Heilbrigðisráðherra slær eigið heimsmet Vilhjálmur Hjálmarsson skrifar 25. júní 2026 15:02 ADHD samtökin hafa um árabil rætt reglulega við sitjandi heilbrigðisráðherra hverju sinni um ólíðandi stöðu biðlista barna og fullorðinna eftir ADHD greiningu. Oft hefur vonarneisti vaknað, en reyndin ávallt að biðlistar lengjast út í eitt. Biðlistar sem fyrir löngu hafa slegið legið heimsmet svo eftir er tekið á alþjóðavísu. En ekki hér heima, a.m.k. ekki innanhúss hjá HRN. Málið var tekið til skoðunar af umboðsmanni Alþingis (mál nr. F147/2024), sem aftur fékk eftirfarandi svar: „Í svari ráðuneytisins kom m.a. fram að þetta hefði verið tekið til sérstakrar skoðunar í framhaldi af fyrirspurn umboðsmanns. Skipuð hafi verið nefnd til að fjalla um þjónustu og stuðning við fólk með ADHD sem eigi að skila grænbók um málaflokkinn til ráðherra. Rýna eigi þjónustuferlið, skipulag og meðferð á vegum teymisins auk þess sem finna þurfi leiðir til umbóta til að tryggja viðunandi bið eftir þjónustu. Í ljósi yfirstandandi aðgerða taldi umboðsmaður ekki ástæðu til að halda athugun sinni áfram.“ Þá og síðar fullyrðir HRN að ráðuneytið ætli að bæta biðtíma með umbótum sem byggja m.a. á niðurstöðu grænbókar um stöðu ADHD mála (sem birt var snemma árs 2025). Umboðsmaður tók orð þeirra trúanleg og lét málið niður falla. Með öðrum orðum hefur þó ekkert breyst, annað en að biðlistar eftir greiningu hjá börnum og fullorðnum halda áfram að lengjast út í eitt. Staðreyndirnar tala sínu máli: Yfir 2.600 börn bíða nú eftir greiningu hjá GMB – þreföldun frá 2022 Hátt í 3.000 fullorðnir eru á biðlista hjá ADHD teymi HH Börn bíða í allt að 2–4 ár eftir greiningu Eldri en 30m ára horfa fram á allt að 10 ára bið eða meira – áður en nokkuð gerist Í ofanálag hefur í flestum tilvikum forskimun farið fram og allar líkur á að jákvæð greining um ADHD og/eða annað verði niðurstaðan. Samkvæmt nýlegri umfjöllun í fréttabréfi landlæknis, sem og á heimasíðu HH, má að hluta rekja sífellt versnandi stöðu til betra aðgengis að greiningarferli, aukinnar meðvitundar (t.d. foreldra og kennara), dregið hafi úr fordómum og bættri skráningu í sjúkrasögu. Jafnframt er bent á að svipaða þróun megi sjá á Norðurlöndum. Einu má reyndar við þessa upptalningu bæta: Fjölgun Íslendinga er fyrir löngu séð. En hvergi virðist tillit til þess tekið. Í skýrslu Ríkisendurskoðunar frá 2016 segir að sá langi biðtími sem hefur einkennt geðheilbrigðisþjónustu við börn og unglinga sé óviðunandi: „Stjórnvöld hafi ótvíræðar skyldur þegar kemur að geðheilbrigðisþjónustu við börn og unglinga. Lög um heilbrigðisþjónustu, lög um réttindi sjúklinga, lög um málefni fatlaðs fólks og Samningur Sameinuðu þjóðanna um réttindi barnsins, tryggi börnum og unglingum rétt til eins fullkominnar heilbrigðisþjónustu og tök eru á að veita og feli stjórnvöldum þá skyldu að sjá þeim fyrir þeirri umönnun sem velferð þeirra krefst.“ Jafnframt að ef „[...] ekki er tekið á markvissan hátt á geðheilsuvanda barna og unglinga um leið og hans verður vart aukast til muna líkur þess að þungbærar og langvarandi afleiðingar, jafnvel örorka, komi síðar fram.“ Ekkert virðist hafa breyst síðan þá. Engum þarf að dyljast að sama á við um stöðu fullorðna einstaklinga. Hvernig sem á er litið þá þýðir ekki að tala um slæma tímabundna stöðu, heldur þess í stað kerfisbundið vanmat á vanda sem snertir þúsundir Íslendinga. Með hverju árinu leyfist sem sagt ráðherrum átölulaust að slá hvert heimsmetið af öðru. Spurningin sem við blasir við er einföld: Hversu lengi ætla stjórnvöld að líta fram hjá þessum vanda? Hér með er skorað á heilbrigðisráðherra að setja nauðsynlegt fjármagn og mannafla til að breyta um kúrs. Að óbreyttu verði enda lengstu biðlistum í geðheilsuþjónustu sem fyrirfinnast á heimsvísu viðhaldið. Að öðrum kosti liggur í augum uppi að ADHD samtökin munu leitað allra tiltækra leiða til að knýja fram breytingar. Höfundur er formaður ADHD samtakanna. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Vilhjálmur Hjálmarsson ADHD Mest lesið Eftir Kveiksþátt Anna Björg Jónsdóttir,Hjördís Halldóra Sigurðardóttir Skoðun Ríkið vill minnst tvö og hálft ár milli barnanna þinna Karítas Ólafsdóttir Skoðun Flokkur fólksins tekur í handbremsuna Eyjólfur Ármannsson Skoðun Cornell og klefamenning Olga Björt Þórðardóttir Skoðun Menning er ekki bisnessplan Birgir Þórarinsson Skoðun Þorum við að banna Airbnb eða erum við líka siðferðislegir hugleysingjar? Helen Ólafsdóttir Skoðun Getur Gufunesið talist skapandi hverfi ef Listhúsið lokar? Narfi Þorsteinsson Skoðun Bakslag fyrir barnafjölskyldur í Hafnarfirði Valdimar Víðisson Skoðun Réttindi eiga að vera raunveruleg Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir Skoðun Þorum við að tala um sorgina? Stefán Már Gunnlaugsson Skoðun Skoðun Skoðun Takk Hörður Jóhann Páll Jóhannsson skrifar Skoðun Firrur um aflareglu fyrir þorsk Ásgeir Daníelsson skrifar Skoðun EES málið, ESA og fullveldi Íslands og tími komin til varna Eggert Guðmundsson skrifar Skoðun Sýnum viljann í verki Aðalbjörg Stefanía Helgadóttir skrifar Skoðun Bókun 35 – þegar molnar undan stjórnkerfinu Aðalsteinn Júlíus Magnússon skrifar Skoðun Pínu sársauki á unga fólkið? Helgi Bárðarson skrifar Skoðun Austurland margborgar sig Ragnar Sigurðsson skrifar Skoðun Þorum við að tala um sorgina? Stefán Már Gunnlaugsson skrifar Skoðun Verklokafælni stjórnvalda Kjartan Björgvinsson skrifar Skoðun Við getum gert betur Hulda Brá Magnadóttir skrifar Skoðun Hverjum er frelsið ætlað? Guðný S. Bjarnadóttir skrifar Skoðun Bakslag fyrir barnafjölskyldur í Hafnarfirði Valdimar Víðisson skrifar Skoðun Þorum við að banna Airbnb eða erum við líka siðferðislegir hugleysingjar? Helen Ólafsdóttir skrifar Skoðun Skattfé er einnota Erna Bjarnadóttir skrifar Skoðun Forvarnadagurinn er í dag María Heimisdóttir skrifar Skoðun Af hverju má ég ekki eiga Chihuahua af því að ég bý í húsnæði fyrir fatlað fólk? Ingibjörg Dóra Scheving Bjarnadóttir skrifar Skoðun Réttindi eiga að vera raunveruleg Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir skrifar Skoðun Flokkur fólksins tekur í handbremsuna Eyjólfur Ármannsson skrifar Skoðun Áramótaheit ríkisstjórnarinnar Helgi Brynjarsson skrifar Skoðun Menning er ekki bisnessplan Birgir Þórarinsson skrifar Skoðun Þegar allt verður þjónusta Valerio Gargiulo skrifar Skoðun Ríkið vill minnst tvö og hálft ár milli barnanna þinna Karítas Ólafsdóttir skrifar Skoðun Hvenær eru kjósendur blekktir? Gunnar Ármannsson skrifar Skoðun Cornell og klefamenning Olga Björt Þórðardóttir skrifar Skoðun Eftir Kveiksþátt Anna Björg Jónsdóttir,Hjördís Halldóra Sigurðardóttir skrifar Skoðun Almannatryggingar í 90 ár Alma D. Möller skrifar Skoðun Frá styrkjum til stefnumótunar Hrönn Ingólfsdóttir skrifar Skoðun Boltinn er hjá ykkur Matthías Bjarnason skrifar Skoðun Golfið lækning við hálfónýtum maga og þörmum? Gunnar Salvarsson skrifar Skoðun Þegar fyrirsögnin finnur orsökina á undan rannsókninni Elísabet Reynisdóttir skrifar Sjá meira
Skoðun Þorum við að banna Airbnb eða erum við líka siðferðislegir hugleysingjar? Helen Ólafsdóttir skrifar
Skoðun Af hverju má ég ekki eiga Chihuahua af því að ég bý í húsnæði fyrir fatlað fólk? Ingibjörg Dóra Scheving Bjarnadóttir skrifar