Ein umfangsmesta drónaárásin á Rússland frá upphafi stríðsins Kjartan Kjartansson skrifar 26. júní 2026 08:28 Vladímír Pútín Rússlandsforseti kynnir sér flugvél í heimsókn til flugstofnunar nærri Moskvu í vikunni. Stríð hans í Úkraínu hefur færst nær heimahögunum með ítrekuðum drónaárásum Úkraínumanna að undanförnu. Vísir/EPA Efnaverksmiðja suður af Moskvu er sögð á meðal skotmarka í einni umfangsmestu drónaárás Úkraínumanna frá því að innrás Rússa hófst fyrir rúmum fjórum árum. Rússar segjast hafa skotið niður 660 úkraínskra dróna í nótt.
Rússneska varnarmálaráðuneytið segir að drónarnir hafi verið stöðvaðir yfir tólf rússneskum héruðum, Krímskaga, Svartahafi og Azov-hafi. AP-fréttastofan hefur eftir rússneskum fjölmiðlum að efnaverksmiðja og vatnsaflsvirkjun í Novomoskovsk í Tula-héraði hafi orðið fyrir skemmdum. Yfirvöld hafa ekki staðfest þær fréttir. Dmitrí Miljaev, héraðsstjóri í Tula, segir að íbúðarhús hafi einnig orðið fyrir skemmdum og kona særst. Þá hafi raflínur og iðnaðarhúsnæði í Novomoskovsk orðið fyrir tjóni. Árásirnar hófust skömmu eftir að Volodýmýr Selenskí, forseti Úkraínu, boðaði fjörutíu daga langa „áhrifaherferð“ sem væri ætlað að knýja Rússa til þess að leggja niður vopn. Kona faðmar kött sinn sem fannst í rústum húss sem varð fyrir rússneskum sprengjum í Kharkiv í Úkraínu um síðustu helgi.AP/Andrii Marienko Úkraínsk yfirvöld segja að tveir óbreyttir borgarar hafi látið lífið og sjö særst í árásum Rússa á Kharkiv-hérað síðasta sólarhringinn. Rússar gerðu flugskeyta og drónaárásir á Kharkiv og fjölda annarra borga og bæja í héraðinu.
Rússland Úkraína Innrás Rússa í Úkraínu Hernaður Mest lesið Jón Gnarr segir sig úr þingflokki Viðreisnar Innlent Hefur kvartað yfir stuðningsleysi í flokknum Innlent „Þessi ákvörðun mun kosta mörg mannslíf“ Erlent Ögurstund fyrir framtíð Eflingar innan ASÍ Innlent Lentu í öldugangi við Reynisfjöru Innlent Lögreglan lýsir eftir Halldóri Inga Innlent Krefjast milljarða vegna Barnaskóla Kársness Innlent Anna Valdimarsdóttir er látin Innlent Lést í stormi í Færeyjum Erlent Niðurstaðan hafi áhrif á framtíð Eflingar innan ASÍ Innlent Fleiri fréttir Lést í stormi í Færeyjum Hættir við að skjóta Hasan í beinni Biðja viðskiptavini að vera á varðbergi Andersson hafnað í sænska þinginu Hófu aftur árásir á olíuvinnslur í Rússlandi Eldur í ráðuneyti og banka í óeirðum í Tirana Tuttugu og sjö nemendur látnir eftir að þak skóla hrundi „Þessi ákvörðun mun kosta mörg mannslíf“ Bækur Rooney teknar úr sölu í Bretlandi Umsátur opinberar skuggastríð málaliða Gefur í skyn að bandarísk stjórnvöld hafi sett takmarkanir á Úkraínumenn Brösugleg byrjun hjá nýjum talsmanni Trumps Handteknir fyrir að féfletta NATO-skip í Noregi Fundu elsta skipsflak heims Árásum fjölgar og Íranir ætla að loka Hormússundi aftur Takmarkanir á Starlink í Úkraínu: „Þetta getur ekki verið tilviljun“ Yfir hálf milljón án rafmagns í Kænugarði eftir árásir Rússa í nótt Segja hálfa milljón hafa tekið þátt Styður Repúblikana með tugum milljarða Páfinn greindist með lungnakrabbamein Fjörutíu ár fyrir morðið á Tupac Aðgerð páfa gekk vel Staðfestir að Rússar höfðu afskipti af Brexit Sendiherrann beðinn um að segja af sér „Þeir samþykktu, af því að ég segi að þeir samþykktu“ Atkvæðagreiðsla boðuð í þrátefli eftir sænsku kosningarnar Þingkona segist fórnarlamb pólitískra ógnana Trump eftir húsleit Rannsaka dauðsfall í rússíbana í Six Flags Úkraínsku skipi sökkt við strendur Búlgaríu Þurftu að kyrrsetja flugvél vegna veggjalúsa Sjá meira