Witkoff stefnir til Sviss Agnar Már Másson skrifar 20. júní 2026 09:31 Kushner (t.v.) og Witkoff (t.h.) fara fyrir hönd Bandaríkjaforseta til Sviss. AP Bandarískir og íranskir erindrekar eru sagðir á leið til Sviss í dag í von um að hefja viðræður um framtíð kjarnorkuvopna í Íran. Ekki liggur fyrir hvort viðræður hefjist í dag og þær virðast háðar því að átökum linni í Líbanon, en þar eru ellefu manns sagðir látnir eftir árásir Ísraels síðasta sólarhringinn.
Steve Witkoff, sérstakur erindreki Hvíta hússins, er sagður hafa haldið til Sviss í nótt til þess að eiga í viðræðum við Íran um hugsanlegan samning vegna kjarnorkuvopna. Þetta hefur bandaríski miðillinn Axios eftir heimildarmanni í Hvíta húsinu. Auk þess sé Jared Kushner, sérstakur sendifulltrúi og tengdasonur Bandaríkjaforseta, þegar kominn til Sviss. Viðræðurnar áttu að hefjast í gær, föstudag, en þeim var seinkað þar sem átök héldu áfram milli Ísraels og Hezbollah í Suður-Líbanon. J.D. Vance, varaforseti Bandaríkjanna, hætti í gær við för sína til Sviss til friðarviðræðna við Írani eftir að fréttir bárust af harðnandi átökum í Líbanon. Ekki liggur fyrir hvort ný tímasetning sé komin á fyrirhugaðar viðræður. Veikur hlekkur í viðkvæmu vopnahléi Ísraelsk stjórnvöld og Hezbollah-samtökin í Líbanon náðu í gær samkomulagi um vopnahlé en átök í Líbanon hafa reynst veikur hlekkur í friðarviðræðum milli Bandaríkjanna og Íran Sextíu daga vopnahlé milli Bandaríkjanna og Írans gerir sömuleiðis ráð fyrir því að bardögum linni í Líbanon en samkvæmt ríkismiðli Líbanon hafa hið minnsta ellefu manns fallið í árásum af hálfu Ísraelshers umhverfis Nabatieh í Líbanon síðasta sólarhringinn. Aðgerðir Ísraelshers í sunnanverðu Líbanon hafa staðið yfir síðustu mánuði með það að markmiði að gera út um Hezbollah. Ísraelsher segist hafa ráðist á tugi skotmarka sem herinn sagði tengjast Hezbollah í kjölfar þess að vígahópurinn hafi skotið ríflega fimmtíu eldflaugum að ísraelskum hermönnum í Líbanon. Abbas Araghchi, utanríkisráðherra Írans, stefnir einnig til Sviss í dag, að sögn heimilda Axios, þar sem enn fremur er tekið fram að íranski ráðherrann hafi sagt bandarískum starfsbræðrum sínum að vopnahlé í Líbanon réði úrslitum um hvort viðræður gætu farið fram.
Líbanon Ísrael Bandaríkin Íran Árásir Bandaríkjanna og Ísraels á Íran Mest lesið Herlið á leiðinni og Íslendingar hafi varann á Erlent „Þetta er algjörlega óviðunandi“ Innlent Telur allt ógirt land tekið eignarnámi með dómi Innlent Hélt hún myndi deyja í útskriftarferð til Portúgal Innlent Sláandi hversu margir telji ofbeldi hluta af kynlífi Innlent „Hvaða skaða hef ég valdið, Elliði?“ Innlent „Mjög óheillavænleg þróun“ Innlent Fá mál á þingi: „Fórnarlömb velgengni“ fá kaldar kveðjur frá Diljá Innlent „Nei, Pútín er harðsvíraður morðingi“ Erlent Töpuðu bardaganum, liðþjálfanum og prestinum Innlent Fleiri fréttir „Nei, Pútín er harðsvíraður morðingi“ Björguðu særðum hermanni með dróna Fulltrúi Trump lofaði „mannvininn“ Pútín Sænskur glæpaforingi ákærður fyrir þrjú morð Vill losna við blaðamenn og fá sundlaug í staðinn Þingkonan missti báða fætur eftir árásina Herlið á leiðinni og Íslendingar hafi varann á Þungmálmar í drykkjarvatni á Svalbarða vegna þiðnunar Meintir njósnarar handteknir í Danmörku Selenskí og bandamenn hitta fulltrúa Trump í Osló Heita því að refsa Norður-Kóreu fyrir ögranir Braut ekki af sér þegar hann skaut barn til bana Verðlag og óvissa leiða til óeirða í Evrópu Þróa þjónustustöð fyrir tunglið Íbúar Alberta höfnuðu áætlunum um sjálfstæði Orðrómar valda ugg og ótta í Mílanó: „Það eru allir frekar hræddir“ Christiane Amanpour mun kveðja CNN Fara fram á útgöngubann í nokkrum frönskum borgum Sakaðir um að svelta 190 börn til dauða Hótar að auka viðbúnað á landamærunum Miðflokkurinn fær umboðið Borgir geti sett á útivistarbann: „Nemandi hefur misst höndina“ Prestur lést þegar róðukross féll á hann Senda far til að kanna uppruna Fóbosar Ók viljandi á ástralska þingkonu Vill funda með Trump og Xi um örlög Úkraínu Neyðarlending eftir sprengjuhótun Neitaði að samþykkja afsögn vegna mótmælanna Hvetur til stillingar og boðar aðgerðir Selenskí vilji ekki binda enda á stríðið Sjá meira