Viðskipti innlent

At­vinnu­leysi 5,6 pró­sent í maí

Atli Ísleifsson skrifar
Á vormánuðum er algengt að ungu fólki á vinnumarkaði fjölgi þegar það hefur leit að sumarstörfum.
Á vormánuðum er algengt að ungu fólki á vinnumarkaði fjölgi þegar það hefur leit að sumarstörfum. Vísir/Vilhelm

Fjöldi atvinnulausra á aldrinum 16 til 74 ára var 13.100 í maí 2026, samkvæmt árstíðaleiðréttum niðurstöðum vinnumarkaðsrannsóknar Hagstofunnar.

Í tilkynningu frá Hagstofunni segir að árstíðaleiðrétt hlutfall atvinnulausra hafi verið 5,6 prósent, hlutfall starfandi 76,5 prósent og atvinnuþátttaka 81,1 prósent. 

„Á heildina litið urðu nánast engar breytingar á niðurstöðunum milli mánaða, þó hlutfall starfandi og atvinnuþáttaka hækkaði lítillega.

Samkvæmt mælingu vinnumarkaðsrannsóknar Hagstofunnar var atvinnuleysi 8,3% í maí 2026. Fjöldi atvinnulausra var um 19.800. Hlutfall starfandi var 74,8%, sem samsvarar tæplega 219.300 einstaklingum, og atvinnuþátttaka var 81,6% eða um 239.100 manns á vinnumarkaði. Samanborið við sama mánuð 2025 jókst atvinnuleysi um 3,8 prósentustig, hlutfall starfandi lækkaði um 3,8 prósentustig og atvinnuþátttaka minnkaði um 0,7 prósentustig.

Á vormánuðum er algengt að ungu fólki á vinnumarkaði fjölgi þegar það hefur leit að sumarstörfum. Það má sjá í tölum um maí þegar atvinnuleysi fólks á aldrinum 16 – 24 ára mældist 23,8% samanborið við 5,1% hjá 25 ára og eldri,“ segir í tilkynningunni.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×