Áfram gakk Þorbjörg S. Gunnlaugsdóttir skrifar 19. júní 2026 07:32 Kvenréttindadagurinn 19. júní er einn merkasti dagur íslenskrar lýðræðissögu. Þennan dag árið 1915 fengu íslenskar konur kosningarétt og kjörgengi til Alþingis. Í dag þykir kosningarétturinn sjálfsagður og það er erfitt að ímynda sér samfélag þar sem helmingur þjóðarinnar hefur ekki rödd við kjörborðið. Það eru samt ekki nema 111 ár síðan konur, 40 og ára og eldri, fengu slíkan rétt. Og sagan hefur kennt okkur að réttindi sem einni kynslóð finnst sjálfsögð getur næsta kynslóð misst ef ekki er staðið vörð um þau. Dagurinn í dag er ekki bara hátíðisdagur. Hann er líka áminning um að halda áfram og láta ekki staðar numið. Sem ráðherra jafnréttismála hef ég lagt áherslu á eitt brýnasta jafnréttismál samtímans, baráttuna gegn kynbundnu ofbeldi. Í mínu ráðuneyti var unnin fyrsta heildstæða landsáætlunin gegn kynbundnu ofbeldi gagnvart konum fyrir árin 2026 – 2030. Hún markar þáttaskil í nálgun stjórnvalda á kynbundið ofbeldi. Þar er ekki látið nægja að lýsa góðum áformum. Áætlunin inniheldur 25 tímasettar aðgerðir til fjögurra ára. Þær snúa meðal annars að samræmdu verklagi, aukinni fræðslu til fagstétta, betri gagnaöflun og auknum rannsóknum á kynbundnu ofbeldi. Við höfum líka stigið mikilvæg skref í löggjöfinni. Lög gegn eltihrellum hafa verið samþykkt og þeir sem sæta nálgunarbanni munu nú ganga með ökklabönd. Í sumar verða kynnt áform um breytingar á lögum um vændiskaup. Þar verður lágmarksrefsing fyrir vændiskaup þyngd og ekki hægt að ljúka slíkum brotum með því að greiða sekt. Þá verður einnig skoðað hvort breyta þurfi lögum um meðferð sakamála til að koma í veg fyrir að vændiskaupendur njóti nafnleyndar þegar mál þeirra fara fyrir dómstóla. Við höfum einnig styrkt Stígamót með samstarfssamningi um Sjúktspjall, sem er hluti af verkefninu Sjúkást. Þetta er nafnlaust netspjall þar sem ungmenni á aldrinum 13 til 20 ára geta rætt við ráðgjafa Stígamóta um kynferðisofbeldi og ofbeldi í nánum samböndum. Í stefnuyfirlýsingu ríkisstjórnarinnar er talað skýrt um að taka eigi fast á kynbundnu ofbeldi og mansali. Það er því fagnaðarefni að í dag undirrita ég ásamt félags-og húsnæðismálaráðherra fyrsta langtímasamning stjórnvalda við Bjarkarhlíð um þjónustu við þolendur mansals. Mansal birtist með ólíkum hætti, en konur eru oftar en ekki þolendur mansals í gegnum vændi. Þar mætast kynbundið ofbeldi, valdamisræmi, og skipulögð brotastarfsemi. Slíkt eigum við ekki að sætta okkur við í íslensku samfélagi. 19. júní er hátíðisdagur í íslenskri kvennasögu. En við heiðrum ekki baráttu fyrri kynslóða með því einu að minnast hennar og fagna henni. Við heiðrum hana með því að halda áfram. Réttindi kvenna eru ekki sjálfgefin. Öryggi kvenna er ekki aukaatriði. Og samfélagið allt verður að mæta kynbundnu ofbeldi af fullri alvöru. Ég óska okkur öllum til hamingju með 19. júní. Baráttan hefur skilað okkur langt en verkefnið er ekki búið. Áfram gakk. Höfundur er dómsmálaráðherra Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Jafnréttismál Ríkisstjórn Kristrúnar Frostadóttur Þorbjörg S. Gunnlaugsdóttir Mest lesið Eftir Kveiksþátt Anna Björg Jónsdóttir,Hjördís Halldóra Sigurðardóttir Skoðun Ríkið vill minnst tvö og hálft ár milli barnanna þinna Karítas Ólafsdóttir Skoðun Flokkur fólksins tekur í handbremsuna Eyjólfur Ármannsson Skoðun Cornell og klefamenning Olga Björt Þórðardóttir Skoðun Menning er ekki bisnessplan Birgir Þórarinsson Skoðun Þorum við að banna Airbnb eða erum við líka siðferðislegir hugleysingjar? Helen Ólafsdóttir Skoðun Þorum við að tala um sorgina? Stefán Már Gunnlaugsson Skoðun Bakslag fyrir barnafjölskyldur í Hafnarfirði Valdimar Víðisson Skoðun Réttindi eiga að vera raunveruleg Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir Skoðun Sýnum viljann í verki Aðalbjörg Stefanía Helgadóttir Skoðun Skoðun Skoðun Kostnaðurinn við nei Sigvaldi Einarsson skrifar Skoðun Hver stal kökunni úr krúsinni? Gunnar Valur Sveinsson skrifar Skoðun Stríð Rússlands gegn utanríkisviðskiptum Úkraínu er stríð gegn fæðuöryggi heimsins Clara Ganslandt skrifar Skoðun Sjónvarpið 60 ára: Þögnin segir líka sögu Gunnar Salvarsson skrifar Skoðun Takk Hörður Jóhann Páll Jóhannsson skrifar Skoðun Firrur um aflareglu fyrir þorsk Ásgeir Daníelsson skrifar Skoðun EES málið, ESA og fullveldi Íslands og tími komin til varna Eggert Guðmundsson skrifar Skoðun Sýnum viljann í verki Aðalbjörg Stefanía Helgadóttir skrifar Skoðun Bókun 35 – þegar molnar undan stjórnkerfinu Aðalsteinn Júlíus Magnússon skrifar Skoðun Pínu sársauki á unga fólkið? Helgi Bárðarson skrifar Skoðun Austurland margborgar sig Ragnar Sigurðsson skrifar Skoðun Þorum við að tala um sorgina? Stefán Már Gunnlaugsson skrifar Skoðun Verklokafælni stjórnvalda Kjartan Björgvinsson skrifar Skoðun Við getum gert betur Hulda Brá Magnadóttir skrifar Skoðun Hverjum er frelsið ætlað? Guðný S. Bjarnadóttir skrifar Skoðun Bakslag fyrir barnafjölskyldur í Hafnarfirði Valdimar Víðisson skrifar Skoðun Þorum við að banna Airbnb eða erum við líka siðferðislegir hugleysingjar? Helen Ólafsdóttir skrifar Skoðun Skattfé er einnota Erna Bjarnadóttir skrifar Skoðun Forvarnadagurinn er í dag María Heimisdóttir skrifar Skoðun Af hverju má ég ekki eiga Chihuahua af því að ég bý í húsnæði fyrir fatlað fólk? Ingibjörg Dóra Scheving Bjarnadóttir skrifar Skoðun Réttindi eiga að vera raunveruleg Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir skrifar Skoðun Flokkur fólksins tekur í handbremsuna Eyjólfur Ármannsson skrifar Skoðun Áramótaheit ríkisstjórnarinnar Helgi Brynjarsson skrifar Skoðun Menning er ekki bisnessplan Birgir Þórarinsson skrifar Skoðun Þegar allt verður þjónusta Valerio Gargiulo skrifar Skoðun Ríkið vill minnst tvö og hálft ár milli barnanna þinna Karítas Ólafsdóttir skrifar Skoðun Hvenær eru kjósendur blekktir? Gunnar Ármannsson skrifar Skoðun Cornell og klefamenning Olga Björt Þórðardóttir skrifar Skoðun Eftir Kveiksþátt Anna Björg Jónsdóttir,Hjördís Halldóra Sigurðardóttir skrifar Skoðun Almannatryggingar í 90 ár Alma D. Möller skrifar Sjá meira
Skoðun Stríð Rússlands gegn utanríkisviðskiptum Úkraínu er stríð gegn fæðuöryggi heimsins Clara Ganslandt skrifar
Skoðun Þorum við að banna Airbnb eða erum við líka siðferðislegir hugleysingjar? Helen Ólafsdóttir skrifar
Skoðun Af hverju má ég ekki eiga Chihuahua af því að ég bý í húsnæði fyrir fatlað fólk? Ingibjörg Dóra Scheving Bjarnadóttir skrifar