Neytendur

Lækkandi markaðs­verð hafi ekki skilað sér í lítranum

Agnar Már Másson skrifar
ASÍ vill meina að hlutur olíufélaga af hverjum seldum lítra sé nú um 60 krónur.
ASÍ vill meina að hlutur olíufélaga af hverjum seldum lítra sé nú um 60 krónur.

Alþýðusambandið segir lækkandi heimsmarkaðsverð á bensíni ekki hafa skilað sér í lægra lítraverði á bensínstöðvum á Íslandi.

ASÍ vekur athygli á því að verð á olíu hafi farið lækkandi á heimsmörkuðum undanfarna daga í kjölfar friðarviðræðna milli Bandaríkjanna og Íran og alls lækkað um 37 prósent frá því það var sem hæst í apríl.

Verðið er nú svipað og áður en átök hófust, en lækkun á olíuverði hefur einnig komið fram í lækkun á innflutningsverði á bensíni, sem hafi verðið lækkað um 21 prósent frá því það var hæst um miðjan maí, að sögn ASÍ.

Engu að síður hafi smásöluverð á bensíni lækkað um tæplega 3 prósent á þessum tíma. Hlutur olíufélaga af hverjum seldum lítra hafi því farið vaxandi og sé nú um 60 krónur af lægsta verði, sem sé svipað og í upphafi árs.

ASÍ bendir á að lægsta verð á bensínlítranum sé að finna á stöð Costco í Kauptúni og hafi lækkað um 10 krónur á lítrann frá því það var hæst, eða um 3,5 prósent. 

Áður hafði ASÍ bent á að lækkun virðisaukaskattslækkunar hefði skilað sér hjá öllum smásölum nema Costco. Hjá öðrum smásölum hefði lækkunin verið á bilinu 5 til 6 krónur á lítrann á lægsta lítraverði eða um 2,5 prósent.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×