Segir bróðurdóttur sína hafa verið greindarskerta Áróra L Davíðsdóttir skrifar 24. júní 2026 15:06 Ming Ting við komu í Héraðsdóm Reykjavíkur. Vísir/Vilhelm Erica Mancel, systir Emeric Mancel, manns sem fannst látinn á hótelherbergi á Edition-hótelinu í fyrra, bar vitni fyrir Héraðsdómi Reykjavíkur í dag. Erica er mágkona Ming Ting Mancel, sem er ákærð fyrir að bana dóttur sinni í samráði við Emeric, eiginmann sinn, á hótelinu. Erica segir bróður sinn hafa verið afar stjórnsaman og að eiginkona hans og dóttir hafi verið undirgefnar honum. Hún segir bróðurdóttur sína hafa verið greindarskerta og hún hefði átt í erfiðleikum með að búa ein. Réttarhöldin í Edition-málinu héldu áfram í dag, þar sem hin 56 ára Ming Ting Mancel hefur verið ákærð fyrir að myrða 29 ára dóttur sína, Catherine, í samráði við eiginmann sinn, Emeric Mancel heitinn, á lúxushótelinu Reykjavik Edition í júní 2025. Samkvæmt ákærunni eiga hjónin að hafa haldið dóttur sinni, Catherine, fastri og brugðið snöru um háls hennar til að þrengja að öndunarvegi. Aftur á móti hefur komið fram í málflutningi Ming Ting að fjölskyldan öll hafi ætlað að svipta sig lífi á hótelherberginu þessa nótt, aðfaranótt 14. júní. Ming Ting sagði að dóttir sín hefði ekki streist á móti en viðurkenndi engu að síður að dóttir hennar hefði viljað fara á annan hátt. Réttarlæknir sagði aftur á móti að klóráverkar á hálsi kynnu að benda til þess að hún hafi streist á móti. Í þessari frétt er fjallað um sjálfsvíg og sjálfsskaða. Fólki sem glímir við sjálfsvígshugsanir eða sjálfsskaðahegðun er bent á Hjálparsíma Rauða krossins 1717, netspjallið á 1717.is og Píeta símann 552-2218 en þjónusta þeirra er aðgengileg allan sólarhringinn. Ef þú hefur orðið fyrir hótunum eða ofbeldi líkt og fjallað er um í fréttinni er þér bent á að hafa samband við lögreglu í síma 112 eða í netspjalli á 112.is. Erica Mancel, mágkona Ming Ting og systir Emeric, bar vitni fyrir dómi í gegnum fjarfundarbúnað í dag. Samskiptin lítil vegna fjölskylduerja Hún segist hafa átt í brotakenndu sambandi við bróður sinn og fjölskyldu hans. Meira hafi þó orðið úr sambandi systkinanna eftir andlát móður þeirra árið 2020 en fram að því hafi samskiptin verið lítil sem engin. Til að mynda hafi henni ekki verið boðið í hjónavígslu bróður síns og Ming Ting. Aðspurð hvort að hún hafi verið náin Catherine, dóttur þeirra hjóna, segist hún ekki hafa verið það, enda hafi samband stórfjölskyldunnar verið slitrótt vegna fjölskylduerja og erfðadeilna. Segir dótturina hafa verið greindarskerta Systir Emeric segir Catherine, dóttur þeirra hjóna, hafa verið „lítillega greindarskert sem stafaði af vansköpun á heila“. Foreldrar hennar hefðu verndað dóttur sína mjög en einnig hvatt hana til að stunda nám. Aðspurð hvort Catherine hafi verið háð foreldrum sínum að hennar mati segir hún að það hefði ábyggilega reynst Catherine afar erfitt að búa ein. Hún segir dótturina hafa átt í nánu sambandi við foreldra sína en þau hafi alltaf búið saman. Líktust fjölskyldu frá sjöunda áratugnum Spurð hvort hún myndi lýsa fjölskyldunni sem hefðbundinni fjölskyldu segir hún að sem útivinnandi nútímakonu finnist henni fjölskyldan frekar hafa líkst hefðbundinni fjölskyldu sjöunda áratugarins. Emeric hafi tekið allar ákvarðanir fjölskyldunnar og bæði Ming Ting og Catherine hafi verið undirgefnar honum. Ming Ting hafi verið að einhverju leyti fjárhagslega háð eiginmanni sínum og hann hafi sagt systur sinni sjálfur að Ming Ting tæki engar ákvarðanir. Catherine hafi hins vegar verið í vinnu og haft tekjur, en systir Emerics segist þó nokkuð viss um að hún hafi ekki borgað leigu þar sem þau fjölskyldan bjuggu. Telur Emeric hafa skipulagt ferðina til Íslands Mágkona hinnar ákærðu telur líklegt að Emeric bróðir sinn hafi skipulagt „allt sem gerðist á Íslandi“ í Dyflinni, þar sem fjölskyldan var búsett, enda hafi hann verið vanur að skipuleggja allt fyrir fjölskylduna. „Ég er sannfærð um það að Emeric var búinn að skipuleggja þetta áður en þau lögðu af stað í ferðalagið til Íslands,“ segir Erica. Hún segir bróður sinn hafa verið þunglyndan, bæði vegna erfðadeilna innan fjölskyldunnar og hann hafi verið meðvitaður um að hann væri dauðvona vegna nýrnasjúkdóms sem hann glímdi við. Emeric hafi ekki viljað skilja eiginkonu og dóttur sínar einar eftir. Dótturina, Catherine, með greindarskerðingu, og eiginkonuna, Ming Ting, sem hafi aldrei hugað að fjármálum fjölskyldunnar og þyrfti að eiga við erfðadeilu fjölskyldunnar. Emeric hafi sent systur sinni og lögmanni tölvupóst þann 10. júní. Hann hafi sagt sér að hann væri að fara í frí en hafi ekki gefið upp áfangastaðinn Ísland. Auk þess hafi hann sent systur sinni erfðaskrá sína. Auk þess hafi hann skrifað í póstinum: „Við erum farin, þú sérð okkur ekki aftur,“ og lokið honum á orðunum „vertu sæl.“ Hún segir póstinn hafa verið sönnun fyrir því að þau öll hafi ætlað að deyja á Íslandi. Aðalmeðferð málsins heldur áfram á mánudag. Manndráp á Reykjavík Edition Dómsmál Reykjavík Mest lesið Ari „eltihrellir“ eftirlýstur og handtekinn á Kýpur Innlent Páll biður einhvern að forða því að Ísland verði að athlægi Innlent „Ef læknir myndi skjóta sjúkling þá mætti ekki ákæra hann“ Innlent Landlæknir hafi í raun sakfellt Skúla Tómas Innlent Óttast um fleiri kindur eftir að tík týndist Innlent „Stefnum að því að koma meira en tvíefld til baka“ Innlent Alltaf jafn óþægilegt að heyra af nálægri árás Innlent Gluggar þaktir klósettpappír og túrblóð í lakinu: „Aldrei séð annað eins“ Innlent Nýja brúin átti að bæta flæðið: Mislæga lausnin vék fyrir ljósum Innlent Þungt högg í magann með tvíburastelpur á vökudeild Innlent Fleiri fréttir Lögregla og björgunarsveitir leita að manneskju á Akureyri „Þarf að hafa afleiðingar ef fólki er lógað af heilbrigðisstofnun“ Mikilvægt að draga lærdóm af gerð gatnamótanna „Vald flugstjórans er náttúrulega alveg klárt“ Segir málið verða að hafa afleiðingar fyrir Skúla Tómas Vestmannaeyjabær áfrýjar til Landsréttar Segir Dag plata með úreltri skýrslu Leiðrétting fréttar: Það sem Þorgerður sagði í raun Íslenskt sumarveður verðmæt auðlind Vara við hættulegum aðstæðum við Sólheimajökul Ari „eltihrellir“ eftirlýstur og handtekinn á Kýpur Hálfs árs hrakfallasögu Herjólfs virðist lokið „Ef læknir myndi skjóta sjúkling þá mætti ekki ákæra hann“ Undirbúa sig fyrir töluvert fleiri gesti á Einni með öllu Bakkakotsvelli lokað vegna rigninga: Grjótharðir golfarar láta í minnipokann Fimmtán ár frá hryðjuverkunum í Útey og Ósló Landlæknir hafi í raun sakfellt Skúla Tómas Óttast um fleiri kindur eftir að tík týndist Úrskurður sagður skapa hættulegt fordæmi og fimmtán ár frá atburðunum í Útey Hamingjuóskum rignir yfir Skúla Tómas: „Vanhugsað strax frá upphafi“ Opna senn fyrir atkvæðagreiðslu utan kjörfundar Bandero innan lögsögunnar á ný Páll biður einhvern að forða því að Ísland verði að athlægi Aukið aðgengi að áfengi auki neyslu Regnboginn verði málaður aftur en með breyttu sniði „Verið að herja á fólk sem er búið að missa maka“ „Mikilvægast að þetta verði ekki eins og einhver hótelsundlaug á Tenerife“ Bandero stefnir í átt að Íslandi á ný Heimurinn aftur orðinn flóknari en NATO muni aðlagast Mikið fylgistreymi milli Miðflokksins og Sjálfstæðisflokksins Sjá meira
Í þessari frétt er fjallað um sjálfsvíg og sjálfsskaða. Fólki sem glímir við sjálfsvígshugsanir eða sjálfsskaðahegðun er bent á Hjálparsíma Rauða krossins 1717, netspjallið á 1717.is og Píeta símann 552-2218 en þjónusta þeirra er aðgengileg allan sólarhringinn. Ef þú hefur orðið fyrir hótunum eða ofbeldi líkt og fjallað er um í fréttinni er þér bent á að hafa samband við lögreglu í síma 112 eða í netspjalli á 112.is.
Manndráp á Reykjavík Edition Dómsmál Reykjavík Mest lesið Ari „eltihrellir“ eftirlýstur og handtekinn á Kýpur Innlent Páll biður einhvern að forða því að Ísland verði að athlægi Innlent „Ef læknir myndi skjóta sjúkling þá mætti ekki ákæra hann“ Innlent Landlæknir hafi í raun sakfellt Skúla Tómas Innlent Óttast um fleiri kindur eftir að tík týndist Innlent „Stefnum að því að koma meira en tvíefld til baka“ Innlent Alltaf jafn óþægilegt að heyra af nálægri árás Innlent Gluggar þaktir klósettpappír og túrblóð í lakinu: „Aldrei séð annað eins“ Innlent Nýja brúin átti að bæta flæðið: Mislæga lausnin vék fyrir ljósum Innlent Þungt högg í magann með tvíburastelpur á vökudeild Innlent Fleiri fréttir Lögregla og björgunarsveitir leita að manneskju á Akureyri „Þarf að hafa afleiðingar ef fólki er lógað af heilbrigðisstofnun“ Mikilvægt að draga lærdóm af gerð gatnamótanna „Vald flugstjórans er náttúrulega alveg klárt“ Segir málið verða að hafa afleiðingar fyrir Skúla Tómas Vestmannaeyjabær áfrýjar til Landsréttar Segir Dag plata með úreltri skýrslu Leiðrétting fréttar: Það sem Þorgerður sagði í raun Íslenskt sumarveður verðmæt auðlind Vara við hættulegum aðstæðum við Sólheimajökul Ari „eltihrellir“ eftirlýstur og handtekinn á Kýpur Hálfs árs hrakfallasögu Herjólfs virðist lokið „Ef læknir myndi skjóta sjúkling þá mætti ekki ákæra hann“ Undirbúa sig fyrir töluvert fleiri gesti á Einni með öllu Bakkakotsvelli lokað vegna rigninga: Grjótharðir golfarar láta í minnipokann Fimmtán ár frá hryðjuverkunum í Útey og Ósló Landlæknir hafi í raun sakfellt Skúla Tómas Óttast um fleiri kindur eftir að tík týndist Úrskurður sagður skapa hættulegt fordæmi og fimmtán ár frá atburðunum í Útey Hamingjuóskum rignir yfir Skúla Tómas: „Vanhugsað strax frá upphafi“ Opna senn fyrir atkvæðagreiðslu utan kjörfundar Bandero innan lögsögunnar á ný Páll biður einhvern að forða því að Ísland verði að athlægi Aukið aðgengi að áfengi auki neyslu Regnboginn verði málaður aftur en með breyttu sniði „Verið að herja á fólk sem er búið að missa maka“ „Mikilvægast að þetta verði ekki eins og einhver hótelsundlaug á Tenerife“ Bandero stefnir í átt að Íslandi á ný Heimurinn aftur orðinn flóknari en NATO muni aðlagast Mikið fylgistreymi milli Miðflokksins og Sjálfstæðisflokksins Sjá meira