylfingi í heimi og öðrum risameistara, Patrick Reed, þannig að svona skrekkurinn ætti að vera kominn úr honum núna fyrir fyrsta hring, þó að það verði alltaf auðvitað fiðringur á fyrsta degi. En hann er búinn að fara í gegnum svona óþægindin sem fylgja því að vera allt í einu með athyglina mikið á sér. En ég er mjög bjartsýnn fyrir hans hönd og hann er búinn að undirbúa sig mjög vel fyrir mótið, búinn að vera með sínu teymi að liggja yfir leikskipulaginu. En svo auðvitað kemur eitthvað rok og þá breytast kannski aðeins aðstæður en ég hef mikla trú á því að hann muni standa sig vel.“
Golf Opna bandaríska Mest lesið Sú belgíska lék ljótan leik en Víðir valdi Putellas og Rodri Fótbolti Sjáðu mörkin og rauðu spjöldin: Skoraði sitjandi og neyðarlegt sjálfsmark Enski boltinn Hamilton fremstur í fyrsta sinn í rúm þrjú ár Formúla 1 „Á stuttum tíma eru mínir nánustu vinir farnir“ Íslenski boltinn Missti af leik með KR vegna herskyldu Körfubolti „Enski boltinn er annar heimur“ Enski boltinn Grealish í agabanni hjá Everton Enski boltinn Emil Atlason á leið í Fram Íslenski boltinn „Magnús er þjálfari Aftureldingar og verður það áfram“ Íslenski boltinn „Mér þætti það skrýtið ef að allir kölluðu mig Sir“ Fótbolti Fleiri fréttir Sjáðu mörkin og rauðu spjöldin: Skoraði sitjandi og neyðarlegt sjálfsmark Hamilton fremstur í fyrsta sinn í rúm þrjú ár Tvær tvennur þegar Börsungar tættu gestina í sig Bilun hjá Suzuki skipti sköpum Moreira stal senunni í slagnum um Mílanó og hélt Alberti á toppnum Sú belgíska lék ljótan leik en Víðir valdi Putellas og Rodri Íslendingarnir með sextíu prósent markanna Andreulegt upplegg í sigri Anderlecht Yfirburðir Hauka sem tapa ekki leik Dramatík í stórleiknum í Þýskalandi Tottenham án vandræða upp í efri hlutann Njarðvík sagði upp samningi við Smit Félag Örnu og Fanneyjar gat ekki borgað laun „Sóknarleikurinn vel smurður“ Raunamæddur Carrick neitaði að kenna Martínez um Freyr að eignast markakóng eftir enn einn sigurinn Brentford bjargaði United frá fallsæti Uppgjörið: Valur - Afturelding 40-37 | Valur gerði Aftureldingu grikk að Hlíðarenda Brighton í titilbaráttu eftir frábæran sigur á City Sveinbjörn Másson sæmdur silfurmerki KSÍ Góður sigur stráka Sigga Ragga í lokaleiknum Gylfi tekur við Víkingi Fimmti sigur Eyjakvenna í röð Sjáðu mörkin: Varnarmenn United eins og keilur og rautt spjald Martínez Chelsea 2-0 Man. Utd | Negldi Martínez síðasta naglann í kistu Carrick? Carragher biðst afsökunar: „Klaufalegt og rangt“ Emil skrifar undir hjá Fram Ótrúlegar troðslur: „Með einari!“ Grótta í sambandi við Davíð Smára Hent úr húsi: „Held hann hafi ekki reynt að sparka í typpið á mér“ Sjá meira