LaMelo Ball til Úlfanna Ingvi Þór Sæmundsson skrifar 25. júní 2026 16:01 LaMelo Ball kemur úr mikilli körfuboltafjölskyldu. getty/Rich Storry Leikstjórnandinn LaMelo Ball er á leið til Minnesota Timberwolves. Hann kemur til liðsins frá Charlotte Hornets sem hann hefur leikið með allan sinn feril í NBA-deildinni í körfubolta.
Minnesota fær Ball og Josh Green í staðinn fyrir Naz Reid og fjóra valrétti. Þá skipta liðin einnig á valréttum í nýliðavalinu 2028, 2029 og 2030. Toronto Raptors og Portland Trail Blazers höfðu einnig áhuga á Ball sem átti þrjú ár eftir af samningi sínum við Charlotte. Eftir erfið ár voru Býflugurnar hársbreidd frá því að komast í úrslitakeppnina á síðasta tímabili. Liðið vann 44 leiki eftir að hafa aðeins unnið nítján leiki tímabilið á undan. Charlotte tapaði fyrir Orlando Magic í umspilinu um sæti í úrslitakeppninni. Á síðasta tímabili var Ball með 20,1 stig, 4,8 fráköst og 7,1 stoðsendingu að meðaltali í leik. Hann hefur einu sinni leikið í Stjörnuleik NBA og var valinn nýliði ársins 2021. Áður en Charlotte valdi hann með þriðja valrétti í nýliðavalinu 2020 lék Ball í Ástralíu. Forráðamenn Minnesota vonast til að Ball létti undir með Anthony Edwards og hjálpi liðinu að taka næsta skref. Úlfarnir féllu úr leik í undanúrslitum Vesturdeildarinnar á síðasta tímabili en komust í úrslit hennar tímabilin tvö þar á undan. Á ferli sínum í NBA er Ball með 20,8 stig, 5,7 fráköst og 7,3 stoðsendingar að meðaltali í leik.
NBA Mest lesið Ögrandi herferð Sweeney gagnrýnd: „Get ekki lýst því hvað ég er reið“ Sport Hafþór lét Haaland líta út eins og smástrák Enski boltinn Coutinho og Neymar sameinaðir á ný Fótbolti VAR dómararnir í bann eftir mistök helgarinnar Enski boltinn „Get ekki beðið eftir leiknum í Frostaskjóli“ Íslenski boltinn Leedsarar léku sér að Newcastle Enski boltinn Missti eins árs gamlan son sinn Handbolti Uppgjörið: Víkingur - Keflavík 4-1 | Annað skref í átt að titlinum Íslenski boltinn Losa Leonard eftir refsinguna Körfubolti Baldvin setti metið á EM meiddur og er hættur við HM Sport Fleiri fréttir Losa Leonard eftir refsinguna Bandaríkin unnu fimmta heimsmeistaratitilinn í röð Bandaríkin og Frakkland mætast í úrslitum heimsmeistaramótsins Pargo verður áfram hjá Grindavík Þrjár Evrópuþjóðir í undanúrslitum Stærsta körfuboltakona heims gnæfir yfir mótherja sína Lakers á undan Bulls að reisa styttu af Phil Jackson Falko farinn frá ÍR Hætti er liðið sótti rússneskan leikmann Óíþróttamannslega villan heyrir sögunni til og KKÍ auglýsir eftir nöfnum á nýju villurnar Berglind Katla fer í skóla í New York Löng bönn, risa sektir og bannaðir frá nýliðavalinu Sindri fær sænskan landsliðsmann Ísland - Tyrkland 73-110 | Tyrkirnir reyndust of stór biti fyrir strákana okkar Uppgjörið: Serbía - Ísland 102-73 | Mættu með læti en máttu sín lítils undir lokin „Ég vona að ég þurfi ekki að dekka hann“ „Ef enginn í NBA-deildinni getur stöðvað hann þá efast ég um að við vefjumst fyrir honum“ Jón Arnór byrjar að þjálfa Grindavík mokar inn verðlaunum Stólarnir gáfust upp á Adaway og semja við Murkey Svali hættur sem formaður en stutt í val á arftaka „Gripur sem safnarar bíða alla ævi eftir“ Reese rífur í sig metin Haukar fá risavaxinn liðsauka Fyrrverandi NBA leikmanni hent út úr húsi á kvennaleik Tindastóll tekur slaginn aftur í Evrópukeppni Kynlífsleikföngum aftur kastað inn á völlinn ÍR semur við sænsk-bandarískan bakvörð Strákarnir réðu ekki við Finnana Ísland tapaði fyrir Portúgal Sjá meira